Íbúðarbyggð á Varmalandi og stækkun á hótellóð – breyting á deiliskipulagi

Íbúðarbyggð á Varmalandi og stækkun á hótellóð – breyting á deiliskipulagi

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð

Íbúðarbyggð á Varmalandi og stækkun á hótellóð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 14. mars 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð á Varmalandi frá árinu 2005 m.s.br.

Breytingin tekur til lóðar Hótels Varmalands þar sem hún er sameinuð tveimur nærliggjandi óbyggðum íbúðarlóðum austan hótelsins. Aðalskipulagsbreyting er gerð samhliða.

Ofangreind skipulagsáætlun er auglýst í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (www.skipulagsgatt.is mál nr. 445/2024) frá 19. apríl til og með 3. júní 2024 og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í skipulagsgáttina eða senda skriflega til þjónustuvers Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borganesi, b.t. skipulagsfulltrúa. Ef óskað er nánari kynningu á tillögunni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og geta meðal annars nöfn íbúa birst í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar.


Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar

Borgarbyggð, 19. apríl, 2024.