Fundargerð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
4. fundur
10. september 2026 kl. 16:00 - 17:16
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um afbrigði frá útsendri dagskrá. Samþykkt var samhljóða að fella eftirtalin þrjú mál út af dagskrá: mál nr. 2609062, Ljóspuntur ehf. Eignarhald og stjórnarkjör í kjölfar sameiningar, mál nr. 2607094, Ósk um tilnefningu í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands 2026?2030, og mál nr. 2606011, Kosning fjölmenningarráðs Borgarbyggðar 2026 -2030. Jafnframt var samþykkt samhljóða að taka inn á dagskrá með afbrigðum mál nr. 2609088, Fjallskil 2026-Fjallskilanefnd Kaldárbakka og Mýrdalsdéttar, og fundargerð Fjallskilanefndar Kaldárbakka og Mýrdalsréttar - 1
Dagskrá
1. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga 2026
Samþykkt samhljóða
2. Barnaverndarþjónusta Vesturlands
3. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni
Byggðarráð fagnar því að verkefnið sé að verða að veruleika og telur það mikið framfaraskref í þjónustu við börn með fatlanir og fjölskyldur þeirra.
Málinu vísað áfram til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða"
Sveitarstjórn fagnar því að verkefnið sé að komast á framkvæmdastig og telur það mikilvægt framfaraskref í þjónustu við fötluð börn og ungmenni og fjölskyldur þeirra. Slík þjónusta styrkir stuðningsúrræði í nærumhverfi barna og eykur möguleika fjölskyldna á að fá nauðsynlega hvíld og stuðning.
Sveitarstjórn lýsir jafnframt ánægju með það góða samstarf sem hefur verið um undirbúning verkefnisins og væntir þess að starfsemin geti hafið starfsemi sem fyrst til hagsbóta fyrir notendur þjónustunnar og samfélagið í heild.
Samþykkt samhljóða
SLE og SG taka til máls undir þessum lið.
4. Beiðni eigenda Hæls um að jörðin verði tekinn af afréttarskrá.
"Fjallskilanefnd Borgarbyggðar vísar í álits Umboðsmanns Alþingis í máli nr. 9305/2017 dags. 30. nóv. 2018, en þar segir:
Í úrskurði Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 16. mars 2017 var á því byggt að ákvæði síðari málsliðar 42.gr. laga nr. 6/1986 yrði ekki skilið á annan veg en þann að það, hvort á jörð væri einhver búrekstur eða ekki, skipti ekki máli varðandi álagningu samkvæmt því. Engu skipti hvort jörð væri nýtt til búreksturs eða ekki eða hvort jörðin nýtti afréttinn að einhverju leyti eða engu. Ég tel ekki tilefni til athugasemda við þessa niðurstöðu enda er hún í samræmi við það álit mitt frá 12. september 2000 í máli nr. 2638/1999 að heimildin til álagningar fjallskilagjalds tæki til þeirra sem ættu upprekstrarrétt á afrétt eða annað sameiginlegt sumarbeitiland sem fjallskilin tækju til. Þá skipti ekki máli hvort þessi réttur er nýttur eða ekki. Í tilvikum þeirra jarðareiganda sem ekki væru með bústofn og gætu því ekki nýtt þennan rétt sinn væri um að ræða geymdan rétt, ef svo mætti að orði komast. Rétturinn yrði virkur þegar stofnað væri til búfjárhalds á jörðinni."
Fjallskilanefnd Borgarbyggðar leggur til við sveitarstjórn að hafna fyrrgreindu erindi um að jörðinn Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá og leggur þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar.
Þann 5. mars 2026 var málið tekið til umfjöllunar hjá byggðarráði Borgarbyggðar sem bókaði:
"Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti afgreiðslu og rökstuðning Fjallskilanefndar Borgarbyggðar og leggur til við sveitarstjórn að hafna því erindi að jörðin Hæll í Flókadal verði tekin af afréttarskrá."
Þann 12. mars 2026 var málið tekið fyrir af sveitarstjórn Borgarbyggðar sem bókaði:
"Forseti leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar sveitarstjórnar í ljósi þess að málsbeiðendur hafa hug á að leggja fram frekari gögn og rök í málinu."
Þann 30. mars 2026 barst bréf frá lögmanni landeiganda þar sem landeigendur gerðu kröfu um að sveitarstjórn samþykki breytingu á stöðu jarðarinnar Hæls þannig að hún yrði tekin af afréttaskrá eða að öðrum kosti verði gerð undantekning frá þeim rétti. Auk þess er gerð krafa um að sveitarstjórn fresti endanlegri efnisafgreiðslu þar til fyrir liggur afrit af gildandi afréttaskrá, sundurliðun á kostnaðargrundvelli álagningar á jörðinni Hæl og afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort beita beri vægara úrræði á meðan á rannsókn máls stendur. Auk þess var gerð krafa um að rökstuðningur sveitarfélagsins uppfylli 22. gr. stjórnsýslulaga.
Bréfinu var svarað af hálfu sveitarfélagsins með bréfi dags. 23. júní 2026 þar sem farið var yfir af hálfu sveitarfélagsins til hvaða sjónarmiða þurfi að líta þegar beiðni af þessu tagi er afgreidd, sem og svar við öðrum beiðnum landeiganda. Byggði sveitarfélagið á ákvæðum Landsskipulagsstefnu, ákvæði stjórnarskrár um sjálfstjórn sveitarfélagsins og frjálsu mati þess þegar afgreiddar eru beiðnir af þessu tagi. Veittur var andmælaréttur við þeim sjónarmiðum sem fram komu í erindi sveitarfélagsins. Engin andmæli bárust frá landeiganda.
Samþykkt samhljóða
5. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
Lagt er til að Brynja Þorsteinsdóttir sé skipuð sem aðalmaður í hans stað.
Samþykkt samhljóða
6. Erindisbréf - Skipulags og byggingarnefnd
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
SLE og HBB taka til máls undir þessum lið
7. Ráðning skipulagsfulltrúa
Starf skipulagsfulltrúa var auglýst laust til umsóknar þann 7. júlí með umsóknarfresti til 21. júlí. Alls bárust sex umsóknir um starfið. Farið var yfir reynslu umsækjanda á þeim hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu og þekking þeirra og geta metin með auglýsinguna að leiðarljósi og með hliðsjón af lögboðnum hæfisskilyrðum 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að loknu heildstæðu hæfnismati er tillaga sveitarstjóra að Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir byggingarfræðingur, verði ráðin í starfið.
Staðfest er að Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir uppfyllir lögmælt hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga.
Sveitarstjóra er falið að ganga frá ráðningarsamningi við Ásgerði og senda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) formlega tilkynningu um ráðninguna í samræmi við 1. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Samþykkt samhljóða
HBB og SLE taka til máls undir þessum lið
8. Húsaleigusamningur Melabraut 4a
Samþykkt samhljóða
9. Aðalskipulag - Endurskoðun vegna sameiningar sveitarfélaga
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að hefja endurskoðun aðalskipulags hins sameinaða sveitarfélags skv. ákvæðum skipulagslaga nr.123/2010.
Nefndin lítur þannig á að við sameiningu sveitarfélaganna hafi orðið til ný stjórnsýslueining sem þarfnast sameiginlegrar og heildstæðrar stefnu um þróun byggðar og landnýtingar í nýstofnuðu sveitarfélagi. Núgildandi aðalskipulög voru unnin á mismunandi tímum, byggð á ólíkum forsendum og taka hvort um sig aðeins til þess landsvæðis sem tilheyrði fyrrum sveitarfélögum.
Jafnframt leggur skipulags- og byggingarnefnd til við sveitarstjórn að skipa vinnuhóp aðalskipulags með þátttöku kjörinna fulltrúa frá ólíkum svæðum sveitarfélagsins sem vinnur að heildstæðri stefnumörkun fyrir nýstofnað sveitarfélag.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn skipar eftirfarandi aðila í vinnuhóp um aðalskipulag:
Sonja Lind Eyglóardóttir
Jón E. Einarsson
Hermann B. Valsson
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
Bjarni Bequette
Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Sigurður Guðmundsson
Samþykkt samhljóða
10. Skorradalsvatn Kirkjuvaðstangi - ums?kn um framkv?mdarleyfi - 134057
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að taka til afgreiðslu framkvæmdaleyfi fyrir könnunarskurði á athafnarsvæði Andakílsárvirkjunar við stíflumannvirkin við Skorradalsvatn að undangenginni grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Kynnt verður fyrir hagsmunaaðilum í gegnum skipulagsgátt og öðrum lögbundnum umsagnaraðilum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða
11. Umsókn um deiliskipulag - Dagverðarnes 62-65, svæði 8
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
12. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
Samþykkt samhljóða."
Sveitarstjórn Borgarbyggð telur jafnframt að áhrif framkvæmdarinnar á landslag og ásýnd geti orðið veruleg. Vindmyllur af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru sýnilegar yfir stór landsvæði og geta haft áhrif á upplifun landslags, náttúru og útivistar langt út fyrir framkvæmdasvæðið sjálft. Sveitarfélagið telur að slík áhrif geti haft neikvæð áhrif á þá sérstöðu sem einkennir svæðið og liggur til grundvallar búsetu, útivist og ferðaþjónustu.
Þá bendir Borgarbyggð á að framkvæmdir af þessari stærðargráðu geti skapað ágreining milli ólíkra hagsmuna og haft áhrif á samfélagslega sátt. Mikilvægt sé að slíkt sé metið sérstaklega við ákvörðun um framtíð kostsins.
Með vísan til framangreindra sjónarmiða telur sveitarstjórn Borgarbyggðar að neikvæð samfélagsleg áhrif vindorkukostarins Alviðru kunni að vega þyngra en sá ávinningur sem af honum kann að hljótast. Sveitarfélagið leggst því gegn því að kosturinn verði settur í nýtingarflokk á þessu stigi og telur að frekari greiningar og mat þurfi að liggja fyrir áður en slík ákvörðun verður tekin.
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ljúka við umsögn og senda til
Faghóps 3 í rammaáætlun.
Samþykkt samhljóð
13. Fjallskil 2026 - Fjallskilanefnd Álftaneshrepps
Samþykkt samhljóða.
14. Fjallskilaseðill 2026
Samþykkt samhljóða
15. Fjallskilaseðill 2026
Samþykkt samhljóða
16. Álagning fjallskila 2026
Samþykkt samhljóða
17. Álagning fjallskila 2026
Samþykkt samhljóða.
18. Fjallskil 2026 - Fjallskilanefnd Kaldárbakka- og Mýrdalsréttar
Samþykkt samhljóða
19. Tryggingar vegna náttúruhamfara
20. Byggðarráð Borgarbyggðar - 5
Fundargerð framlögð.
SG. leggur fram eftirfarandi bókun undir lið 20.5
Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af niðurstöðum úthlutana úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga samkvæmt nýju úthlutunarlíkani í kjölfar setningar laga nr. 56/2025. Verulegt misræmi er á milli fyrirliggjandi áhrifamats frumvarpsins, sem gerði ráð fyrir um 177,7 m.kr. tekjuaukningu fyrir A-hluta sveitarfélagsins, og raunverulegrar niðurstöðu sem felur í sér lækkun framlaga til Borgarbyggðar.
Sérstaklega er vakin athygli á því að hámarksregla um fjóra byggðakjarna og breytt skilgreining á kjörnum kemur mjög illa við víðfeðm og fjölkjarna sveitarfélög á borð við Borgarbyggð, auk þess að vinna gegn markmiðum um frekari sameiningar sveitarfélaga.
Í ljósi þessa samþykkir sveitarstjórn Borgarbyggðar að fela sveitarstjóra að senda formlegt erindi til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, með vísan til 1. mgr. 26. gr. laga nr. 55/1991 um þingsköp Alþingis, þar sem óskað er eftir því að nefndin taki til athugunar hvernig nýtt úthlutunarlíkan hefur reynst í framkvæmd og hvort lagabreytingin hafi náð tilætluðum markmiðum.
Samþykkt samhljóða
SG, SLE og UBK taka til máls undir þessu lið
20.1
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Fjóluklett 14 til Ieisha Shaliah Santez Oliver á grundvelli framlagðrar umsóknar.Samþykkt samhljóða
20.2
Hlöðver Ingi Gunnarsson mætir til fundarins og fer yfir framlagt minnislað. Farið er yfir upplýsingar um stöðu verkefnisins á Bifröst, samræmdamóttöku flóttamanna, sem félagsmálastjóri hefur tekið saman. Byggðarráð þakkar Hlöðveri fyrir góða yfirferð.Lagt fram til kynningar.
20.3
Fundargerð og fylgigögn framlögð
20.4
Framlagt aðalfundarboð samtaka orkuveitarfélaga, sveitarstjóra falið að mæta á aðalfundinn þann 21. ágúst nk. Samþykkt samhljóða.
20.5
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Sóltúni 15 til Guðrúnar Óskarsdóttur á grundvelli framlagðrar umsóknar en hafnar ósk um lækkun gatnagerðargjalda. Samkvæmt 5. gr. í gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Borgarbyggð á lækkun við um sérhæfðar byggingar en ekki íbúðarhús.Samþykkt samhljóða
20.6
Byggðarráð þakkar fulltrúum Fjallskilanefndar Þverrárréttar fyrir erindið. Byggðarráð tekur undir að mikilvægt sé að fara vel yfir þessi mál og vísar erindinu til frekari umfjöllunar í umhverfis og landbúnaðarnefnd. Samþykkt samhljóða
20.7
Farið er yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins frá janúar til maí 2026. Byggðarráð þakkar Sigðurði fyrir góða yfirferð.
20.8
Lagt er fram svar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við fyrirspurn sveitarfélagsins um framlög ársins 2026. Byggðaráð þakkar fyrir svör og skýringar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en telur að þær skýringar svari ekki meginálitaefni málsins, sem er hið verulega misræmi milli áhrifamats sem lagt var fram í tengslum við setningu laga nr. 56/2025 og þeirrar niðurstöðu sem virðist stefna í varðandi framlög Jöfnunarsjóðs til Borgarbyggðar.Í áhrifamati laganna var gert ráð fyrir að tekjur A-hluta Borgarbyggðar myndu aukast um 177,7 m.kr. vegna hins nýja úthlutunarlíkans, en nú liggur fyrir að framlög til sveitarfélagsins lækka milli áranna 2024 og 2026. Á sama tíma njóta flest sveitarfélög, sem borin eru saman, í minnisblaði fyrverandi sveitarstjóra, dags. 30. apríl sl. verulegra hækkana framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.Þrátt fyrir þær skýringar sem Jöfnunarsjóður hefur lagt fram, liggur ekki fyrir fullnægjandi greining á því hvers vegna framlag sjóðsins til Borgarbyggðar víkur svo verulega frá því sem áhrifamat laganna gaf tilefni til að ætla, né hvers vegna sveitarfélagið kemur mun verr út en flest þau sveitarfélög sem til samanburðar voru tekin. Byggðaráð bendir á að framlög Jöfnunarsjóðs námu 1.774 m.kr. árið 2025 og voru um 29,6% af skatttekjum A-hluta sveitarfélagsins. Með hliðsjón af rekstrarhalla A-hluta árið 2025 og fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins, geta jafnvel tiltölulega hóflegar breytingar á framlögum haft veruleg áhrif á rekstrarafkomu, lausafjárstöðu og getu sveitarfélagsins til að standa undir nauðsynlegri þjónustu og fjárfestingum. Byggðaráð telur mikilvægt að áfram verði unnið að ítarlegri greiningu á áhrifum hins nýja úthlutunarlíkans og að sveitarfélagið haldi áfram samtali við Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og innviðaráðuneytið með það að markmiði að fá skýrari og gagnsærri skýringar á þeim þáttum sem valda þessari niðurstöðu fyrir Borgarbyggð. Byggðaráð felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa um framvindu þess eftir því sem þeirri vinnu framvindur.Samþykkt samhljóða
20.9
Byggðarráð fékk kynningu á áformum um vígsluathöfn fyrir nýtt fjölnota íþróttahús og yfirlit yfir þær tillögur sem bárust í nafnasamkeppni. Byggðarráð leggur til að ráðgefandi könnun verði lögð fyrir íbúa á heimasíðu sveitarfélagsins um endalegt val á nafni. Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta framkvæma íbúakönnun þar sem valið verður á milli eftirfarinna nafna: BorginSkallinnBrákFjaranHamarinnHlaðanSamþykkt samhljóða
20.10
Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir hér með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð samtals kr. 600.000.000,- með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar á endanlegum lánasamningi. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.Er lánið tekið til að greiða upp skammtíma framkvæmdalán hjá sjóðnum sem tekið var til að fjármagna endurbyggingu grunnskóla sveitarfélagsins á Kleppjárnsreykjum og til byggingar fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi.Jafnframt er Unni Brá Konráðsdóttur, sveitarstjóra, kt. 060474-5839, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að undirrita, f.h. Borgarbyggðar, lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun lána. Afgreiðsla þessi verði lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar. Málið kemur inn að nýju þegar endanleg skjöl liggja fyrir.Samþykkt samhljóða
20.11
Byggðaráð samþykkir að vinna við örnefnaskráningu í Skorradal verði kláruð og samþykkir jafnframt samning þess efnis. Kostnaður við verkefnið er áætlaður 750.000 auk VSK. og verður að taka tillit til þessa kostnaðar við gerð viðauka við fjárhagsáætlun.Tengiliður sveitarfélagsins vegna verkefnisins verður sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs. Samþykkt samhljóða.
20.12
Hlöðver Ingi Gunnarsson mætir til fundarins og fer yfir framlagt minnislað.Byggðarráðs samþykkir fyrir sitt leyti að greiðslur fyrir bakvaktir verði í samræmi við önnur sveitarfélög og taki mið af kjarasamingum. Ekki er þörf fyrir viðauka þar sem stöðugildi í barnavernd hafa ekki verið fullnýtt það sem af er ári. Miðað er við að fyrirkomulagið hafi hafist 1.júlí 2026 þar sem tafir hafa orðið að að klára málið. Samþykkt samhljóðaÞórður Brynjarsson vek af fundi eftir þennan dagskrálið
21. Byggðarráð Borgarbyggðar - 6
21.1
Samningurinn hefur farið í gegnum tvær umræður í sveitarstjórn og hafa nú sveitarfélögin á Snæfellsnesi gert hið sama. Þá er sú vegferð loks í höfn sem lagt var upp með. Borgarbyggð verður nú leiðandi sveitarfélag fyrir sveitarfélögin öll á Snæfellsnesi en Borgarbyggð hefur verið í því hlutverki gagnvart Hvalfjarðarsveit í nokkur ár. Hér eftir verður því talað um Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Byggðarráð fagnar þeim áfanga að samstarfið getur formlega hafist og hefur miklar væntingar til þess að samstarfið efli barnavendarþjónustu fyrir öll sveitarfélögin sem tilheyra samstarfinu.Samþykkt samhljóða
21.2
Byggðarráð felur sveitarstjóra að útbúa viðauka við gildandi leigusamning vegna leiguhúsnæðisins að Melabraut 4a, þar sem leigufjárhæð verði endurreiknuð miðað við réttan fermetrafjölda húsnæðisins. Einnig verði uppsagnarfrestur lengdur úr 18 mánuðum í 24 mánuði. Viðaukinn verði lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar.Samþykkt samhljóða.
21.3
Byggðarráð þakkar Sæmundi Óskarssyni byggingarfulltrúa fyrir góða yfirferð. Ljóst er að mikil vinna er í gangi og framundan við að vinna úr byggingarmálum í Skorradal.
21.4
Framlögð beiðni sóknarnefndar Reykholtsóknar um styrk til lagfæringar á vegi ásamt kosnaðaráætlun vegna verksins. Sveitarstjóra falið að kanna hvort og þá með hvaða hætti sveitarfélagið kemur að lagfæringu á aðkomu að kirkjugörðum. Samþykkt samhljóða.
21.5
Framlögð beiðni sóknarnefndar Norðtungukirkju um styrk til að fjármagna kaup og niðursetningu á tveimur pípuhliðum. Sveitarstjóra falið að kanna hvort og þá með hvaða hætti sveitarfélagið getur orðið við beiðni sóknarnefndar Norðtungukirkju. Samþykkt samhljóða.
21.6
Fundargerð framlög
21.7
Framlagt svarbréf sveitarstjóra vegna svarbréfs frá innviðaráðuneytinu og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 14. ágúst 2026.
22. Byggðarráð Borgarbyggðar - 7
22.1
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að kostnaðarskiptingu vegna Holts. Vonir standa til að starfsemin geti hafið störf fljótlega eftir áramót. Byggðarráð fagnar því að verkefnið sé að verða að veruleika og telur það mikið framfaraskref í þjónustu við börn með fatlanir og fjölskyldur þeirra.Málinu vísað áfram til sveitarstjórnar til staðfestingar.Samþykkt samhljóða
22.2
Byggðarráð þakkar þeim Hlyni Ólafssyni og Ottó Ólafssyni fyrir góða yfirferð.
22.3
Sundurliðuð kostnaðaráætlun, verklýsing og gögn er varða umferðaöryggi framlögð og byggðarráð felur sveitarstjóra að taka tilboði Sigurgarða. Sveitarstjóra falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun þar sem gerð er grein fyrir tilfærslu á milli liða.Samþykkt samhljóða.
22.4
Byggðarráð þakkar fyrir upplýsingarnar
22.5
Framlagður verksamning við Borgarverk vegna Melabrautar byggðarráð felur sveitarstjóra að rita undir verksamninginn.Byggðarráð felur sveitarstjóra að láta gera viðauka vegna kostnaðar við verkið. Samþykkt samhljóða.
22.6
Lagt er til að fjölnota íþróttahúsið, Hlaðan, sé opinn frá 6:00 til 21:30 á virkum dögum en 9:00 til 17:30 um helgar. Lagt er til að ganga til samninga við Sólar ehf um þrif á húsnæðinu eins og aðrar stofnanir í Borgarbyggð.Samþykkt samhljóða.
22.7
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að selja hlut Borgarbyggðar í vatnsveitu Hraunhrepps til óstofnaðs einkahlutafélags í eigu notenda. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.Samþykkt samhljóða
22.8
Byggðarráð samþykkir að fella niður leigu vegna afnota af Þinghamri. Samþykkt samhljóða.
22.9
Framlög beiðni Landbúnaðarsafns Íslands um styrk. Byggðarráð vísar erindinu til umræðu við fjárhagsáætlunargerð ársins 2027.Samþykkt samhljóða.
23. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 1
REJ tekur til máls undir þessum lið
23.1
Lagt fram til kynningar.
23.2
Nýtt erindisbréf fyrir fjölskyldunefnd lagt fram til kynningar.
23.3
Eftirfarandi reglur og gjaldskrár eru lagar fram til samþykktar.Samþykkt samhljóð.
23.4
Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram út frá umræðum á fundinum og kynna á næsta fundi nefndarinnar.Samþykkt samhljóða.
24. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 1
REJ tekur til máls undir þessum lið
24.1
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
24.2
Lagt fram til kynningar.
24.3
Lagt fram til kynningar nýtt erindisbréf fjölskyldunefndar Borgarbyggðar.
24.4
Velferðarnefnd veitir félagsmálastjóra umboð til að undirbúa ákveðnar breytingar er fela í sér aukna samvinnu við Brákarhlíð. Eru slíkar breytingar í takt við hugmyndafræðina sem er að baki Gott að eldast, auk þess sem slíkt mun auka hagræðingu innan málaflokksins.
24.5
Lagt fram til kynningar.
25. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 2
HBV tekur til mál undir þessum dagskrálið
25.1
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindisbréf skipulags- og byggingarnarnefndar.Samþykkt samhljóða.
25.2
Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er talsvert umfram gildandi deiliskipulag. Auk þess bendir nefndin á að samkvæmt Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skuli eldri deiliskipulög endurskoðuð eftir atvikum svo þau samræmist lögum og reglugerðum.Deiliskipulagið sem í gildi er á svæðinu er að mati nefndar orðið úrelt og fer fram á að landeigandi uppfæri skipulag svæðisins.Samþykkt samhljóða.
25.3
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur byggingafulltrúa að gefa út stöðuleyfi. Samþykkt samhljóða.
25.4
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera drög að svari við erindinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir sveitastjórn.Samþykkt samhljóða.
25.5
25.6
25.7
25.8
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að hefja endurskoðun aðalskipulags hins sameinaða sveitarfélags skv. ákvæðum skipulagslaga nr.123/2010.Nefndin lítur þannig á að við sameiningu sveitarfélaganna hafi orðið til ný stjórnsýslueining sem þarfnast sameiginlegrar og heildstæðrar stefnu um þróun byggðar og landnýtingar í nýstofnuðu sveitarfélagi. Núgildandi aðalskipulög voru unnin á mismunandi tímum, byggð á ólíkum forsendum og taka hvort um sig aðeins til þess landsvæðis sem tilheyrði fyrrum sveitarfélögum.Jafnframt leggur skipulags- og byggingarnefnd til við sveitarstjórn að skipa vinnuhóp aðalskipulags með þátttöku kjörinna fulltrúa frá ólíkum svæðum sveitarfélagsins sem vinnur að heildstæðri stefnumörkun fyrir nýstofnað sveitarfélag.Samþykkt samhljóða.
25.9
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindi RARIK um strengvæðingu til styrkingar raforkukerfisins í Borgarnesi en bendir á að sækja þurfi um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdarinnar með viðeigandi fylgigögnum, áður en framkvæmdir hefjast.Bent er á að ef framkvæmdin snertir svæði sem njóta verndar samkvæmt lögum þarf að fara með málið samkvæmt þeim reglum sem um slík svæði gilda.Samþykkt samhljóða.
25.10
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið en bendir jafnframt á að gerð var fornrannsókn á Granastöðum í júlí 2005 sem segir að gera þurfi ítarlegri rannsókn á svæðinu til að fá úr því skorið hvort þarna séu fornminjar. Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að fá úr því skorið hjá Minjastofnun Íslands hvort heimilt sé að veita framkvæmdaleyfi á því svæði sem umsókn nær til. Jafnframt felur nefndin skipulagsfulltrúa að fá úr því skorið hvar sé heimilt að framkvæma án þess að hætta sé á að fornleifar raskist.Samþykkt samhljóða.
25.11
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að taka til afgreiðslu framkvæmdaleyfi fyrir könnunarskurði á athafnarsvæði Andakílsárvirkjunar við stíflumannvirkin við Skorradalsvatn að undangenginni grenndarkynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga 123/2010. Kynnt verður fyrir hagsmunaaðilum í gegnum skipulagsgátt og öðrum lögbundnum umsagnaraðilum.Samþykkt samhljóða.
25.12
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Dagverðarnes 62-65, svæði 8. Lagður er fram uppdráttur dags. 17.04.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.
25.13
Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að samkvæmt Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 segir að forðast skuli að byggja stök hús á víðavangi og að byggja skuli í tengslum við bæjartorfur. Heimilt er að byggja til fastrar búsetu á landi sem að jafnaði er 3 ha eða stærra. Heimilt er að byggja eitt íbúðarhús og gestahús, auk bygginga til landbúnaðarnota.Í ljósi þess felur nefndin byggingafulltrúa að yfirfara þær byggingar sem fyrir eru á jörðinni áður en byggingaleyfi er veitt.Samþykkt samhljóða.
25.14
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Jötunheim, Hraunbæjar og Birkihrauns 7,8 og 9.Nefndin bendir á að deiliskipuleggja þurfi svæðið áður en af frekari uppbyggingu verður.Samþykkt samhljóða.
25.15
Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að samkvæmt Aðalskipulagi Borgarbyggðar er lögð áhersla á að frístundabyggð sé deiliskipulögð í heild áður en til uppbyggingar kemur.Að mati nefndarinnar þarf að vinna nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í heild þannig að unnt sé að meta áhrif breytinganna á landnotkun, byggðarmynstur, innviði, umferð, þjónustu og umhverfi áður en afstaða er tekin til frekari uppbyggingar.Samþykkt samhljóða.
26. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd - 3
KÁM og SLE taka til máls undir þessum lið
26.1
Niðurstöður verða kynntar á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar í október og verða þá verlaun afhent.
26.2
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að senda inn erindi til Sorpurðunar Vesturlands um mögulegt svæði undir gámaplan að Fíflholtum. Umhverfisfulltrúa er einnig falið að kanna hvaða möguleikar eru fyrir hendi gagnvart svæði í uppsveitum Borgarfjarðar. Nefndin stefnir á ferð í Skeiða- og Gnúpverjahrepp að skoða nýja brennslu fyrir dýraleifar sem tekinn var í notkun nýlega.
26.3
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til að haldið verði óbreyttu fyrirkomulagi á söfnun rúlluplast að svo stöddu.
26.4
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd þakkar fjallskilanefndar Þverárréttar fyrir erindið. Nefndin leggur til að erindið sem snýr að endurbyggingu hesthús í Gilsbakkaseli verði tekið til umfjöllunar við gerð fjárfestingaráætlunar. Einnig telur nefndin brýnt að fjárhagsstaða fjallskiladeilda verði tekin til skoðunar við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár.
27. Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 1
Fundargerð framlögð
28. Fjallskilanefnd Oddsstaðaréttar - 2
29. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 1
30. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 3
31. Fjallskilanefnd Brekku - og Svignaskarðsréttar - 1
32. Fjallskilanefnd Brekku - og Svignaskarðsréttar - 2
32.1
Álagning á kind 850 kr.Dagsverk metið á kr. 15.000,-Lagt á 1234 vetrarfóðraðar kindur. Gengið frá fjallskilaseðli.
33. Fjallskilanefnd Grímsstaðaréttar - 2
34. Fjallskilanefnd Hítardalsréttar - 2
35. Fjallskilanefnd Hítardalsréttar - 1
36. Fjallskilanefnd Kaldárbakka - og Mýrdalsréttar - 1
36.1
Formaður var kjörinn Ásbjörn Pálsson og varaformaður Þórður Gíslason. Ritari Sigrún Ólafsdóttir.
36.2
Dagsverkin eru 66 og 79 kindur í dagsverkinu. Fjallskilagjald pr. kind er kr. 317.- Heildarfjöldi kinda 5245.Ákveðið var að dagsverkið yrði metið á kr. 25.000.-Fjallskilanefnd leggur til við sveitastjórn að sé dagsverk ekki innt af hendi greiði viðkomandi dagsverkið með 50% álagi.
36.3
Fjallskilanefnd hefur ákveðið að flýta fyrri Mýrdalsrétt og verður hún sunnudaginn 20 september kl. 16.00