Hluti íbúðarsvæðis Varmalands verður verslunar- og þjónustusvæði – breyting á aðalskipulagi

Hluti íbúðarsvæðis Varmalands verður verslunar- og þjónustusvæði – breyting á aðalskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. október 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi í Varmalandi Borgarbyggð.

Tillagan tekur til breyttrar landnotkunar á afmörkuðu svæði í Varmalandi úr íbúðasvæði (Í4) í verslun og þjónustu (S8). Íbúðarsvæðið er nú 3,2 ha að stærð og verslunar- og þjónustusvæðið er 6404 fm. Við þessa breytingu falla niður tvær íbúðarhúsalóðir og lóð hótels Varmalands stækkar. Aðkoma að svæðinu er af Varmalandsvegi um götuna Birkihlíð.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 727/2023) frá 19. apríl til og með 3. júní 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 19. apríl, 2024.