Fundargerð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
5. fundur
7. október 2026 kl. 16:30 - 18:45
í fundarsal að Digranesgötu 2
Nefndarmenn
Starfsmenn
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir því að taka inn með afbrigðum tvær fundargerðir sem koma þá inn sem dagskrárliðir 21. og 27. eru það mál nr. 2609045F, fundargerð Byggðarráðs nr. 9, verður það mál nr. 21 og mál nr. 2609040F, fundargerð fræðslunefndar nr. 2. verður mál nr. 27.
Var það samþykkt samhljóða
Dagskrá
1. Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
Samþykkt samhljóða
2. Fimm mánaða uppgjör Borgarbyggðar 2026
Rekstrarniðurstaða A hluta Borgarbyggðar eftir fyrstu fimm mánuði ársins er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu eru að framlög frá jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun einnig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útsvarstekjur hafa aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum.
Byggðarráð benti á að staðan kalli á aukið aðhald og viðeigandi aðgerðir í rekstri á síðari hluta ársins.
Til máls tóku, DS
Samþykkt samhljóða
3. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Tillagan felur líka í sér breytingar á tekjum. Útsvarstekjur hækki um 254 m.kr. Framlög jöfnunarsjóðs v/fasteignaskatts fellur niður , kr. 300 m.kr. Framlag jöfnunarsjóðs vegna málaefna fatlaðra hækkar um 141 m.kr. og framlög vegna sameiningar koma ný inn kr. 126 m.kr. Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hækkar um 46 m.kr. og framlög vegna aksturs grunnskólabarna í dreifbýli hækkar um 38 m.kr. Styrkir til sveitarfélagsins frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar lækkar um 305 m.kr. Engin áhrif eru af tekjubreytingum í viðaukanum á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026.
Samþykkt samhljóða
4. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Samþykkt samhljóða
5. Siðareglur kjörinna fulltrúa Borgarbyggðar 2026
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
6. Vallarás - hönnun og framkvæmdir
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt samkomulag við Veitur ohf. og felur sveitarstjóra undirritun þess með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
Byggðarráð vekur athygli á því að heildarkostnaður framkvæmdarinnar fer fram úr samþykktri áætlun. Þar sem lokafrágangsreikningar liggja ekki endanlega fyrir felur byggðarráð sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 jafnskjótt og endanlegt lokauppgjör liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða"
Samþykkt samhljóða
7. Fjallskil 2026 - Fjallskilanefnd Rausgilsréttar
Breitingar milli ára:
Heiðarleit 1 færð frá Brekkukoti yfir á Skáney.
Heiðaleit 1 færð frá Deildartungu yfir á Hofsstaði."
Samþykkt samhljóða
8. Kosning í ráð og nefndir 2026 - 2030
Tillagan var samþykkt samhljóða
Til máls tóku, HÞH, SLE, SG, UBK, DS, HBV, JP
Forseti sveitarstjórnar óskaði eftir því að Sigurður Guðmundsson varaforseti sveitarstjórnar myndi taka við fundarstjórn
9. Reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Lögð er fram afgreiðsla af 1. fundi fræðslunefndar frá 18. ágúst 2026, þar sem eftirfarandi reglur og gjaldskrár voru samþykktar samhljóða:
Gjaldskrá fyrir mötuneyti í grunnskólum Borgarfjarðar
Gjaldskrá íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð 2026
Gjaldskrá leikskóla Borgarbyggðar
Gjaldskrá fyrir frístundastarf í Borgarbyggð
Gjaldskrá Listaskóla Borgarfjarðar
Reglur um frístundastyrk fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð
Skólastefna Borgarbyggðar
Verklagsreglur fyrir leikskóla Borgarbyggðar
Reglur Borgarbyggðar um skólaakstur í grunnskóla
Jafnframt felur sveitarstjórn fræðslunefnd að vinna að heildarendurskoðun og uppfærslu gjaldskránna í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar og leggja nýjar tillögur fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Samþykkt samhljóða
10. Reglur og gjaldskrár í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Lögð er fram afgreiðsla af 1. fundi velferðanefndar frá 18. ágúst 2026, þar sem eftirfarandi reglur og gjaldskrár voru lagðar fram til kynningar:
Gjaldskrá fyrir Fjölskyldusvið Borgarbyggðar
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Reglur um akstursþjónustu eldri borgara
Reglur um styrki til náms-, verkfæra- og tækjakaupa
Reglur um stuðnings- og stoðþjónustu hjá Borgarbyggð
Reglur um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Reglur um úthlutun félagslegra ibúða
Reglur Borgarbyggdar um veitingu fjárstyrks vegna lögmannstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002
Reglur Borgarbyggðar um fjárhagsaðstoð
Jafnframt felur sveitarstjórn velferðarnefnd að vinna að heildarendurskoðun og uppfærslu gjaldskránna í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar og leggja nýjar tillögur fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Samþykkt samhljóða
11. Erindisbréf fyrir fulltrúa í raflínunefnd
Til máls tóku, ÞB, SG, HÞH, DS
Samþykkt samhljóða
12. Starfshópur um rekstur og umbætur
Til máls tóku, HÞH, SG
Samþykkt samhljóða
13. Málefni Brákareyjar
Til máls tóku, SLE, SG, HBV, DS
14. Umsókn um deiliskipulag - Lambalækjarflöt
Samþykkt samhljóða."
Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er svæðið skilgreint sem landbúnaðarland en verður skilgreint sem frístundabyggð í endurskoðun aðalskipulags.
Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða
Til máls tók, HBV
15. Brekkukot - umsókn um deiliskipulag - L134386
Samþykkt samhljóða."
Sveitarstjórn áréttar að á auglýsingatíma verði sérstaklega óskað eftir umsögnum Vegagerðarinnar og leitað samráðs við aðliggjandi landeigendur m.a. vegna aðkomu að Felli og Hlíðarkletti, með það að markmiði að tryggja aðkomu og umferðaröryggi til frambúðar áður en kemur að endanlegri afgreiðslu skipulagsins.
Samþykkt samhljóða
Til máls tók HBV
16. Helgastaðaland - umsókn um stofnun lóða - 135999
Samþykkt samhljóða"
Samþykkt samhljóða
17. Indriðastaðir Dyrholt - Umsókn um stofnun lóða
"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna
Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm
Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.
Samþykkt samhljóða "
Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fm Indriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fm Indriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fm Indriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fm Indriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.
Samþykkt samhljóða.
18. Langholt og Stafholtsey - Merkjalýsing landamerkja
Samþykkt samhljóða."
Samþykkt samhljóða
19. Starfsmannamál 2026
20. Byggðarráð Borgarbyggðar - 8
20.1
Byggðarráð hefur farið yfir Árshlutareikning Borgarbyggðar og Skorradalshrepps 31. maí 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Rekstrarniðurstaða A hluta Borgarbyggðar eftir fyrstu fimm mánuði ársins er neikvæð um 287 milljónir á móti 56 milljóna tapi í áætlun. Þeir liðir sem hafa mest áhrif á lakari afkomu er að framlög frá jöfnunarsjóði eru 150 milljónum undir áætlun einnig eru aðrar tekjur 135 milljónum undir áætlun, en útvarpstekjur hafa aukist um 84 milljónir. Gjöld eru undir áætlun sem nemur 53 milljónum, fjármagnskostnaður er 40 milljónum yfir áætlun. Þetta skilar því að niðurstaðan er 231 milljónum undir áætlunum. Þessi niðurstaða kallar á aukið rekstraraðhald og markvissa eftirfylgni með útgjöldum. Byggðarráð leggur áherslu á að við áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingar verði gætt að ábyrgri skuldastýringu og að allar framkvæmda og rekstrarákvarðanir taki mið af fjárhagslegu bolmagni sveitarfélagsins til lengri tíma. Ráðið telur mikilvægt að gripið verði til viðeigandi aðgerða til að bæta afkomu og styrkja rekstrarstöðu sveitarfélagsins á síðari hluta ársins.Samþykkt samhljóða.
20.2
Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til leigugjalda af eigin húsnæði alls 241,7 m.kr. Hækkunin er tilkomin vegna uppreiknings á leigu sem tekur tillit til framkvæmda á árinu 2025. Stærstu breytingarnar eru vegna Grunnskóla Borgarfjarðar 84 m.kr. og Knatthúss í Borgarnesi 124,8 m.kr. Á móti hækka húsaleigutekjur sveitarfélagsins vegna eigin húsnæðis um 222 mkr. Mismunur 19,3 m.kr. er tilkominn vegna skekkju í upphaflegri áætlun 2026 sem er hér leiðrétt. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 19,3 m.kr. Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
20.3
Lögð fram til kynningar endanleg lánsskjöl vegna láns hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð samtals kr. 600.000.000,-, sem samþykkt voru á 4. fundi sveitarstjórnar þann 10. september sl.Lagt fram til kynningar
20.4
Fundargerð framlögð
20.5
Fundargerð framlögð
20.6
Fundargerð framlögð
20.7
Siðareglur fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar kynntar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga. Byggðarráð samþykkir framlaðar siðareglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
20.8
Byggðarráð lýsir yfir þungum áhyggjum af því mikla misræmi sem er á milli upphaflegs áhrifamats laga nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem gerði ráð fyrir 177,7 m.kr. tekjuaukningu, og þeirrar verulegu lækkunar framlaga sem nú blasir við sveitarfélaginu.Byggðarráð telur ljóst að forsendur og útreikningar hins nýja líkans, einkum hámarksregla um fjölda byggðakjarna og breytt tímaviðmið við tekjumælingar, rýri rekstrargrundvöll víðfeðmra og fjölkjarna sveitarfélaga í andstöðu við markmið laganna. Byggðarráð áréttar erindi sveitarfélagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 11. september 2026 og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.Samþykkt samhljóða
20.9
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi verkefnistillögu og áætlaðan kostnað vegna hennar að fjárhæð 1.521.600-1.902.000 kr. án vsk. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi við Strategíu og fylgja verkefninu eftir.Samþykkt samhljóða.
20.10
Lagt er til að reglulegur fundur byggðarráðs sem átti að fara fram fimmtudaginn 24. september nk. falli niður vegna landsþings sambands íslenskra sveitarfélaga sem fer fram sama dag. samþykkt samhljóða.
20.11
Byggðarráð samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar fari fram 7. október næstkomandi og hefjist kl. 16.30.Samþykkt samhljóða.
20.12
Byggðarráð þakkar Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og tekur jákvætt í erindið, sem styður vel við markmið sveitarfélagsins sem heilsueflandi samfélags. Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fram tillögu að samningi við krabbameinsfélagið og leggja fyrir aftur. Samþykkt samhljóða.
20.13
Lagt fram minnisblað starfsmanns, dags. 16. september 2026, yfirlit Verkís hf., dags. 26. ágúst 2026, og samkomulag við Veitur ohf., dags. 31. ágúst 2026, um færslu lagna vegna framkvæmda við Vallarás 8-10 og safngötu. Hlynur Ólafsson og Ottó Ólafsson koma til fundar og fara yfir minnisblöðin. Byggðarráð þakkar fyrir góða yfirferð.Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt samkomulag við Veitur ohf. og felur sveitarstjóra undirritun þess með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð vekur athygli á því að heildarkostnaður framkvæmdarinnar fer fram úr samþykktri áætlun. Þar sem lokafrágangsreikningar liggja ekki endanlega fyrir felur byggðarráð sveitarstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 jafnskjótt og endanlegt lokauppgjör liggur fyrir.Samþykkt samhljóða
20.14
Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VI. Tillagan felur í sér hækkun fjárheimildar til vaxtagjalda af skammtímaskuldum að fjárhæð 51 m.kr., vaxtagjalda af langtímaskuldum að fjárhæð 57 m.kr., verðbóta af langtímaskuldum að fjárhæð 93 m.kr og afskrifta af eignum að fjárhæð 97 m.kr. Tillagan felur einnig í sér 10,5 m.kr. hækkun fjárheimildar til hýsingar tölvukerfis en Borgarbyggð gerði nýjan samning við Advania þess efnis í júlí sl. . Ennfremur felur tillagan í sér lækkun fjárheimildar vegna fjárhagsaðstoðar, nemur sú lækkun 209,6 m.kr. Samtals leiðir viðaukinn til hækkunar á rekstrarkostnaði Borgarbyggðar 2026 um allt að 98,9 m.kr. Tillagan felur líka í sér breytingar á tekjum. Útsvarstekjur hækki um 254 m.kr. Framlög jöfnunarsjóðs v/fasteignaskatts fellur niður , kr. 300 m.kr. Framlag jöfnunarsjóðs vegna málaefna fatlaðra hækkar um 141 m.kr. og framlög vegna sameiningar koma ný inn kr. 126 m.kr. Framlög vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða hækkar um 46 m.kr. og framlög vegna aksturs grunnskólabarna í dreifbýli hækkar um 38 m.kr. Styrkir til sveitarfélagsins frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar lækkar um 305 m.kr. Engin áhrif eru af tekjubreytingum í viðaukanum á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026.Samþykkt samhljóða og vísað til fullnaðarafgreiðslu í sveitarstjórn.
21. Byggðarráð Borgarbyggðar - 9
21.1
Byggðarráð þakkar Sigurði Kristjánssyni fjármálastjóra fyrir yfirferðina og greinargóða kynningu á stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2027.Með vísan til nýsamþykktrar ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 25. september sl, lýsir byggðarráð yfir vilja sínum til að taka virkan þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktunina samþykkir byggðarráð að við gerð fjárhagsáætlunar 2027 verði almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins haldið innan 2,5% ramma að því gefnu að ríkið geri slíkt hið sama.Byggðarráð tekur heils hugar undir áherslur landsþingsins um nauðsyn þess að ríkisvaldið og stofnanir þess sýni sams konar samfélagslega ábyrgð og takmarki hækkanir á eigin gjaldskrám og álögum sem snerta heimilin. Þá áréttar ráðið mikilvægi þess að ríkið tryggi fulla og raunhæfa fjármögnun allra lögbundinna verkefna og nýrra skyldna sem sveitarfélögum eru lagðar á herðar.Byggðarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjórum að haga áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2027 í samræmi við framangreind viðmið.Samþykkt samhljóða.
21.2
Fundargerðir framlagðar
21.3
Byggðarráð fagnar frumkvæði Veitna að samtali um framtíðaruppbyggingu veitukerfa og innviða. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja rekstar- og afhendingaröryggi og innviðafjárfestingar sem styðja við vöxt sveitarfélagsins og atvinnulífs.Byggðarráð þakkar mjög góða yfirferð um framtíðauppbyggingaráform Veitna.
21.4
Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Áformin ganga þvert gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og fela í sér enn eitt skrefið í átt til miðstýringar þar sem ákvörðunarvald er fært burt frá því fólki sem það varðar.Löggæsla er eitt af grunnhlutverkum ríkisins. Íbúar landsbyggðarinnar greiða sína skatta til jafns við aðra landsmenn og eiga skýlausan rétt á því að ríkið sinni þessu kjarnaverkefni af festu og í nálægð við þá. Hið nýja embætti næði yfir stóran hluta landsins, frá Vesturlandi um Vestfirði og allt Norðurland. Vesturland á fátt sameiginlegt með því svæði hvað varðar samgöngur, þjónustusókn og samstarf. Stærra bákn er ekki sama og betri þjónusta. Engin rök hafa verið færð fyrir því að löggæsla á Vesturlandi verði betri með því að stýra henni frá Akureyri eða að löggæsla á Norðurlandi verði betri ef henni verður stýrt frá Ísafirði.Fullyrðingar um að starfsstöðvum fækki ekki og að aðstoðarlögreglustjórar verði í hverju umdæmi eru haldlitlar. Aðstoðarlögreglustjóri fer ekki með það vald sem lögreglustjóri hefur. Forgangsröðun, fjárveitingar og stefnumótun færast fjær íbúum, og reynslan af sameiningum ríkisstofnana sýnir að þegar yfirstjórn flyst burt fylgja störf og þjónusta á eftir. Íbúar á Vesturlandi hafa séð þá þróun áður og láta ekki bjóða sér hana aftur.Byggðarráð krefst þess að lagt verði fram raunhæft mat á kostnaði og ávinningi breytinganna. Hagræðing sem byggist á því að flytja vald frá landsbyggðinni án þess að sýnt sé fram á betri þjónustu eða betri nýtingu almannafjár er engin hagræðing.Byggðarráð krefst þess að dómsmálaráðherra falli frá áformum um að færa yfirstjórn löggæslu á Vesturlandi úr landshlutanum og hafi raunverulegt samráð við sveitarfélög á Vesturlandi áður en lengra er haldið.Samþykkt samhljóða
21.5
Bókað var í trúnaðarbók
21.6
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Unni Brá Konráðsdóttur sem aðalfulltrúa Borgarbyggðar í starfshópinn og Hlöðver Inga Gunnarsson til vara, með vísan til 2. mgr. 28. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.Sveitarstjóra er falið að koma tilnefningunni á framfæri við ráðuneytið ásamt umbeðnum upplýsingum.Samþykkt samhljóða
21.7
Byggðarráð felur sveitarstjóra að fara yfir efni frumvarpsins, meta áhrif þess á hagsmuni sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða
21.8
Lagt fram
21.9
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina. Samþykkt samhljóða
21.10
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.Samþykkt samhljóða.
22. Fjallskilanefnd Þverárréttar - 2
22.1
Heildar kostnaður við smölun og réttir er 4.849.250,- Sem gerir 850 krónur pr. kindHeildar fjallskil verða gerð upp í nóvember.
22.2
Nefndin sammælist um að fá áheyrn Byggðarráðs fljótlega eftir sumarfrí og ræða málefni upprekstrarfélagsins.
23. Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar - 3
Til máls tók HBV
23.1
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfesta fyrir sitt leyti ofangreind landamerki þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Samþykkt samhljóða.
23.2
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar heimild Umhverfisstofnunar fyrir framkvæmdinni liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir.Samþykkt samhljóða.
23.3
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna plægingar jarðstrengja í jörðu innan friðlands Andakíls á grundvelli framlagðra gagna þegar samþykki landeiganda þeirra jarða sem framkvæmdin nær yfir liggur fyrir. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.Samþykkt samhljóða.
23.4
23.5
23.6
23.7
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðanna Indriðastaðir - Dyrholt 1, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 3, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 5, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 7, stærð: 5.352 fmIndriðastaðir - Dyrholt 9, stærð: 6.008 fmIndriðastaðir - Dyrholt 11, stærð: 6.000 fmIndriðastaðir - Dyrholt 13, stærð: 6.000 fmIndriðastaðir - Dyrholt 15, stærð: 6.000 fm úr upprunalandinu Indriðastaðir - Dyrholt (L197707) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.Ný stofnaðar lóðir fara í notkunarflokkinn sumarbústaðalóðir en Indriðastaðir - Dyrholt fer í notkunarflokkinn annað land.Samþykkt samhljóða
23.8
Samkvæmt landbúnaðarkafla aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 er unnt að heimila þrjár byggingarlóðir samtals fyrir íbúðarhús eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags. Ef jörð er skipt fylgja ekki þessar heimildir, nema jarðarhlutar séu að lágmarki 20 ha hvor/hver og neðan 300 m.y.s.Hvítárholt 2 er stofnað úr jörðinni Hvítárholt og er 19,7 ha. Þ.a.l fylgja heimildir um byggingarlóðir Hvítárholts ekki. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að gert verði deiliskipulag á svæðinu.Samþykkt samhljóða.
23.9
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun lóðarinnar Helgastaðaland (L136000) úr 2.500 fm í 9.050 fm þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.
23.10
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Brekkukot (L134386). Lagður er fram uppdráttur og greinargerð dags. 28.05.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.
23.11
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi til auglýsingar. Lagður var fram uppdráttur dags. 31.08.2026. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða.
23.12
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í hugmyndir landeigenda og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við landeigendur um næstu skref.Samþykkt samhljóða.
23.13
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fallið verði frá fyrri bókun um að gefa skuli út framkvæmdaleyfi fyrir könnunarskurðum en bendir á að ef fara á í gerð fiskvegar á sama svæði skuli sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.
23.14
Skipulags- og byggingarnefnd staðfestir ákvörðun skipulagsfulltrúa um að stöðva framkvæmdir sem hafnar eruán framkvæmdaleyfis skv. 5. mgr. 6. gr. samþykktar um stjórn Borgarbyggðar.Samþykkt samhljóða.
24. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 1
24.1
Verða eftirfarandi:Ingimundur Jónsson formaðurÍris Þ. Ármannsdóttir ritariKolberinn Magnússon
25. Fjallskilanefnd Rauðsgilsréttar - 2
25.1
Fjárgjöld kr. 850,- á kind. Dagsverk metið á kr. 21.000,- og fæðiskostnaður kr. 10.000,-Breitingar milli ára:Heiðarleit 1 færð frá Brekkukoti yfir á Skáney.Heiðaleit 1 færð frá Deildartungu yfir á Hofsstaði.
26. Velferðarnefnd Borgarbyggðar - 2
Til máls tók REJ
26.1
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
26.2
Velferðarnefnd leggur til að Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Sonja Lind Eyglóardóttir séu tilnefndar sem aðalmenn og Svana Hrönn Jóhannsdóttir og Tinna Rut Þórarinsdóttir séu tilnefndar sem varamenn í Farsældarráð Vesturlands. Lagt er til að Erla Björg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri komi inn sem starfsmaður á vegum sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða. Velferðarnefnd vísar erindi til sveitastjórnar til staðfestingar.
26.3
Velferðarnefnd þakkar fyrir góða yfirferð á málaflokknum í sveitarfélaginu.
26.4
Velferðarnefnd leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðstoð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varðar hækkun greiðslna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2 ár.
26.5
Máli er frestað fram á næsta fund velferðarnefnar.
26.6
Borgarbyggð fagnar því að Dalabyggð hafi sýnt því áhuga á að koma í Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd leggur áherslu á að samningurinn feli ekki í sér viðbótarkostnað fyrir Borgarbyggð og það sé skýrt að Dalabyggð komi inn í samstarfið á sama grunni og önnur sveitarfélög. Því er ekki veitt umboð til að semja á öðrum grunni. Lögð er áhersla á að lágmarkskostnaður sem Dalabyggð þarf að greiða er óumsemjanlegur enda þykir ljóst að aukið álag fylgi því að vera leiðandi sveitarfélag í barnaverndarþjónustu. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagt tilboð.
27. Fræðslunefnd Borgarbyggðar - 2
Til máls tók REJ
27.1
Lagt fram til kynningar.
27.2
Lagt fram til kynningar.
27.3
Fræðslunefnd þakkar Sólrúnu Höllu fyrir góða kynningu og óskar henni velfarðnaðar í starfi. Samþykkt samhljóða.
27.4
Fræðslunefnd samþykkir framlagða tillögu frá Klettaborg og Andabæ. Samþykkt samhljóða.
27.5
Lagt fram til kynningar.
27.6
Fræðslunefnda þakkar Knattspyrnudeild Skallagríms fyrir erindið. Því miður er ekki hægt að samþykkja erindið að svo stöddu því það rúmast ekki innan þeirra fjárheimilda sem sveitarfélagið hefur í núverandi fjárhagsáætlun. Fræðslunefnd leggur því frekar til að skoðað verði leiðir í vetur til að breyta stundatöflum þannig að hægt sé að minnka biðtíma barna eftir fótboltaæfingum. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að kanna málið áfram. Samþykkt samhljóða.Guðrún Vala sat hjá undir þessum lið.
27.7
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Fræðslunefnd leggur til að sviðsmynd tvö verði framkvæmd. Málinu er vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu.Samþykkt samhljóða.
27.8
Sveitarfélagið hefur lagt til að hækkun á gjaldskrá verði hófsöm. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kanna hvaða áhrif það hefði að hækka ekki gjaldskrár fyrir leikskóla fyrir 2027. Samþykkt samhljóð.
27.9
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir minnisblað. Lagt er til að gera breytingu á skóladagatali leikskóla þannig að dagarnir 21.-23.desember verði ekki lengur skráningadagar heldur venjulegir skóladagar. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að gera breytingu á verklagsreglum leikskóla og leggja fyrir næsta fund fræðslunefndar.Samþykkt er ný útgáfa að skóladagatali leikskóla.Samþykkt samhljóða.