Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
4. fundur
6. október 2026 kl. 08:30 - 12:00
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Sigrún Ólafsdóttir - aðalmaður
Þórður Brynjarsson - aðalmaður
Þorsteinn Eyþórsson - varaformaður
Kristján Ágúst Magnússon - formaður
Jón E. Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
Logi Sigurðsson - umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
Íma Fönn Hlynsdóttir - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Logi Sigurðsson - Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1. Umhverfisviðurkenningar 2026
2606217
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026 veittar.
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:
Snyrtilegt bændabýli 2026: Staðarhús
Falleg lóð við íbúðarhúsnæði: Hálsar í Skorradal
Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði: Gleymmérei
Sérstök viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi: Ytri Skeljabrekka
Samfélagsviðurkenning umhverfis-og landbúnaðarnefndar: Gísli Einarsson
2. Hreinsunarátök 2026
2602275
Farið yfir innsend tilboð í söfnun brotajárns.
Í samræmi við afgreiðslu á 3. fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar fór fram verðfyrirspurn um söfnun brotajárns. 3 tilboð bárust. Hagstæðasta tilboðið barst frá Hringrás. Umhverfis- og landbúnaðarnefnd leggur til við byggðarráð að fela starfsmanni að ganga til samninga við Hringrás, að uppfylltum skilmálum, á grundvelli þess.
Áætlað er að söfnunin fari fram undir lok október og nóvember.
3. Netalagnir við Borgarnes
2505100
Lagt er fram minnisblað starfsmanns varðandi réttarstöðu og framtíðarfyrirkomulag silunganetalagna í netlögum Borgarbyggðar í Borgarnesi. Tilefnið er erindi um ósk nýs aðila um að taka við nýtingu á netalögn nr. 9, heildarendurskoðun á fimm samningum sveitarfélagsins frá maí 2012, og formlegt svarbréf atvinnuvegaráðuneytisins dags. 29. maí 2026. Í áliti ráðuneytisins kemur fram að aðskilnaður eða ráðstöfun á netaveiðirétti í sjó til einstaklinga sé óheimill án sérstakrar undanþágu ráðherra að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 61/2006. Lagðir eru fram valkostir um heildaruppsögn samninga, eða stöðumat og umsókn um ráðherraundanþágu samhliða gagnaöflun frá Fiskistofu og Veiðifélagi Hvítár.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn, minnisblað starfsmanns og lögfræðings, og svarbréf atvinnuvegaráðuneytisins dags. 29. maí 2026 varðandi réttarstöðu netalagna í Borgarnesi.
Með vísan til skýrra ákvæða samnings um netalögn nr. 9 frá 14. maí 2012 um óframseljanleika nýtingarréttar, og álits atvinnuvegaráðuneytisins um að óheimilt sé að skilja netaveiðirétt frá fasteign án undanþágu ráðherra skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði, hafnar nefndin ósk um beint framsal eða yfirtöku nýs aðila á samningi um lögnina.
Með vísan til endurskoðunarákvæðis samninganna frá 2012, þeirrar réttaróvissu sem ríkir um heimild til aðskilnaðar netaveiðiréttinda án ráðherraundanþágu, og með hliðsjón af sjónarmiðum um fiskvernd og jafnræði, samþykkir nefndin að sækja um undanþágu ráðherra fyrir veiðum.
4. Umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2026
2609221
Val á hugmyndum að umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2026.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram í samræmi við hugmyndir nefndarinnar og senda inn umsóknir.
5. Rennslismælingar fyri vatnsöflun Vatnsveitu Varmalands
2609303
Farið yfir minnisblað frá Verkís um mögulega vatnsöflun fyrir Vatnsveitu Varmalands.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd vísar málinu til vinnu við fjárfestingar- og fjárhagsáætlun.
6. Hundagerði í Borgarnesi
2609248
Farið yfir mögulega staðsetningu á nýju hundagerði í Borgarnesi.
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd felur umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram.
Fundi slitið - kl. 12:00