Sigmundarstaðir – Mælimastur á Grjóthálsi – Deiliskipulagslýsing

Sigmundarstaðir – Mælimastur á Grjóthálsi – Deiliskipulagslýsing

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst skipulagslýsing að nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti þann 1. mars 2024 að auglýsa lýsingu að nýju deiliskipulagi í landi Sigmundarstaða (L134748) fyrir tímabundnu mælimastri til vindrannsókna.

Lýsingin tekur til áætlunar um að reisa tímabundið mælimastur til vindrannsókna. Mastrið sem um ræðir er stálgrindarmastur, þríhyrnt með 48 cm breiðum hliðum. Mastrið er allt að 98 m hátt með stögum sem ná allt að 60 m út frá mastrinu. Í lýsingu kemur fram að áætlað er að mastrið standi í 2 ár. Áætlunin samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 245/2024) frá 21. mars til og með 7. apríl 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að koma með ábendingu við lýsinguna á kynningartíma. Ábendingum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á lýsingunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að ábendingar teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 21. mars, 2024.