1. september, 2026
Fréttir

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki.

Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu.

Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun.

Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á ný. Skýrsluskil eru skilyrði fyrir frekari styrkveitingum.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er send inn.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt á vef Borgarbyggðar

Umsóknarfrestur er til 15. september 2026.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Kjartansdóttir
thorunn.kjartansdottir@borgarbyggd.is

Tengdar fréttir

3. september, 2026
Fréttir

Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar

Kæru foreldrar/forráðafólk nýfæddra barna Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með ykkur á þessum tímamótum. Barnapakkanum fylgja hamingjuóskir og vonir um bjarta framtíð. Eftirtaldir aðilar hafa tekið höndum saman um Barnapakka Borgarbyggðar en hann gildir sem 10.000 kr. inneign hjá eftirtöldum þjónustuaðilum: Kaupfélag Borgfirðinga Hár center Fok Hársnyrting Dagnýjar Bara Bistro Gunnhildur …