
|
Einir á Langavatnsdal - GJ |
Umhverfismál
Fráveitur
Borgarnes
Í Borgarnesi er unnið að því að fækka útrásum. Stefnt er að því að það verði ein megin útrás í Borgarnesi þ.e í Brákarey þar sem ný hreinsistöð verður einnig staðsett.
Í þéttbýliskjörnunum Hvanneyri, Varmalandi, Bifröst og Reykholti er unnið að gerð hreinsistöðva fyrir skólp.
Í dreifbýli sveitarfélagsins og þéttbýliskjörnum við Varmaland og Bifröst er notast við rotþrær. Gerður hefur verið samningur við verktaka um reglulega hreinsun rotþróa á þriggja ára fresti.
Sorpmál
Í Borgarnesi er heimilissorpi safnað í 240 lítra plasttunnur og það hirt með tíu daga millibili þ.e á mánudögum og fimmtudögum. Stærri fyrirtæki hafa síðan gert samninga við verktaka varðandi sorpsöfnun frá þeim. Söfnun sorps í dreifbýli Borgarbyggðar fer fram á gámavöllum sem staðsettir eru víðsvegar um sveitarfélagið.
Í Borgarnesi er sorpflokkunarstöð við Sólbakka 12 þar sem lögð er áhersla á endurnýtingu sorps. Í dreifbýli eru átaksverkefni varðandi söfnun á rúlluplasti, járni og timbri.
Sorpflokkunarstöðin er opin alla daga frá kl. 14:00 til 18:00 nema sunnudaga.
Sjá frekari upplýsingar um sorpmál hér til hliðar undir sorphirða.