9. október, 2026
Fréttir

Borgarbyggð vekur athygli á framkvæmdum fyrir framan fjölbýlishús við Kveldúlfsgötu 24-30 og við opið leiksvæði barna.
Verkið felur meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og annan frágang á svæðinu.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan 4 vikna. Á meðan á verkinu stendur geta orðið tímabundnar truflanir á umferð og aðgengi á svæðinu.
Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja merkingum á framkvæmdasvæðinu. Við þökkum fyrir sýndan skilning á meðan á framkvæmdum stendur.

Tengdar fréttir

10. nóvember, 2026
Fréttir

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð yrði sem hér segir: 23. nóv í áhaldahúsi að Sólbakka 4 Fyrir hunda kl. 16:30 19:00. Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:15. 24. nóv Hvanneyri í „gamla BÚT-húsinu“ kl. 16:30 – 19:00. 2. des í áhaldahúsi að Sólbakka 4 kl. 17:00 – 19:00. Nánari upplýsingar um dýrahald má finna hér 

5. nóvember, 2026
Fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst

Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …