Byggðarráð Borgarbyggðar

5. fundur

20. ágúst 2026 kl. 08:15 - 10:15

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir boðaði forföll og Kristján Ágúst Magnússon - varamaður sat fundinn í hans stað
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson boðaði forföll og Þórður Brynjarsson - áheyrnarfulltrúi sat fundinn í hans stað

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur

Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka fimm mál inn með afbrigðum, mál nr. 2601241, Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026, mál nr. 2607085, Aðgangur að örnefnum af sveitarfélaginu, mál nr. 2201148, Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga, mál nr. 2606304, Fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu og og mál nr. 2608129 Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga föstudaginn 21. ágúst 2026


Dagskrá

1. Fjóluklettur 14 - Umsókn um lóð
2608028

Framlögð umsókn um lóðina Fjóluklettur 14 í Borgarnesi.

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Fjóluklett 14 til Ieisha Shaliah Santez Oliver á grundvelli framlagðrar umsóknar.



Samþykkt samhljóða



2. Sóltún 15 - Umsókn um lóð
2608034

Framlögð umsókn um lóðina Sóltún 15 á Hvanneyri.

Umsókn barst 10.08.2026.

Jafnframt er óskað eftir lækkun gatnagerðargjalda í sömu umsókn.

Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Sóltúni 15 til Guðrúnar Óskarsdóttur á grundvelli framlagðrar umsóknar en hafnar ósk um lækkun gatnagerðargjalda. Samkvæmt 5. gr. í gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Borgarbyggð á lækkun við um sérhæfðar byggingar en ekki íbúðarhús.



Samþykkt samhljóða



3. Málefni Fjallskilanefndar Þverárréttar
2608071

Til fundarinns komu fulltrúar frá Fjallskilanefnd Þverárréttar til þess að ræða ýmis málefni tengd fjallskiladeildinni.

Byggðarráð þakkar fulltrúum Fjallskilanefndar Þverrárréttar fyrir erindið.



Byggðarráð tekur undir að mikilvægt sé að fara vel yfir þessi mál og vísar erindinu til frekari umfjöllunar í umhverfis og landbúnaðarnefnd.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Fjármál sveitarfélagsins
2608072

Sigurður Kristjánsson, fjármálastjóri, fer yfir stöðu mála.

Farið er yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins frá janúar til maí 2026. Byggðarráð þakkar Sigðurði fyrir góða yfirferð.



5. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 2026 ósk um upplýsingar vegna framlaga.
2605038

Lagt er fram svarbréf frá Jöfnunarsjóði.

Lagt er fram svar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við fyrirspurn sveitarfélagsins um framlög ársins 2026.

Byggðaráð þakkar fyrir svör og skýringar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en telur að þær skýringar svari ekki meginálitaefni málsins, sem er hið verulega misræmi milli áhrifamats sem lagt var fram í tengslum við setningu laga nr. 56/2025 og þeirrar niðurstöðu sem virðist stefna í varðandi framlög Jöfnunarsjóðs til Borgarbyggðar.

Í áhrifamati laganna var gert ráð fyrir að tekjur A-hluta Borgarbyggðar myndu aukast um 177,7 m.kr. vegna hins nýja úthlutunarlíkans, en nú liggur fyrir að framlög til sveitarfélagsins lækka milli áranna 2024 og 2026. Á sama tíma njóta flest sveitarfélög, sem borin eru saman, í minnisblaði fyrverandi sveitarstjóra, dags. 30. apríl sl. verulegra hækkana framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Þrátt fyrir þær skýringar sem Jöfnunarsjóður hefur lagt fram, liggur ekki fyrir fullnægjandi greining á því hvers vegna framlag sjóðsins til Borgarbyggðar víkur svo verulega frá því sem áhrifamat laganna gaf tilefni til að ætla, né hvers vegna sveitarfélagið kemur mun verr út en flest þau sveitarfélög sem til samanburðar voru tekin.

Byggðaráð bendir á að framlög Jöfnunarsjóðs námu 1.774 m.kr. árið 2025 og voru um 29,6% af skatttekjum A-hluta sveitarfélagsins. Með hliðsjón af rekstrarhalla A-hluta árið 2025 og fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins, geta jafnvel tiltölulega hóflegar breytingar á framlögum haft veruleg áhrif á rekstrarafkomu, lausafjárstöðu og getu sveitarfélagsins til að standa undir nauðsynlegri þjónustu og fjárfestingum.

Byggðaráð telur mikilvægt að áfram verði unnið að ítarlegri greiningu á áhrifum hins nýja úthlutunarlíkans og að sveitarfélagið haldi áfram samtali við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og innviðaráðuneytið með það að markmiði að fá skýrari og gagnsærri skýringar á þeim þáttum sem valda þessari niðurstöðu fyrir Borgarbyggð.

Byggðaráð felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa um framvindu þess eftir því sem þeirri vinnu framvindur.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Vígsla fjölnota íþróttahúss og nafnasamkeppni
2608078

Kynnt áform um vígslu hússins og farið yfir tillögur sem bárust í nafnasamkeppni.

Byggðarráð fékk kynningu á áformum um vígsluathöfn fyrir nýtt fjölnota íþróttahús og yfirlit yfir þær tillögur sem bárust í nafnasamkeppni.



Byggðarráð leggur til að ráðgefandi könnun verði lögð fyrir íbúa á heimasíðu sveitarfélagsins um endalegt val á nafni. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta framkvæma íbúakönnun þar sem valið verður á milli eftirfarinna nafna:



Borgin

Skallinn

Brák

Fjaran

Hamarinn

Hlaðan



Samþykkt samhljóða



7. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
2601241

Lögð fram tillaga að 600.000.000 m.kr. langtímalántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að greiða upp skammtíma framkvæmdalán hjá sjóðnum.

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir hér með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals kr. 600.000.000,- með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar á endanlegum lánasamningi. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til að greiða upp skammtíma framkvæmdalán hjá sjóðnum sem tekið var til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum og til byggingar fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi.

Jafnframt er Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra, kt. 060474-5839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að undirrita, f.h. Borgarbyggðar, lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána.



Afgreiðsla þessi verði lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar.



Málið kemur inn að nýju þegar endanleg skjöl liggja fyrir.



Samþykkt samhljóða



8. Aðgangur að örnefnum af sveitarfélaginu (1202023)
2607085

Mál af 1. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 7. ágúst 2026:



Mál nr. 1 (1202023) tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarnefndar Skorradalshrepps nr. 203 þann 28. maí 2026. Bókun nefndar: "Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir samning við Sigurgeir og að vinnan fari af stað. Stefnt er að vinnu ljúki fyrir sumarlok 2026 og að Sigurgeir afhendi ofangreind gögn til Náttúrufræðistofnunar."



Sveitarstjórn sameinaðs sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps vísaði málinu til skipulags- og byggingarnefndar á 2. fundi sínum þann 11. júní 2026.



Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 7. ágúst sl. að leggja til við byggðaráð að vinna við örnefnaskráningu í Skorradal verði kláruð.

Byggðaráð samþykkir að vinna við örnefnaskráningu í Skorradal verði kláruð og samþykkir jafnframt samning þess efnis.



Kostnaður við verkefnið er áætlaður 750.000 auk VSK. og verður að taka tillit til þessa kostnaðar við gerð viðauka við fjárhagsáætlun.



Tengiliður sveitarfélagsins vegna verkefnisins verður sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


9. Breytingar á barnaverndarlögum og uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitafélaga
2201148

Á 741. fundi Byggðarráðs var fjallað um greiðslufyrirkomulag er snýr að sameiginlegri bakvaktarþjónustu fyrir barnaverndarþjónustu Vesturland. Vísað var í bókun velferðarnefndar sem taldi nauðsynlegt að slíkar greiðslur myndu taka mið af kjarasamingum að því gefnu að öll sveitarfélög samþykktu slíkar breytingar. Byggðarráð fól sveitastjóra að fullvinna kostnaðarmat á þeim tillögum sem lagðar voru fram. Óskað er eftir samþykki Byggðarráðs að greiðslur fyrir bakvaktir verði í samræmi við önnur sveitarfélög og taki mið af kjarasamingum. Ekki er þörf fyrir viðauka þar sem stöðugildi í barnavernd hafa ekki verið fullnýtt það sem af er ári.

Hlöðver Ingi Gunnarsson mætir til fundarins og fer yfir framlagt minnislað.



Byggðarráðs samþykkir fyrir sitt leyti að greiðslur fyrir bakvaktir verði í samræmi við önnur sveitarfélög og taki mið af kjarasamingum. Ekki er þörf fyrir viðauka þar sem stöðugildi í barnavernd hafa ekki verið fullnýtt það sem af er ári. Miðað er við að fyrirkomulagið hafi hafist 1.júlí 2026 þar sem tafir hafa orðið að að klára málið.



Samþykkt samhljóða



Þórður Brynjarsson vek af fundi eftir þennan dagskrálið



10. Fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu
2606304

Lagt fram minnisblað starfsmanns um fjárhagsaðstoð og stöðu flóttafólks á Bifröst

Hlöðver Ingi Gunnarsson mætir til fundarins og fer yfir framlagt minnislað. Farið er yfir upplýsingar um stöðu verkefnisins á Bifröst, samræmdamóttöku flóttamanna, sem félagsmálastjóri hefur tekið saman.



Byggðarráð þakkar Hlöðveri fyrir góða yfirferð.



Lagt fram til kynningar.



11. Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2026
2603269

Fundargerð og fylgigögn framlögð

Fylgiskjöl


12. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga föstudaginn 21. ágúst 2026
2608129

Lagt fram aðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga ásamt fylgigögnum

Framlagt aðalfundarboð samtaka orkuveitarfélaga, sveitarstjóra falið að mæta á aðalfundinn þann 21. ágúst nk.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:15