Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu.
Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu samfélagi.
Kristján Ágúst Magnússon, formaður nefndarinnar, kynnti niðurstöðurnar og afhenti viðurkenningarnar.
Viðurkenningar voru veittar í fimm flokkum og hlutu eftirfarandi aðilar viðurkenningu:
Snyrtileg atvinnulóð: Gleym-mér-ei garðaþjónusta
Falleg lóð við íbúðarhús: Hálsar í Skorradal
Snyrtilegt bændaskýli: Staðarhús
Samfélagsviðurkenning vegna umhverfismála: Gísli Einarsson
Sérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi: Ytri-Skeljabrekka
Við óskum öllum sem hlutu viðurkenningu innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir metnað og gott starf við að halda umhverfi sínu snyrtilegu og stuðla að fallegu og aðlaðandi umhverfi í Borgarbyggð.
Tengdar fréttir

Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26.október.
Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26. október vegna framkvæmda við gatnamót Egilsgötu og Bröttugötu. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á meðan á framkvæmdum stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026
Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026 Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2026. Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu. Bílflök og annað almennt brotajárn Ryðfrítt stál og ál Rafgeyma Rafmótora Hjólbarða Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili …