Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2026
2601286
Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk.
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
2. Farsældarráð Vesturlands
2509076
Farsældarráð Vesturlands mótar aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem byggir á stefnu stjórnvalda um farsæld barna, niðurstöðum farsældarþings og stöðumats á Vesturlandi. Áætlunin skal endurspegla svæðisbundar áskoranir og tækifæri og skilgreina skýr markmið, aðgerðir, tímaramma, mælikvarða um árangur og ábyrgðaraðila. Gert er ráð fyrir tveimur kjörnum fulltrúum, tveimur til vara og einum stjórnanda frá Borgarbyggð og er því óskað eftir tilnefningum inn í ráðið.
Velferðarnefnd leggur til að Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Sonja Lind Eyglóardóttir séu tilnefndar sem aðalmenn og Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Tinna Rut Þórarinsdóttir séu tilnefndar sem varamenn í Farsældarráð Vesturlands. Lagt er til að Erla Björg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri komi inn sem starfsmaður á vegum sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða. Velferðarnefnd vísar erindi til sveitastjórnar til staðfestingar.
3. Samræmd móttaka flóttafólks
2303023
Lögð fram til kynningar samantekt þar sem teknar hafa verið saman fyrirliggjandi upplýsingar um fjölda flóttafólks sem valdi tímabundið á Bifröst árið 2023 og þróun málaflokksins frá því að Borgarbyggð hóf samræmda móttöku í desember árið 2023. Markmið með samantektinni er að varpa ljósi á umfang þjónustunnar, þróun á fjölda þeirra sem eru í samræmdri móttöku og hverjar eru helstu þjónustuþarfir hópsins í sveitarfélaginu.
Velferðarnefnd þakkar fyrir góða yfirferð á málaflokknum í sveitarfélaginu.
4. Samningar um samræmda móttöku flóttafólks - ósk um framlengingu samnings
2609150
Í erindi frá Félags-og húsnæðismálaráðuneyti kemur fram að núgildandi samningur sveitarfélaga um samræmda móttöku eru að renna út um næstu áramót. Slíkar breytingar þurfi að vinna í nánu samstarfi við sveitarfélög og aðra hlutaðeigandi aðila, og ljóst að breytinga á þjónustukerfum geti ekki komið að fullu til framkvæmda fyrr en á síðari hluta árs 2027. Því er óskað eftir að núgildandi samningur um samræmda móttöku verði framlengdur til ársloka 2027.
Á 272. sveitarstjórnarfundi Borgarbyggðar, þann 11.12.25 var samþykkt að samþykkj aviðauka við þjónustusaming um samræmda móttöku flóttafólks sem fæli í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 180 einstaklingum í 140. Var það samþykkt samhljóða.
Líkt og Velferðarnefnd hefur verið upplýst um þá er fjöldi þeirra sem eru í samræmdri móttöku um 46 einstaklingar. Því er lagt til að verði samþykkt áframhald á samræmdri móttöku að samningur verði lækkaður enn frekar. Lagt er til, sé vilji til að samningur um samræmda móttöku verði framlengdur, að hann telji ekki fleiri en 40 flóttamenn.
Velferðarnefnd leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðstoð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varðar hækkun greiðslna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2 ár.
5. Stöðugildi á fjölskyldusviði 2027
2606323
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Hlöðver Gunnarsson, kynnir áætlun um stöðugildi fyrir árið 2027. Áætlunin er liður í undirbúningi fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.
Máli er frestað fram á næsta fund velferðarnefnar.
6. Barnaverndarþjónusta Vesturlands
2608172
Á 171. fundi velferðarnefndar þann 12. maí 2026 var tekið fyrir erindi frá sveitastjóra Dalabyggðar þar sem óskað var eftir formlegri aðild Dalabyggðar að Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Í framhaldi af umfjöllun nefndarinnar var félagsmálastjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við sveitastjóra Dalabyggðar. Sú vinna hefur nú farið fram og eru hér lögð fram til kynningar drög að kostnaðarlíkani, ásamt frekari skilyrðum sem félagsmálastjóri telur mikilvægt að Dalabyggð uppfylli. Markmið þeirra skilyrða er að tryggja að barnaverndarþjónustan byggi á sömu faglegu kröfum og rekstarlegum forsendum og hefur verið.
Borgarbyggð fagnar því að Dalabyggð hafi sýnt því áhuga á að koma í Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd leggur áherslu á að samningurinn feli ekki í sér viðbótarkostnað fyrir Borgarbyggð og það sé skýrt að Dalabyggð komi inn í samstarfið á sama grunni og önnur sveitarfélög. Því er ekki veitt umboð til að semja á öðrum grunni. Lögð er áhersla á að lágmarkskostnaður sem Dalabyggð þarf að greiða er óumsemjanlegur enda þykir ljóst að aukið álag fylgi því að vera leiðandi sveitarfélag í barnaverndarþjónustu. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagt tilboð.