Dagskrá
1. Erindisbréf umhverfis- og landbúnaðarnefndar
2606219
Erindisbréf Umhverfis- og landbúnaðarnefndar var tekið fyrir á fundi Umhverfis- og landbúnaðarnefnar á fundi nr. 1 og var umhverfisfulltrúa falið að lagfæra texta og leggja síðan fyrir sveitarstjórn.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
2. Endurskoðun fjallskilasamþykktar fjallskilaumdæmis stjórnar ABHS
2508060
Stjórn fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn Borgarbyggðar að skipað verði í fjallskilanefnd fyrir fjallskiladeild Skorradalshrepps til bráðabirgða þar til enduskoðun á fjallskilasamþykkt er lokið.
Byggðráð sem fer með fullnnaðarafgreiðsluvald fyrir hönd sveitastjórnar leggur til að eftirfarandi aðilar verði skipaðir í bráðabirgða fjallskiladeild Skorradalshrepps:
Aðalmenn:
Jón Eiríkur Einarsson
Jökull Helgason
Dagný Sigurðardóttir
Til vara:
Fjóla Benediktsdóttir
3. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
2606011
Kjör fulltrúa í stjórn Snorrastofu.
Aðalmaður:
Katrín Jakobsdóttir
Til vara:
Bryndís Geirsdóttir
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
4. Skipan í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
2602149
Lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins dags. 16. júní 2026 þar sem óskað er eftir tilnefningu eins fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.
Að afloknum sveitarstjórnarkosningum er sveitarstjórnum heimilt að tilnefna nýjan fulltrúa sinn í nefndina með vísun í 3. mgr. 9. gr. a skipulagslaga nr. 123/2010.
Ráðuneytið óskar eftir því að sameinað sveitarfélag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps tilnefni einn fulltrúa í nefndina, m.t.t. 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020. Þar er meðal annars kveðið á um að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu. Þá kemur fram að tilnefningaraðila sé heimilt að víkja frá þeirri skyldu þegar hlutlægar ástæður leiða til þess að það er ekki mögulegt. Skal tilnefningaraðili þá skýra ástæður þess. Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir tilnefningu og skipun fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá í nefndir, ráð og stjórnir á vegum hins opinbera. Ráðherra skipar í hópinn og velur úr tilnefningum svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
Byggðarráð tilnefnir Hermann Berndsen Valsson og Ragnhildi Evu Jónsdóttur.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
5. Aðalfundur Nemendagarða ehf 2026
2607048
Boðað til aðalfundar Nemendagarða MB ehf. miðvikudaginn 5. ágúst 2026 kl. 13:30 á Teams.
Davíð Sigurðssyni falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins á aðalfundinn og Unni Brá Konráðsdóttur sveitarstjóra til vara.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
6. Hluthafafundur MB 2026
2607050
Framlagt fundarboð á hluthafafund Menntaskóla Borgarfjarðar sem haldin verður þann 6.ágúst 2006 kl.13:30 í húsnæði MB.
Sveitarstjóra falið að mæta fyrir hönd sveitarfélagsins til fundarins. Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
7. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð.
Tilgangur breytingarinnar er að breyta landnotkun svæðisins úr landbúnaðarland í efnistökusvæði og er markmið breytingarinnar að heimila allt að 35.000 m³ efnistöku á um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár. Í undirbúningi er lagning 19 kV loftlínu í jörð á milli tengivirkis á Vatnshömrum og Ferjubakka undir Hvítá. Stefnt er að því að nýta efni úr landi Hvítárvalla fyrir framkvæmdina þar sem styttra er að sækja efni þar, auk þess sem landeigandi hefur áhuga á að nýta námuna til annarra framkvæmda. Áætlað efnistökusvæði nýtur ekki sérstakrar verndar og engar þekktar minjar eru á svæðinu. Aðkoma að svæðinu er frá Hvítárvallavegi (510) um núverandi slóða sem er á skrá yfir vegi í náttúru Íslands.
Svæðið sem stækkunin nær til er skilgreint sem landbúnaðarland í flokki III í dag.
Lýsing aðalskipulagsbreytingarinnar var auglýst skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010 frá 18. maí til 4. júní 2026 og vinnslutillaga auglýst frá 19. júní til 5. júlí. Uppdráttur og greinargerð er lögð fram þar sem tekið hefur verið tillit til umsagna sem bárust.
Byggðarráð sem fer með fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar samþykkir framlagða breytingu á landnotkun á 2 ha svæði úr landbúnaðarlandi í efnistökusvæði í landi Hvítárvalla í Borgarbyggð skv. 5. gr. jarðlaga nr. 81/2004. Ekki er talið að það land sem mun breyta um landnotkun sé stærra en þörf krefur né hafi áhrif á aðlæg landbúnaðarsvæði. Byggðarráð samþykkir einnig að auglýsa framlagða tillögu að breyttu aðalskipulagi sveitarfélagsins skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
8. Erindi til allra sveitarfélaga vegna stefnumótunar í málaflokknum
2607044
Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið.
Lagt fram til kynningar og sveitarstjóra falið að gera drög að svari meðfylgjandi spurningalista.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Fylgiskjöl
9. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður.
2607056
Erindi frá Heilbrigðiseftirliti vegna kerfisbreytinga
Sveitarstjóri fór yfir stöðu málsins. Sveitarstjóra falið í samráði við fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn HEV að fylgja breytingunum fast eftir í samvinnu við fulltrúa annarra sveitarfélaga á starfssvæði HEV með það að markmiði að núverandi stjórnsýslueining ljúki sínu hlutverki á fullnægjandi hátt. Jafnframt verði gætt að því að lágmarka kostnað vegna breytinganna og að þau verkefni sem eftir standa á ábyrgð sveitarfélaganna í kjölfarið verði í öruggum farvegi. Sveitarstjóri upplýsi byggðarráð um framvindu málsins eftir því sem þörf er á.
10. Endurbætur á Melabraut á Hvanneyri
2605049
Endurbætur Melabraut Hvanneyri.
Byggðarráð samþykkir að ráðast í verkefnið samkvæmt uppfærðu svari við verðfyrirspurn frá Borgarverk að fjárhæð kr. 14.905.500.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
11. Deiliskipulag - Flugvöllurinn í Borgarnesi (L122785)
2603179
Flugklúbburinn Kári sækir um stækkun á lóðinni Kárastaðaflugvöllur L172785 samhliða vinnu að deiliskipulagi fyrir flugvöllinn, sem samþykkt var að hefja á 713.fundi byggðarráðs þann 3.7.2025.
Byggðarráð samþykkir stækkun á lóðinni Kárastaðaflugvöllur L172785 til austurs, norðausturs og suðvesturs samkvæmt tillögu flugklúbbsins ef frá er talið hornið suðvestan við flugskýlið, sjá mynd 3 í minnisblaði skipulagsfulltrúa. Framkvæmdir við öryggissvæði við flugvöllinn, sem og öll gatnagerð og veitukerfi innan lóðar eru á forsvari lóðarhafa flugvallarins.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við ofangreint.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
12. Skipurit Borgarbyggðar
2504240
Sveitarstjóri fór yfir tillögu að nýju skipuriti sveitarfélagsins.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
13. Leyfisumsókn Rallaksturskeppni 23.Ágúst 2026
2607082
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur sækir um leyfi fyrir aksturskeppni í umdæmi Borgarbyggðar 23.08.2026.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavikur. Uxahryggir og Kaldidalur gegna mikilvægu hlutverki, ekki síst fyrir ferðaþjónustu í uppsveitum Borgarfjarðar. Byggðarráð leggur áherslu á að lokun verði í lágmarki og vegurinn verði ekki í lakara ástandi að aflokinni keppni.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
14. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034
Framlögð fundargerð frá 268. fundi stjórnar Faxaflóahafna
Lagt fram til kynningar.
15. Aðalfundur Faxaflóahafna sf. 2026
2605219
Framlögð fundargerð aðalfundar Faxaflóhafna sf. sem haldinn var föstudaginn 12. júní síðastliðinn.
Lagt fram til kynningar.
16. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034
Framlögð fundargerð 269. fundar stjórnar Faxaflóahafna.
Lagt fram til kynningar.
17. Umferðarábati Í langri lest - stofnvegakerfið við höfuðborgarsvæðið
2607096
Skýrsla Viðskiptaráðs: Í langri lest: um stofnvegi út frá höfuðborgarsvæðinu.
Byggðarráð Borgarbyggðar fagnar útgáfu skýrslu Viðskiptaráðs þar sem fram koma tillögur um umbætur á stofnvegakerfi landsins. Fram kemur að ábatasamasta einstaka verkefnið sé uppbygging leiðarinnar frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness. Með því að breyta veginum í 2 2-akreinar, tvöfalda Hvalfjarðargöng, gera mislæg gatnamót og hækka hámarkshraða í 110 km/klst. sé hægt að spara 1,3 milljónir klukkustunda í bíl á ári sem samsvari 11,2 milljörðum króna á ári.
Byggðarráð tekur undir hvatningu Viðskiptaráðs til stjórnvalda um að ráðast í tvöföldun þjóðvegarins frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness sem fyrst. Slík framkvæmd myndi nýtast landsmönnum öllum.
18. Samtök orkusveitarfélaga Kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa
2607032
Meðfylgjandi eru tvö skjöl frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í aðildarsveitarfélögunum en Borgarbyggð er aðili að samtökunum þar sem Skorradalshreppur var aðili. Samtök orkusveitarfélaga eru samstarfsvettvangursveitarfélaga sem hafa beina hagsmuni af nýtingu orkuauðlinda, uppbyggingu og rekstri orkuvera og áhrifum orkuvinnslu á nærsamfélög. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunum aðildarsveitarfélaga í málum semtengjast orkunýtingu, fjárhagslegum hagsmunum, umhverfismálum og stöðu sveitarfélaga gagnvart ríki, stofnunumog orkufyrirtækjum.
Lagt fram til kynningar.