Byggðarráð Borgarbyggðar

10. fundur

15. október 2026 kl. 13:00 - 15:35

Grunnskóli Borgarfjarðar


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson - aðalmaður
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic boðaði forföll og Hermann B. Valsson - varamaður sat fundinn í hans stað
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - Lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri


Dagskrá

1. Þjónustustefna Borgarbyggðar 2027
2610073

Fyrstu drög að þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 lögð fram

Fyrstu drög að þjónustustefnu lögð fram. Stefnan mun verða kynnt fyrir íbúum dagana 2.-4. nóvember ásamt því verður óskað eftir ábendingum frá íbúum og á heimasíðu sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


2. Starfshópur um rekstur og umbætur
2610029

Á fundi sveitarstjórnar nr. 5, þann 7. október sl., lagði Haukur Þór Hauksson fram eftirfarandi tillögu fyrir hönd Miðflokksins:

,,Miðflokkurinn leggur til að þverpólitísk nefnd sveitarstjórnarmanna verði skipuð til að fara yfir rekstur sveitarfélagsins og gera tillögu að umbótum í rekstri sveitarfélagsins."



Við umræðu um málið lagði Sigurður Guðmundsson fram tillögu um að vísa málinu til byggðarráðs og var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða í sveitarstjórn:

,,Sveitarstjórn samþykkir tillögu Sigurðar Guðmundssonar um að vísa tillögu Miðflokksins til byggðarráðs til nánari útfærslu á verkefnalýsingu, skipan vinnuhóps og tímaramma og að byggðarráð leggi tillöguna fyrir næsta sveitarstjórnarfund."



Málið er lagt fyrir byggðarráð til afgreiðslu í samræmi við meginatriði sem sveitarstjórn fól byggðarráði að útfæra.

Byggðaráð Borgarbyggðar þakkar fulltúum Miðflokksins fyrir góða tillögu um starfshóp um rekstur og umbætur í Borgarbyggð. Byggðaráð fer með og ber ábyrgð á rekstri og fjármálum sveitarfélagsins og þar með er það verkefni þess að rýna reksturinn og gera tillögur að hagræðingu ef ástæða er til. Byggðaráð tekur undir nauðsyn þess að rýna með markvissum hætti rekstur sveitarfélagsins og telur ekki ástæðu til að stofna sérstök nefnd um rekstur og umbætur að svo komnu máli, en leggur til að þeir áherslupunktar sem koma fram í tíllögu Miðflokksins verði teknir til sérstakar skoðunar á næsta ári.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


3. Erindisbréf fyrir fulltrúa í raflínunefnd
2610028

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar nr.5, þann 7. október lagði fulltrúi Miðflokksins fram eftirfarandi tillögu:



,,Miðflokkurinn leggur til að fulltrúi Borgarbyggðar í raflínunefnd fái erindisbréf frá sveitarstjórn Borgarbyggðar."



Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að vísa tillögunni til byggðarráðs til frekari umfjöllunar. Málið er hér lagt fram til afgreiðslu í byggðarráði.

Byggðarráð Borgarbyggðar ítrekar að hérað okkar byggir á landbúnaði, náttúrufegurð, laxveiði. iðnaði og þjónustu sem á allt sitt undir hreinni ímynd héraðsins og sjónrænni upplifun. Því er mikilvægt að Landsnet vandi mjög til verka og nái sem víðtækastri sátt og sanngjörnum samningum um línuleiðina við nærumhverfið og endurgjald verði sanngjarnt til landeiganda.

Byggðarráð lýsir yfir fullu trausti til fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd og hvetur hana til að leggja áherslu á þessa afstöðu byggðarráðs í störfum sínum í nefndinni.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


4. Beiðni um skráningu lögheimilis í frístundabyggð
2610018

Lögð er fram beiðni, dags. 2. september 2026, frá Kristínu Sigríði Þórarinsdóttur og Unnþóri Bergmanni Halldórssyni, þar sem óskað er eftir heimild sveitarstjórnar til skráningar lögheimilis að Indriðastaðahlíð 120 í Borgarbyggð.

Byggðarráð Borgarbyggðar bendir á að skráning lögheimilis lýtur lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018 og ákvæðum skipulagslaga um landnotkun. Þar sem gildandi skipulag gerir ekki ráð fyrir heilsársbúsetu á umræddu svæði hafnar byggðarráð beiðninni á þessu stigi.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


5. Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Grenjavegar (5374-01) af vegaskrá
2610016

Framlagt bréf Vegagerðarinnar dags. 30. september 2026 um fyrirhugaða niðurfellingu Grenjavegar samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er Grenjavegur lokaður með hliði og er ekki opinn almenningi til frjálsrar umferðar eins og kveður á um í 1.mgr.8.gr.vegalaga. Vegurinn uppfyllir því ekki tilgreynd skilyrði til þess að teljast þjóðvegur.

Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka afstöðu til þeirra raka sem búa að baki fyrirhugaðri ákvörðun Vegagerðarinnar, svo sem m.t.t. búsetu og atvinnustarfsemi, og koma þeirri afstöðu á framfæri við Vegagerðina.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


6. Starfsmannamál Borgarbyggð 2026
2601009

Bókað í trúnaðarbók



7. Gjaldskrár 2027
2610088

Farið yfir gjaldskrár félagsheimila

Lögð fram drög að uppfærðri gjaldskrá félagsheimila fyrir árið 2027. Í drögunum er gert ráð fyrir almennri 2,5% hækkun á gjaldskrárliðum í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar, auk þess sem gerðar eru breytingar á ákvæðum um afnot og frágang.



Byggðarráð felur sveitarstjóra að klára að fullvinna gjaldskránna.



Samþykkt samhljóða



8. Ósk um stuðning við umsókn um Unglingalandsmót UMFÍ 2027
2610027

Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) hyggst sækja um að halda Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarbyggð sumarið 2027. Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting sveitarstjórnar á mótsstað og óskar UMSB því eftir stuðningi sveitarstjórnar við umsóknina og samstarfi um mótahaldið.

Byggðaráð Borgarbyggðar þakkir fyrir erindi UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027 í Borgarbyggð. Það er ánægjulegt að UMSB og aðildarfélög þess hafi áhuga á að halda Landsmót UMFÍ 2027. Landsmót UMFÍ hefur nokkrum sinnum verið haldið í Borgarbyggði með góðum árangri. Landsmót UMFÍ byggja á mikilli þáttöku sjálfboðaliða og góðri samvinnu félaga á því svæði sem landsmótið er haldið. Jafnframt er mótið tækifæri til tekjuöflunar fyrir félögin sem taka þátt. Byggðaráð Borgarbyggðar fagnar því og styður umsókn UMSB um að halda Landsmót UMFÍ 2027.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


9. Félagsfundur Veiðifélags Hítarár
2610072

Boðað er til félagsfundar miðvikudaginn 28 október 2026, kl. 11:00 í veiðihúsinu Lundi við Hítará. Um er að ræða fyrirtökufund matsnefndar vegna endurskoðunar á arðskrá Hítarár.

Byggðarráð tilnefnir Kristján Ágúst Magnússon og Jóhannes Jónasson sem fulltrúa Borgarbyggðar á fundinn.



Samþykkt samhljóða



10. Til umsagnar 156. mál frá nefnda- og greiningarsviði skrifstofu Alþingis
2610071

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

Fylgiskjöl


11. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambandsins frá 11. september 2026.

Fundargerð framlögð



12. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034

Frammögð fundagerð 271. fundar stjórnar faxaflóahafnar sem haldinn var 18.sept sl.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


13. Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2026.
2602143

Framlögð fundagerð 204.fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var fimmtudaginn 24.sept sl.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


14. Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
2602005

Framlögð fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambandsins frá 23. september 2026.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


15. PISA 2026 niðurstöður
2609183

Lögð fram upplýsingarbeiðni og kæra Borgarbyggðar ásamt svari við upplýsingabeiðni vegna niðurstöðu úr PISA könnun.

Lagt fram til kynningar

Fylgiskjöl


16. Beiðni um samstarf frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar
2609157

Lögð eru fram drög að samstarfssamningi

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur og að sveitarstjóra verði veitt umboð til undirritunar hans fyrir hönd sveitarfélagsins.



Samþykkt samhljóða



Fundi slitið - kl. 15:35