Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 144

Dags. 17.2.2010

Miðvikudaginn 17. febrúar 2010 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar kl. 08:00 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mættir voru:

             Aðalfulltrúar:             Sveinbjörn Eyjólfsson

                                             Finnbogi Rögnvaldsson

                                             Bjarki Þorsteinsson

             Sveitarstjóri:             Páll S. Brynjarsson

             Skrifstofustjóri:         Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Endurnýjun á menningarsamningi fyrir Vesturland

Framlagður endurnýjaður menningarsamningur fyrir Vesturland.  Jafnframt er framlögð fundargerð frá stjórnarfundi í Menningarráði Vesturlands sem og fjárhagsáætlun ráðsins fyrir árið 2010.

Byggðarráð samþykkti samninginn og fjárhagsáætlunina.

 

2.         Safnahús Borgarfjarðar

Framlagt bréf frá Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem kynnt er fyrirhuguð sýning “Kaupmannsheimilið”, en á sýningunni er stillt upp munum og gögnum frá heimili hjónanna Jón Björnssonar frá Bæ og Helgu Björnsdóttur frá Svarfhóli.  Sýningin er sett upp í tilefni 50 ára afmæli Byggðasafns Borgarfjarðar og verður opnuð í maí n.k.

 

3.         Skólamál

Framlagðar umsagnir skólaráða vegna fyrirhugaðra breytinga á skólahaldi sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun árins 2010.  Jafnframt er framlagt minnisblað frá sveitarstjóra um vinnuáætlun við sameiningu Varmalandsskóla og Grunnskóla Borgarfjarðar undir eina yfirstjórn.

 

4.         Brákarbraut 11A

Framlagt erindi frá Ingimundi Grétarssyni þar sem hann óskar eftir að kaupa fasteigina að Brákarbraut 11a í Borgarnesi.

Byggðarráð er ekki reiðubúið að selja húsið þar sem það var keypt til að rýma fyrir nýju skipulagi og ekki fyrirhugað að breyta þeim ætlunum.

 

5.         Samanburður á lágmarkskostnaði leigjenda

Framlagt minnisblað frá félagsmálastóra þar sem gerður er samanburður á lágmarkskostnaði leigjenda skv. reglum um sérstakar húsaleigubætur í nokkrum sveitarfélögum.

Samþykkt að hækka lágmarkskostnað leigjenda í Borgarbyggð í kr. 35.000.

 

6.         Yfirlýsing um landamerki Bjargs og Borgarbyggðar

Framlögð yfirlýsing um landamerki Bjargs og Borgarbyggðar.

Byggðarráð samþykkti landamerkin.

 

7.         Lánasjóður sveitarfélaga

Framlagt bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem óskað er eftir heimild sveitarfélagsins fyrir því að sjóðurinn birti upplýsingar um stöðu lána Borgarbyggðar hjá sjóðnum.

Samþykkt að verða við beiðni Lánasjóðsins.

 

8.         Menntaborg ehf.

Rætt um Menntaborg ehf.

 

9.         Erindi frá Saman hópnum

Framlagt erindi frá Saman hópnum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við forsvararstarf hópsins á árinu 2010.

Byggðarráð getur ekki orðið við erindinu.

 

10.       Erindi frá Landgræðslu ríkisins

Framlagt erindi frá Landgræðslu ríkisins þar óskað er eftir stuðningi við verkefnið Bændur græða landið.

Byggðarráð samþykkti að taka ekki þátt í þessu verkefni þetta árið.

 

11.       Stofnun lögbýlis

Framlagt erindi frá Friðbirni Garðarssyni hdl. f.h. Goðheima ehf. um stofnun lögbýlis á landinun Hvítárholti.  Jafnframt er framlögð umsögn Búnaðarsamtaka Vesturlands.

Samþykkt að vísa erindinu til umsagnar skipulags- og byggingarnefndar og umhverfis- og landbúnaðarnefndar.  Einnig er óskað upplýsinga um legu landsins og aðkomu að því.

 

12.       Laun sveitarstjórnar

Framlagt minnisblað frá skrifstofustjóra um launakjör sveitarstjórnarmanna í Borgarbyggð í samanburði við nokkur önnur sveitarfélög.

Samþykkt að skipa þriggja manna vinnuhóp úr hópi sveitarstjórnarmanna til að leggja fram tillögur um launakjör sveitarstjórnar.

 

13.       Breytingar á samþykkt um hunda og kattahald

Framlögð breytingartilaga frá Finnboga Leifssyni á samþykkt um hunda og kattahald í Borgarbyggð.

Byggðarráð samþykkti breytingartillöguna efnislega og var sveitarstjóra falið að gera tillögu um hvernig hún falli inn í heildarsamþykktina.  

 

14.       Slysavarnir   

Sveitarstjórn vísaði erindi nr. 20 frá fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar um slysavarnir til byggðarráðs.

Samþykkt að óska eftir fundi með almannavarnarnefnd um málið.

 

15.       Sameining sveitarfélaga

Framlagt erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 10.02.'10 þar sem óskað er eftir að Borgarbyggð tilnefni fulltrúa í vinnuhóp um sameiningarmál á Vesturlandi.

Samþykkt að tilnefna Sveinbjörn Eyjólfsson í vinnuhópinn og Finnboga Rögnvaldsson til vara.

 

16.       Aðalfundarboð

Framlagt fundarboð á aðalfund Veiðifélags Langár sem haldinn verður 27.02.'10.

Samþykkt að Einar Ole Pedersen verði fulltrúi Borgarbyggðar á fundinum.

 

17.       Skólaakstur

Rætt um útboð á skólaakstri.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að setja af stað vinnu við útboð á skólaakstri í Borgarbyggð.

 

18.       Erindi frá Umhverfisfulltrúa

Framlagt bréf frá umhverfisfulltrúa vegna samstarfssamnings við landeigendur á Hreðavatni.

Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við að samningurinn verði óbreyttur.

 

19.       Atvinnumál

Rætt um atvinnumál.

Á fundinn mætti Stefán Logi Haraldsson aðstoðarforstjóri BM-Vallár til viðræðna um starfsemi fyrirtækisins.

 

20.       Framlögð mál

            a.   Fundargerð frá 71. stjórnarfundi Faxaflóahafna

            b.   Yfirlit yfir uppgjör á framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Borgarbyggðar árið 2009.

 

 

Fleira ekki gert.  

Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 10,40.



Til baka