Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar

3. fundur

2. október 2026 kl. 08:30 - 10:00

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Hermann B. Valsson - formaður
Svana Hrönn Jóhannsdóttir - varaformaður
Bjarni Rúnar Bequette - aðalmaður
Hafsteinn Ingi Gunnarsson - aðalmaður
Davíð Sigurðsson - aðalmaður

Starfsmenn

Ásgerður H Hafsteinsdóttir - skipulagsfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Elfar Már Ólafsson - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgerður H. Hafsteinsdóttir - Verkefnastjóri


Dagskrá

1. Langholt og Stafholtsey - Merkjalýsing landamerkja
2609224

Lögð er fram ósk um staðfestingu landamerkja annarsvegar á milli jarðanna Langholts (L133895) og hinsvegar Stafholtseyjar 1 (L133914) og Stafholtseyjar 2 (L133916) í Borgarbyggð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Merkin eru skv. þinglýstum landamerkjabréfum og afsölum og á skilgreindu landbúnaðarsvæði L6 í aðalskipulagi.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta fyrir sitt leyti ofangreind landamerki þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.



2. Indriðastaðir Dyrholt - Umsókn um stofnun lóða
2608249

Lögð er fram ósk um stofnun átta nýrra lóða

Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr landi Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) í Borgarbyggð. Indriðastaðir - Dyrholt minnkar sem því nemur og verður 24.582 fm.

Fyrir breytingu eru fimm mannvirki á Indriðastöðum - Dyrholti sem eru eftirfarandi gistihús (mhl-01), gistihús (mhl-02), gistihús (mhl-03), gistihús (mhl-04) og snyrting (mhl-05).

Eftir breytingu færist

gistihús (mhl-01) á Indriðastaði - Dyrholt 9,

gistihús (mhl-02) á Indriðastaði - Dyrholt 11,

gistihús (mhl-03) á Indriðastaði - Dyrholt 13

gistihús (mhl-04) á Indriðastaði - Dyrholt 15

en snyrting (mhl-05) verður áfram á Indriðastaðir Dyrholt.

Deiliskipulag er á svæðinu og samræmist merkjalýsing þessi því deiliskipulagi.

Svæðið er skilgreint sem Frístundabyggð F1 í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna

Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm

Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.

Samþykkt samhljóða



3. Hvítárholt 3 - Umsókn um stofnun lóða
2606076

Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Hvítárholt 3 úr landi Hvítárholts 2 (L225402) í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L3) í aðalskipulagi. Lóðin er 900 fm að stærð. Aðkoma nýju fasteignarinnar er frá Ferjubakkavegi nr. 530 og heimreið sem liggur í gegnum Hvítárholt 2.

Samkvæmt landbúnaðarkafla aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 er unnt að heimila þrjár byggingarlóðir samtals fyrir íbúðarhús eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags. Ef jörð er skipt fylgja ekki þessar heimildir, nema jarðarhlutar séu að lágmarki 20 ha hvor/hver og neðan 300 m.y.s.

Hvítárholt 2 er stofnað úr jörðinni Hvítárholt og er 19,7 ha. Þ.a.l fylgja heimildir um byggingarlóðir Hvítárholts ekki.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að gert verði deiliskipulag á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.





4. Helgastaðaland - umsókn um stofnun lóða - 135999
2604003

Lögð er fram ósk um afmörkun og breytingu á stærð lóðar Helgastaðalandi (L136000) úr landi Helgastaða (L135999). Tvö mannvirki eru á lóðinni, sumarbústaður og geymsla (F2112413). Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Stærð lóðar breytist úr 2.500 fm í 9.050 fm. Stækkunin kemur úr landi Helgastaða (L135999) og minnkar landið sem því nemur. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði (L2) í aðalskipulagi Borgarbyggðar. Lóðin er skráð sumarbústaðarland.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun lóðarinnar Helgastaðaland (L136000) úr 2.500 fm í 9.050 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.



5. Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
2603029

Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Brekkukot í Borgarbyggð (L134386). Deiliskipulagssvæðið er 20 ha að stærð og deilir landamerkjum með lóð Fells og jörðum Hurðarbaks, Deildartungu og Grófar. Fyrirhugað er að útbúa 6 lóðir fyrir íbúðarhús til viðbótar við eitt íbúðarhús sem fyrir er nú þegar á Brekkuhvammi (L178781). Aðkoma yrði um núverandi veg að Brekkuhvammi frá Borgarfjarðarbraut. Gert er ráð fyrir að tvær vegleiðir sem nýttar hafa verið sem aðkoma að lóðum Fells og Hlíðarkletts verði felldar niður og varanleg aðkoma að þeim lóðum verði leyst utan skipulagssvæðisins. Heimilt verði þó að nýta nyrðri vegtenginguna með þeirri kvöð að sú heimild falli niður við næstu endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar. Deiliskipulagið er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Brekkukot (L134386). Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 28.05.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



6. Umsókn um deiliskipulag - Lambalækjarflöt
2607036

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hálsabyggð er varðar Lambalækjarflöt. Breytingin felur í sér breytingar á skipulagsskilmálum og skipulagsuppdrætti. Tilefni breytingarinnar er að fyrirhugað er að stofna lóð utan um hverfið Lambalækjarflöt auk þess sem afmörkun lóða við Lambalækjarflöt er uppfærð.



Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint sem lanbúnaðarland en verður skilgreint sem frístundabyggð í endurskoðun aðalskipulags. Hönnuður er á lista Skipulagsstofnunar um samþykkta ráðgjafa.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 31.08.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



7. Fyrirspurn um skipulagsmál
2609306

Lagt er fram erindi frá Davíð Kristján Pitt fyrir hönd landeiganda að Langárfoss í Borgarbyggð. Þar sem óskað er eftir afstöðu sveitafélagsins varðandi hugmyndir landeigenda um nýtingu jarðarinnar.



Áhugi er hjá eigendum að skipta jörðinni upp að hluta. Markmiðið væri að taka út landspildur sem yrðu gerðar að séreignarlandi hver fyrir sig og að landspildurnar væru að mismunandi stærðum eða frá um 9 -100 he. Setja niður byggingarreit á hverja spildu/jörð sem gefa möguleika á að byggja aðalhús ásamt gestahúsi, vinnustofu, hlöðu og útivistarsvæði. Byggingarreitir eigi að vera þannig staðsettir að væntanlegar byggingar væru í skjóli fyrir nærliggjandi lóðum og frá þjóðveginum en hefðu góð útsýni.

Landið sem um ræðir liggur annarsvegar syðst á jörðinni og hinsvegar nyrst. Landslag á svæðinu er fjölbreytt en þar eru klettar, flatlendi, mýrar og tún. Við Langá fellur landið nokkuð niður og er þar bakki. Ekki er gert ráð fyrir að landspildur nái niður að Langá né Urriðaá til að tryggja gögnuleiðir meðfram ánni.



Jörðin er skilgreind í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 sem landbúnaðarland.

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í hugmyndir landeigenda og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við landeigendur um næstu skref.

Samþykkt samhljóða.



8. Skorradalsvatn Kirkjuvaðstangi - umskn um framkvmdarleyfi - 134057
2608061

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 2 þann 4. september var lagt til við sveitarstjórn að samþykkja afgreiðslu framkvæmdaleyfis fyrir könnunarskurði á athafnarsvæði Andakílsvirkjunar.

Við skoðun gagna kom í ljós að sú framkvæmd sem sótt er um heimild fyrir í þessum áfanga verkefnisins telst ekki framkvæmdaleyfisskyld þar sem einungis er um að ræða litla könnunarskurði sem breyta ekki né hafa áhrif á ásýnd umhverfisins skv. 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Fyllt verður uppí skurðstæðin að könnun lokinni og gróðurtorfur lagðar ofan á við yfirborðsfrágang.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fallið verði frá fyrri bókun um að gefa skuli út framkvæmdaleyfi fyrir könnunarskurðum en bendir á að ef fara á í gerð fiskvegar á sama svæði skuli sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.



9. Ákvörðun um stöðvun framkvæmda
2609313

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 2 þann 4. september 2026 tók nefndin jákvætt í fyrirspurn RARIK varðandi strengvæðingu til styrkingar raforkukerfisins í Borgarnesi en benti á að sækja þyrfti um framkvæmdaleyfi. Nefndin benti einnig á að framkvæmdin snertir svæði sem njóta verndar og samkvæmt lögum þarf að fara með málið samkvæmt þeim reglum sem um slík svæði gilda.

Skipulagsfulltrúa barst ábending fimmtudaginn 24. september 2026 þess efnis að framkvæmdir væru hafnar án framkvæmdaleyfis og ákvað því að stöðva framkvæmdir á plægingu rafstrengja í jörðu frá Vatnshömrum að Borgarfjarðarbrú og kalla eftir frekari gögnum skv. 6. mgr. 2. gr. samþykktar um stjórn Borgarbyggðar.

Skipulagsfulltrúi bendir á að skv. 8. gr. auglýsingar um verndun búsvæða fugla í Andakíl þurfi leyfi Borgarbyggðar til framkvæmda á hinu friðlýsta svæði.

Skipulags- og byggingarnefnd staðfestir ákvörðun skipulagsfulltrúa um að stöðva framkvæmdir sem hafnar eru

án framkvæmdaleyfis skv. 5. mgr. 6. gr. samþykktar um stjórn Borgarbyggðar.

Samþykkt samhljóða.



10. Fyrirspurn um skipulagsmál
2607152

Lögð er fram umsókn RARIK ohf. um framkvæmdaleyfi vegna plægingar rafstrengja í jörð frá Vatnshömrum að Borgarfjarðarbrú.

Umsókn um framkvæmdaleyfi tekur til framkvæmda verkefnisins innan friðlands Andakíls.



Sex 33 kV strengir verða plægðir niður í einu plógfari.

Við plægingu er notast við plógvél og aðrar vinnuvélar sem hefur nægilegt flot, spyrnu og togkraft til þess að komist sé hjá því að spilla að óþörfu yfirborði landsins. Strengirnir fara niður á um 90 cm dýpi og er landið skorið með skurðarhjóli áður en plógurinn fer í gegn en þannig er komið í veg fyrir að yfirborð dragist við plægingu. Jarðvegur leggst að strengnum um leið og hann kemur út úr strengrennu sem er aftan við plóginn.

Eiginlegt rask vegna framkvæmdarinnar á aðallega við um plógförin tvö sem hvort um sig verða um 30-40 cm á breidd. Heildarumfang svæðis sem kann að raskast takmarkast þó við breidd gröfunnar sem sér um plæginguna en gera má ráð fyrir að það sé um 2-3 m breitt svæði.

Með góðum undirbúningu og vali réttum vinnutækjum má halda því í lágmarki. Strax að plægingu lokinni er keyrt yfir farið með belti til að loka því.

Í 8. gr. auglýsingar um friðlýsingu Andakíls segir að leyfi Umhverfisstofnunar og Borgarbyggðar þurfi til framkvæmda á hinu friðlýsta svæði þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum náttúruminjum.

Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 þar sem horft verði til þess að leggja hásepnnustrengi í jörðu.

Meðfylgjandi eru umsagnir Lands og skógar, Minjastofnunar og veiðifélags Andakílsár ásamt lagnaleyfum frá Vegagerðinni.

Lagnaleiðin er sýnd á uppdrætti á loftmynd.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar heimild Umhverfisstofnunar fyrir framkvæmdinni liggur fyrir.

Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða.



11. Fyrirspurn um skipulagsmál
2511318

Lögð er fram umsókn RARIK ohf. um framkvæmdaleyfi vegna plægingar rafstrengja í jörð frá Vatnshömrum að Hvítá.

Umsókn um framkvæmdaleyfi tekur til framkvæmda verkefnisins innan friðlands Andakíls.



Jarðýta verður notuð við plægingu á strengnum. Strengkeflin verða á plógýtunni og/eða á öðru tæki framan við plógýtuna. Beltagrafa verður notuð til að fylgja jarðýtunni og lagfæra ummerki og lágmarka álag og gróður. Tæki verða lekaskoðuð og

hreinsuð áður en þau fara inn á svæðið. 2-4 starfsmenn vinna að þessari plægingu auk þess sem að starfsmaður RARIK kemur til með að sinna verkeftirliti. Áætlaður verktími innan friðlandsins er í kringum 14 dagar. Engin mannvirki verða sett upp innan friðlýsta svæðisins vegna framkvæmdanna.

Fyrri áætlun hljóðaði einnig uppá þverun Hvítár en fallið hefur verið frá þeirri áætlun og er því nú áætlað að skipta um núverandi loftlínu yfir Hvítá.

Í 8. gr. auglýsingar um friðlýsingu Andakíls segir að leyfi Umhverfisstofnunar og Borgarbyggðar þurfi til framkvæmda á hinu friðlýsta svæði þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum náttúruminjum.

Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 þar sem horft verði til þess að leggja háspennustrengi í jörðu.

Meðfylgjandi er heimild Náttúrufræðistofnunar fyrir framkvæmdinni ásamt lagnaleið á loftmynd.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



12. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80
2609006F

12.1
2508095
Selásar 8 - umsókn um stofnun lóða - L178157
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að afmörkuð verði 3.000 fm lóð, Selásar 8,úr upprunalandinu Munaðarnes L134915 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn Sumarbústaðaland. Stærð lóðarinnar er í samræmi við deiliskipulag svæðisins en afmörkun samræmist ekki.Skipulagsfulltrúi bendir á að uppfæra þarf deiliskipulag svæðisins til samræmis við afmarkanir lóða innan svæðis.

12.2
2606072
Gunnlaugsstaðir - Umsókn um stofnun lóða
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 2.993 fm lóð, Gunnlaugsstaðir 1,úr upprunalandinu Gunnlaugsstaðir L134867 þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Lóðin fer í notkunarflokkinn íbúðarhúsalóð.

12.3
2607031
Miðháls 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi bendir á að fyrirhuguð byggingaráform eru umfram heimildir í deiliskipulagi svæðisins. Gera þurfi breytingu á deiliskipulagi.

12.4
2606079
Súluklettur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, heimilar byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu byggingaráform þar sem grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

12.5
2407181
Fauskás 3 - umsókn um deiliskipulag - F2334325
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi.Málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

12.6
2609033
Grímsstaðir - umsókn um framkvæmdarleyfi - 135927
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 80

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna gerðar malarplans með vísan til framlagðra gagna að undangengnu samþykki Vegagerðarinnar fyrir vegtengingu inn á plan frá Grímsstaðavegi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



13. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 81
2609048F

13.1
2607152
Fyrirspurn um skipulagsmál
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 81

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, metur að umrædd framkvæmd falli ekki undir reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem plæging rafstrengja í jörð hafi óveruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess. Framkvæmdin er háð samþykki landeigenda. Heimild til framkvæmdar verður send málsaðilum þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.Plæging innan friðlandsins er háð framkvæmdaleyfi.Skipulagsfulltrúi bendir á að leyfisveitandi meti í hverju tilfelli fyrir sig hvort framkvæmdir séu háðar framkvæmdaleyfi skv. 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.



14. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264
2609042F

14.1
2607051
Stóraborg 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264

Gestahúsið er stærra en deiliskipulag heimilar. Sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi.

14.2
2312020
Fauskás 3 L205405 - Umsókn um byggingarleyfi_frístundahús
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð. Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð. Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt: - Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni. - Leyfisgjöld hafa verið greidd.

14.3
2609136
Indriðastaðir 27 - Umsókn um stöðuleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264

Samþykkt

14.4
2609028
Hvanneyri fráveitustöð - Umsókn um stöðuleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264

Samþykkt

14.5
2608271
Digranesgata 6 - Umsókn um stöðuleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 264

Samþykkt.Tryggja þarf að matarvagnin sé innan lóðar Digranesgötu 6 í samráði við lóðarhafa og hafi ekki áhrif á núverandi umferð innan svæðisins.Málsaðili þarf að tryggja að vagninn sé tryggilega frágenginn með tilliti til veðurs og vinda.



Fundi slitið - kl. 10:00