Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

81. fundur

30. september 2026 kl. 09:00 - 00:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Ásgerður H Hafsteinsdóttir - skipulagsfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Ásgerður Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Fyrirspurn um skipulagsmál
2607152

Lögð er fram umsókn RARIK ohf. um heimild til plægingar rafstrengja í jörð frá Vatnshömrum að Borgarfjarðarbrú. Umsókn tekur til framkvæmda verkefnisins utan friðlands Andakíls. Sex 33 kV strengir verða plægðir niður í einu plógfari. Við plægingu er notast við plógvél og aðrar vinnuvélar sem hefur nægilegt flot, spyrnu og togkraft til þess að komist sé hjá því að spilla að óþörfu yfirborði landsins. Strengirnir fara niður á um 90 cm dýpi og er landið skorið með skurðarhjóli áður en plógurinn fer í gegn en þannig er komið í veg fyrir að yfirborð dragist við plægingu. Jarðvegur leggst að strengnum um leið og hann kemur út úr strengrennu sem er aftan við plóginn. Eiginlegt rask vegna framkvæmdarinnar á aðallega við um plógförin tvö sem hvort um sig verða um 30-40 cm á breidd. Heildarumfang svæðis sem kann að raskast takmarkast þó við breidd gröfunnar sem sér um plæginguna en gera má ráð fyrir að það sé um 2-3 m breitt svæði. Með góðum undirbúningu og vali réttum vinnutækjum má halda því í lágmarki. Strax að plægingu lokinni er keyrt yfir farið með belti til að loka því.

Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 þar sem horft verði til þess að leggja hásepnnustrengi í jörðu.

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, metur að umrædd framkvæmd falli ekki undir reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem plæging rafstrengja í jörð hafi óveruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess. Framkvæmdin er háð samþykki landeigenda. Heimild til framkvæmdar verður send málsaðilum þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.

Plæging innan friðlandsins er háð framkvæmdaleyfi.

Skipulagsfulltrúi bendir á að leyfisveitandi meti í hverju tilfelli fyrir sig hvort framkvæmdir séu háðar framkvæmdaleyfi skv. 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.



Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 00:00