Ásbrún í Borgarfjarðarsveit – breyting á deiliskipulagi

Ásbrún í Borgarfjarðarsveit – breyting á deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 1. mars 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðasvæðið Ásbrún í Borgarfjarðarsveit frá árinu 2006.

Breytingin tekur til lóða innan svæðisins sem og breytinga á almennum skilmálum þar sem lóð númer tvö er aftur sett inn á skipulag og byggingarmagn aukið á lóðum. Áður skilgreint leiksvæði/útivistarsvæði norðan við lóð 2 er fellt út og í stað sett inn lóð með kvöð um aðgengi að túnum vestan við. Aðkoma að lóðum er af Ásbrúnarvegi um Bæjarsveitarveg. Tillagan samræmist gildandi aðalskipulagi.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 243/2023) frá 21. mars til og með 5. maí 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.