Miðgarður á Mýrum

Miðgarður á Mýrum

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 5. janúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Miðgarður á Mýrum í Borgarbyggð.

Deiliskipulag þetta tekur til fyrirhugaðrar uppbyggingar íbúðarhúss, gestahúss, útihúss og skemmu/hesthús á 6ha lóð. Aðkoma er frá ónefndum vegi norðanvert sem tengist Hraunhreppsvegi (Þjóðvegur nr. 540). Tillagan samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 855/2023) frá 21. mars til og með 5. maí 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.