Byggðarráð Borgarbyggðar

9. fundur

1. október 2026 kl. 08:15 - 10:45

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic - áheyrnarfulltrúi
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur

Í upphafi fundar var lagt til að taka inn með afbrigðum mál nr. 2610001, verður það mál nr. 3. á dagskrá. Var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá

1. Fjárhagsáætlun 2027
2606271

Undirbúningur fjárhagsáætlunar 2027 Sigurður Kristjánsson fjármálastjóri var gestur fundarins undir þessum lið og fór yfir stöðu vinnunnar.

Byggðarráð þakkar Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra fyrir yfirferðina og greinargóða kynningu á stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2027.



Með vísan til nýsamþykktrar ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 25. september sl, lýsir byggðarráð yfir vilja sínum til að taka virkan þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktunina samþykkir byggðarráð að við gerð fjárhagsáætlunar 2027 verði almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins haldið innan 2,5% ramma að því gefnu að ríkið geri slíkt hið sama.



Byggðarráð tekur heils hugar undir áherslur landsþingsins um nauðsyn þess að ríkisvaldið og stofnanir þess sýni sams konar samfélagslega ábyrgð og takmarki hækkanir á eigin gjaldskrám og álögum sem snerta heimilin. Þá áréttar ráðið mikilvægi þess að ríkið tryggi fulla og raunhæfa fjármögnun allra lögbundinna verkefna og nýrra skyldna sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar.



Byggðarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjórum að haga áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2027 í samræmi við framangreind viðmið.



Samþykkt samhljóða.



2. Uppbyggingin innviða
2609142

Fulltrúar frá Veitum koma til fundar og ræða uppbyggingu innviða og lykilforsendur áframhaldandi vaxtar samfélagsins og verðmætasköpun á næstu árum.

Byggðarráð fagnar frumkvæði Veitna að samtali um framtíðaruppbyggingu veitukerfa og innviða. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja rekstar- og afhendingaröryggi og innviðafjárfestingar sem styðja við vöxt sveitarfélagsins og atvinnulífs.



Byggðarráð þakkar mjög góða yfirferð um framtíðauppbyggingaráform Veitna.



3. Áform um breytingu á skipan löggæsluembætta á landinu
2610001

Kynnt áform dómsmálaráðherra varðandi fækkun og sameiningu lögregluembætta á landsbyggðinni, þar á meðal niðurlagningu embættis lögreglustjórans á Vesturlandi.

Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Áformin ganga þvert gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og fela í sér enn eitt skrefið í átt til miðstýringar þar sem ákvörðunarvald er fært burt frá því fólki sem það varðar.

Löggæsla er eitt af grunnhlutverkum ríkisins. Íbúar landsbyggðarinnar greiða sína skatta til jafns við aðra landsmenn og eiga skýlausan rétt á því að ríkið sinni þessu kjarnaverkefni af festu og í nálægð við þá.

Hið nýja embætti næði yfir stóran hluta landsins, frá Vesturlandi um Vestfirði og allt Norðurland. Vesturland á fátt sameiginlegt með því svæði hvað varðar samgöngur, þjónustusókn og samstarf. Stærra bákn er ekki sama og betri þjónusta. Engin rök hafa verið færð fyrir því að löggæsla á Vesturlandi verði betri með því að stýra henni frá Akureyri eða að löggæsla á Norðurlandi verði betri ef henni verður stýrt frá Ísafirði.

Fullyrðingar um að starfsstöðvum fækki ekki og að aðstoðarlögreglustjórar verði í hverju umdæmi eru haldlitlar. Aðstoðarlögreglustjóri fer ekki með það vald sem lögreglustjóri hefur. Forgangsröðun, fjárveitingar og stefnumótun færast fjær íbúum, og reynslan af sameiningum ríkisstofnana sýnir að þegar yfirstjórn flyst burt fylgja störf og þjónusta á eftir. Íbúar á Vesturlandi hafa séð þá þróun áður og láta ekki bjóða sér hana aftur.

Byggðarráð krefst þess að lagt verði fram raunhæft mat á kostnaði og ávinningi breytinganna. Hagræðing sem byggist á því að flytja vald frá landsbyggðinni án þess að sýnt sé fram á betri þjónustu eða betri nýtingu almannafjár er engin hagræðing.

Byggðarráð krefst þess að dómsmálaráðherra falli frá áformum um að færa yfirstjórn löggæslu á Vesturlandi úr landshlutanum og hafi raunverulegt samráð við sveitarfélög á Vesturlandi áður en lengra er haldið.



Samþykkt samhljóða



4. Starfsmannamál 2026
2606026

Lagt er fram til kynningar og afgreiðslu trúnaðarminnisblað, dags. 22. september 2026.

Bókað var í trúnaðarbók



5. Beiðni um tilnefningu í starfshóp um framfærslu aldraðs flóttafólks frá Úkraínu.
2609200

Lagt er fram erindi frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dags. 21.09.2026, þar sem óskað er eftir að Borgarbyggð tilnefni einn aðalfulltrúa og einn til vara í starfshóp um framfærslu aldraðs flóttafólks frá Úkraínu sem dvalið hefur á Íslandi í tvö ár eða lengur.

Byggðarráð samþykkir að tilnefna Unni Brá Konráðsdóttur sem aðalfulltrúa Borgarbyggðar í starfshópinn og Hlöðver Inga Gunnarsson til vara, með vísan til 2. mgr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.



Sveitarstjóra er falið að koma tilnefningunni á framfæri við ráðuneytið ásamt umbeðnum upplýsingum.



Samþykkt samhljóða





6. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að fara yfir efni frumvarpsins, meta áhrif þess á hagsmuni sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



7. Umsagnarmál frá Alþingi 2026
2601170

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál

Lagt fram



8. Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Varmalækjarvegar af vegaskrá
2609229

Framlagt bréf Vegagerðarinnar dags. 15. september 2026 um fyrirhugaða niðurfellingu Varmalækjarvegar af vegaskrá sökum þess að við hann á enginn lögheimili lengur.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Bjarnastaðaveg (5209-01) st. 30-140 af vegaskrá
2609304

Framlagt bréf Vegagerðarinnar dags. 24. september 2026 um fyrirhugaða niðurfellingu Bjarnastaðavegs af vegaskrá sökum þess að samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er ekki lengur lögheimili og föst búseta að Bjarnastöðum 1.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. Fundagerðir Orkuveitu Reykjavíkur 2026.
2604039

Framlagðar fundargerðir Orkuveitu Reykjavíkur.

Fundargerðir framlagðar

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:45