Borgarnes: Íþróttasvæði O1, Íbúðarsvæði Í4 og skólasvæði Þ3 – Breyting á aðalskipulagi

Borgarnes: Íþróttasvæði O1, Íbúðarsvæði Í4 og skólasvæði Þ3 – Breyting á aðalskipulagi

Í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 14. mars 2024 að auglýsa vinnslutillögu að breytingu aðalskipulags fyrir íþrótta-, íbúðar-, og skólasvæði í Borgarnesi.

Vinnslutillagan á við um fyrirhugaða breytingu á núverandi íþróttasvæðis O1, íbúðarsvæðis Í4 og skólasvæðis Þ3 í Borgarnesi en tilgangur breytingar er að skilgreina nánar fyrirhugaða uppbyggingu á núverandi íþróttasvæði í Borgarnesi.

Íbúafundur verður haldinn á seinni stigum samhliða kynningu á nýju deiliskipulagi fyrir svæðið.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 31/2024) frá 21. mars til og með 7. apríl 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við vinnslutillöguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á vinnslutillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.