Fundargerð
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
261. fundur
6. júlí 2026 kl. 12:00 - 13:00
á skrifstofu byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Starfsmenn
Dagskrá
1. Vatnshlíð 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir stækkun á núverandi sumarhúsi. Stækkun alls 15.2m2, mhl-01.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Sæmundur Eiríksson
2. Rjúpuflöt 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir bílskúr, mhl-02. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður. Stærð:38.7m2
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ómar Pétursson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
3. Múlabyggð 27 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi á einni hæð. Stærð:50.7m2, mhl-01. Um er að ræða bjálkahús,byggt á steyptar súluundirstöður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Jökull Helgason
Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
4. Hlíðabyggð 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir sumarhúsi. Stærð: 96m2, mhl-01. Byggingarefni : Timbur
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: ASK arkitektar
- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.
- Leyfisgjöld hafa verið greidd.
5. Sveinukot - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir fimm litlum smáhýsum á landi Sveinukots. Auk þess verður komið fyrir litlum inntaksskúr fyrir vatns- og raflagnainntak sem dreyfist svo niður á smáhýsin. Um er að ræða mhl-01,02 og 03 sem eru bjálkahús. Stærð:13.5m2
Mhl-04 og 05 eru tunnuhús,byggð úr timbri á steyptar súlur. Stærð 11.5m2.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir.
Hönnuður: Sigurður Óli Ólafsson
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
6. Indriðastaðir 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Erindi: Sótt um leyfi fyrir breytingun innanhúss og utan: Að innanverðu, ný gólfefni og klæðningar auk minniháttar breytinga á skipulaginu. Utanhúss er breytingarnar eftirfarandi: Hurð inn í geymslu og önnur inn í sturturými verða fjarlægðar, einn gluggi fjarlægður og nýr kemur gluggi í staðin. Pallurinn stækkaður og pottur færður.
Fylgigögn: Aðaluppdrættir
Hönnuður: Ingunn Helga Hafstað
7. Sólbakki 11 - Umsókn um stöðuleyfi
Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir bráðabyrgða geymslu, og er það gámatjald sem fest er á milli 2 gáma. Ætlunin er að setja upp þetta tjald norðan við húsið að Sólbakka 11, og mun það ná allt að 15 metrum frá húsinu og verður þá minnst 5 - 6 metrar að lóðarmörkum næstu lóðar.
Fylgigögn: Gróf útlitsmynd og afstöðumynd
8. Vanaheim L237771 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Erindi: Sótt er um leyfi fyrir að reisa viðbyggingu sem tengir saman tvo sumarbústaði (mhl 01 og 02) og breyta í einbýlishús sem verður eftir breytingu mhl-
01 auk þess er sótt um að byggja bílskúr (mhl-02) 88m2 sunnan við íbúðarhús.
Fylgigögn:Aðaluppdrættir.
Hönnuður: Hildur Bjarnadóttir
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um samþykki skipulagssviðs og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.
Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.
Byggingarfulltrúi bendir á úrskurð örnefnanefndar mál nr. 2-2026 um bæjarheitin Vanaheim og Jötunheim.
Erindinu er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.