Byggðarráð Borgarbyggðar

13. fundur

5. nóvember 2026 kl. 08:15 - 10:21

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Davíð Sigurðsson boðaði forföll og Sonja Lind Eyglóardóttir - varamaður sat fundinn í hans stað
Sigurður Guðmundsson - formaður
Ragnhildur Eva Jónsdóttir - varaformaður
Jovana Pavlovic boðaði forföll og Hermann B. Valsson - varamaður sat fundinn í hans stað
Haukur Þór Hauksson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

Unnur Brá Konráðsdóttir - sveitarstjóri
Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur
Sigurður Kristjánsson - fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Þórunn Unnur Birgisdóttir - lögfræðingur

Óskað var eftir að bæta inn með afbrigðum máli nr. 2601124, Viðauki við fjáhagasáætlun Borgarbyggðar 2026., verður það mál nr. 5 og máli nr. 2609031, erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar, verður það mál nr. 11. Varð það samþykkt samhljóða


Dagskrá

1. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
2510090

Bókun frá fundi fræðslunefndar nr. 3 þann 27. október sl. ,,Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla. Einnig eru lagðar fram gjaldskrár fyrir 2027 sem tilheyra fræðslu- og tómstundamálum.



Sviðsstjóri fjölskyldusviðs leggur fram minnisblað um gjaldskrá leikskóla, fræðslunefnd leggur til að tillaga 1 verði samþykkt þar sem ekki er gert ráðfyrir hækkun á leikskólagjöldum.



Fræðslunefnd samþykkir aðrar framlagðar gjaldskrár með 2,5% hækkun fyrir árið 2027.



Málinu vísað til Byggðarráðs.



Samþykkt samhljóða."

Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðstjóri fjölskyldusviðs mætir til fundar og fer yfir framlagt minnisblað.



Byggðarráð tekur undir afgreiðslu fræðslunefndar frá 27. október sl. og samþykkir að gjaldskrá leikskóla verði óbreytt fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu 1 í framlögðu minnisblaði sviðsstjóra. Byggðarráð samþykkir jafnframt fyrir sitt leyti aðrar framlagðar gjaldskrár á sviðinu með 2,5% hækkun og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða



2. Samningar um samræmda móttöku flóttafólks - ósk um framlengingu samnings
2609150

Fyrir liggja drög að IV. viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks. Viðaukinn felur í sér að Borgarbyggð veiti allt að 40 notendum í senn þjónustu, að greiðslur verði mánaðarlegar og að samningurinn gildi til og með 31. desember 2027. Óskað er eftir afstöðu Byggðarráðs.

Erla Björg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri mætir til fundar, fer hún ásamt Hlöðveri Inga Gunnarssyni yfir framlögð gögn.



Byggðarráð leggur til að ekki verði gengið til samninga nema tryggt verði afturvirkar greiðslur fyrir fjárhagsaðaroð sem veitt hefur verið til þeirra sem hafa komið í gegnum samræmda móttöku, að tveimur árum liðnum. Auk þess að breyting sé gerð á greiðslufyrirkomulagi er snýr að samningnum sjálfum, er varða hækkun greiðslsna vegna þeirra sem hafa verið lengur en 2. ár.



Byggðarráð felur sviðstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálastjóra að vinna að málinu í takt við fyrirliggjandi bókun.



Samþykkt samhljóða.



Hlöðver Ingi Gunnarsson og Erla Björg Kristjánsdóttir víkja af fundi eftir þennan lið.



3. Fjárhagsáætlun 2027
2606271

Drög að áætlun um rekstur 2027

Fjárhagsáætlun 2027 ásamt þriggja ára áætlun til 2030 lögð fram. Áætlunin gerir ráð fyrir að tekjur verði 8,4 milljarðar og og rekstrargjöld verði 7,4 milljarðar, Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði verði 1 milljarður. Afskriftir verði 375 milljónir og fjármagnsliðir verði 475 milljónir. Rekstrarniðurstaða er áætluð 106 milljónir í afgang. Það er viðsnúningur uppá 236 milljónir frá 2025 og 116 milljónir miðað við útkomuspá 2026. Handbært fé frá rekstri er áætlað 796 milljónir, fjárfestingaráætlun gerir ráð fyrir fjárfestingum uppá 919 milljónir. Afborganir lána eru 335 milljónir og ný lántaka er áætluð 360 milljónir. Fjárfestingar ársins eru að mestu fjármagnaðar með fjármagni frá rekstri sveitarfélagsins.

Helstu fjárfestingar á næsta ári eru að framkvæmdir við viðbyggingu við leikskólann Ugluklett hefjast og að framkvæmdum við grunnskóla GBF á Kleppjárnsreykjum mun verða lokið árið 2027. Áframhaldandi vinna verður við gatnagerð og göngustíga ásamt fleiri verkefnum í fjárfestingaráætluninni.



Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á milli ára 14,97%. Drögum að fjárhags- og fjárfestingaráætlun er vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn sem fer fram þann 12. nóvember næstkomandi.



Samþykkt samhljóða



4. Gjaldskrár 2027
2610088

Lagðar fram gjaldskrár vegna starfsemi Borgarbyggðar 2026.

Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar gjaldskrár vegna starfsemi Borgarbyggðar fyrir árið 2027, gjaldskrár hækka ekki umfram 2.5% þ.e. gjaldskrá safnahús, gjaldskrá og reglur fyrir gámasvæði, gjaldskrá vegna tæmingar rotþróa, gjaldskrá vatnsveitu Hraunhrepps, gjaldskrá vatnsveitu Álftaneshrepps, gjaldskrá Hjálmakletts, gjaldskrá slökkvitækjaþjónustu, gjaldskrá slökkviliðs Borgarbyggðar, og gjaldskrá Skipulagsfulltrúa. Gjaldskrá hunda og kattahalds hækkar um kr. 3000 til að mæta kostnaði af nýju kerfi.



Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgagns og gjaldskrá vegna söfnunar og eyðingar dýraleifa helst óbreytt á milli ára.



Álagningarprósenta fasteingaskatts og lóðaleigu helst óbreytt á milli ára.



Byggðarráð vísar gjaldskrám til endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða.











Lagt er til að Gjaldskrá fyrir ljósritun verði felld niður,







Gjaldskrár samþykktar með áorðnum breytingum og vísað til fullnaðarafgreiðslu sveitarstjórnar.



5. Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
2601124

Lagðir fram til afgreiðslu í byggðarráði viðaukar VIII og IX við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026.

Lögð fram tillaga að viðbót við viðauka VII. Tillagan er til komin vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps á árinu 2026. Tillagan felur í sér hækkun tekna, þ.e. fasteignaskatts, útsvars og annarra tekna um 136.3 m.kr., ásamt hækkun fjárheimildar til launa , annars rekstrarkostnaður og fjármagnskostnaðar að fjárhæð 105.9 m.kr. Tillagan felur einnig í sér lækkun tekna hjá Borgarbyggð uppá 29 m.kr vegna áætlaðra greiðslna Skorradalshrepps fyrir aðkeypta þjónustu á árinu sem fellur niður. Heildaráhrif breytinganna er 1,3 m.kr til tekna sem er niðurstaða rekstraráætlunar Skorradalshrepps fyrir árið 2026. Tillagan felur líka í sér lækkun launaáætlunar á deild 27011 Óreglulegar tekjur og gjöld uppá kr 31.3 m.kr. Skv. breytingu á reglugerð hefur málaflokkur 27 verið lagður niður á árinu 2026 og því þarf að færa þessa áætlun á aðrar deildir. Tillagan felur því í sér á móti hækkun á launaáætlun fyrir deild 21410 Skrifstofur uppá 10.4 m.kr. , hækkun fyrir deild 07210 Slökkvilið Borgarbyggðar uppá kr. 10,4 m.kr og hækkun fyrir deild 04280 Frístund uppá kr. 10.4 m.kr. , heildaráhrif á rekstrarniðurstoðu eru engin.

Heildaráhrif tillögunnar á rekstrarniðurstöðu Borgarbyggðar 2026 eru 1.3 m.kr. til tekna.



Lögð fram tillaga að viðbót í viðauka IX. Tillagan er til komin vegna áherslubreytinga á fjárfestingum á árinu 2026. Tillagan felur í sér frestun á framkvæmdum við leikskólann Uglukletti og lækkun á framkvæmdakostnaði um 920 m.kr. Enn fremur felur tillagan í sér lækkun á framkvæmdakostnaði vegna sjóvarnagarðs um 155 m.kr. Aðrar helstu breytingar eru : Vegur að Bjargi fellur út, 30 m.kr. Brattagata lækkar um 10 m.kr. á þessu ári vegna tafa við undirbúning , Vallarás hækkar um 48 m.kr. vegna safngötu og ofanvatnslausna. Kveldúlfshöfði og Fjóluklettur hækka um 34 m.kr. Leiksskólinn Klettaborg hækkar um 30 m.kr. , Brákarey uppbygging frestast og lækkar um 45 m.kr. Slökkvistöð Vallarási fellur niður ,27 m.kr. GB nýbygging lækkar um 19 m.kr. og GBF KLR hækkar um 18 m.kr. v. leiktækja og frágangs lóðar auk hönnunar á snjóbræðslu og fráveitulagna. Íþróttahús endurbætur Bgn lækkar um 22 m.kr og Íþróttahús Parkethús Bgn hækkar um 14 m.kr. vegna undirbúningsvinnu fyrir forval. Auk þess eru fleiri smærri breytinga á fjárfestingaáætlun. Alls lækkar fjárfestingaáætlun 2026 skv. tillögunni um 1.021,6 m.kr.



Byggðarráð samþykkir framlagðar tillögur að viðaukum VIII og XI og vísar þeim til afgreiðslu og staðfestingar í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða.



Sigurður Kristjánsson víkur af fundi eftir þennan dagskrárlið.



6. Erindi til eigenda af hluthafafundi Ljósleiðarans
2611009

Lögð er fram tillaga stjórnar Ljósleiðarans ehf., samþykkt á hluthafafundi félagsins þann 26. október 2026, ásamt fylgigögnum.

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkir fyrirliggjandi erindi Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 26. október 2026. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.



Samþykkt samhljóða.





7. Styrktarlínur og auglýsingar 2026
2607014

Lagðar fram uppfærðar reglur til samþykktar

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi uppfærðar reglur um styrktarlínur og auglýsingar 2026 fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.



Samþykkt samhljóða.



8. Framvindufundir framkvæmda
2611024

Lögð fram tillaga um reglulega samráðsfundi starfsmanna til að efla eftirlit með framvindu og raunútgjöldum verklegra framkvæmda.

Byggðarráð samþykkir að komið verði á föstum samráðsfundum sveitarstjóra, fjármálastjóra, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og verkefnastjóra nýframkvæmda og viðhalds, sem haldnir verði að lágmarki mánaðarlega. Markmiðið er að styrkja eftirfylgni með verkefnastöðu, raunútgjöldum og viðbótarverkum í samræmi við kröfur um ábyrga fjármálastjórn, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011



Samþykkt samhljóða.



9. Erindi frá Björgunarsveitinni Brák vegna malbikunar að lóð Brákar
2611015

Lagt fram erindi frá Björgunarsveitinni Brák ásamt tilboði í yfirborðsfrágang. Hlynur Ólafsson verkefnastjóri framkvæmda og Guðný Elíasdóttir sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs mæta til fundar undir þessum líð

Lagt fram erindi Björgunarsveitarinnar Brákar dags. 28. október 2026 varðandi malbikun á Fitjum, ásamt minnisblaði starfsmanns dags. 3. nóvember 2026 og tilboði frá Borgarverki í yfirborðsfrágang, fyllingu, burðarlag og malbikun að fjárhæð kr. 4.981.500 með vsk.



Byggðarráð samþykkir framlagt tilboð Borgarverks að fjárhæð kr. 4.981.500 með vsk. Stefnt sé að malbikun 11. nóvember ef veður leyfir.



Samþykkt samhljóða.

Fylgiskjöl


10. Umsókn um styrk - Jólaútvarp
2610235

Nemendafélag GB óskar eftir styrk vegna jólaútvarps.

Jólaútvarpið er mikilvægur viðburður á jólunum. Byggðarráð fagnað erindinu. Byggðarráð samþykkir að veita Nemendafélagi GB styrk vegna jólaútvarps að fjárhæð kr. 400.000 og felur sveitarstjóra afgreiðslu málsins.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


11. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
2609031

Umsögn um tillögu að flokkun sjö vindorkuverkefna, virkjunarkosturinn Alviðra

Með skjali þessu veitir byggðarráð Borgarbyggðar umsögn um skýrslu verkefnisstjórnar um verndar- og orkunýtingaráætlun um tillögu að flokkun sjö vindorkuverkefna sem birt hefur verið til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.

Byggðarráð lýsir yfir afdráttarlausri andstöðu við þá tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarkostinn Alviðru á Grjóthálsi í biðflokk. Í fyrri umsögn sveitarfélagsins í málinu komu skýrt fram þungar áhyggjur, efasemdir og rík áhersla á neikvæð áhrif virkjunarkostsins á landslag, náttúru og samfélag. Það er eðlilegt og rökrétt framhald af þeirri afstöðu, nú þegar niðurstöður faghópa rammaáætlunar liggja loks fyrir sem staðfesta hæsta náttúruverndargildi svæðisins af öllum metnum kostum, að byggðarráð Borgarbyggðar leggi til að virkjunarkosturinn verði færður í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011.

Skipulagsvald og gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar

Í fyrsta lagi heimilar gildandi aðalskipulag Borgarbyggðar engin vindorkuver og líta verður til viðmiða aðalskipulagsins um staðsetningu slíkra mannvirkja. Skipulagsvald er hjá sveitarfélaginu og ákvörðun um flokkun má ekki ganga gegn þeirri stefnu sem íbúar og kjörnir fulltrúar hafa mótað. Sveitarfélagið hefur áréttað að við mat á vindorkukostinum Alviðru á Grjóthálsi verði að líta til þeirra viðmiða og takmarkana sem fram koma í aðalskipulagi um staðsetningu vindorkuvera, einkum hvað varðar sjónræn áhrif, áhrif á landslag og samfélagslegan ábata.

Vindmyllur af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru sýnilegar yfir stór landsvæði og geta haft veruleg neikvæð áhrif á upplifun landslags, náttúru og útivistar langt út fyrir framkvæmdasvæðið sjálft. Slík áhrif skerða þá sérstöðu sem einkennir svæðið og liggur til grundvallar búsetu, útivist og ferðaþjónustu í héraðinu. Byggðarráð bendir á að flokkun kostsins í verndarflokk samræmist best þessum skipulagslegu forsendum og tryggir nauðsynlegan fyrirsjáanleika um landnotkun í sveitarfélaginu.



Afgerandi niðurstöður faghópa rammaáætlunar

Í öðru lagi má ráða af gögnum verkefnisstjórnar sjálfrar að sérfræðimat allra viðeigandi faghópa mælir eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess.

Áhrif á landslag og ásýnd eru veruleg. Faghópur 1 um náttúru og menningarminjar metur náttúruverðmæti á Alviðrusvæðinu þau mestu af þeim sjö kostum sem til umfjöllunar eru í þessum áfanga og telur áhrif á landslag mikil, enda myndi virkjunin sjást mjög víða. Þetta er í samræmi við áhyggjur sveitarfélagsins. Í samanburði við virkjunarkosti á landsvísu fær Alviðra einkunnina tíu fyrir verðmæti náttúru, sem skipar svæðinu í flokk með verðmætustu perlum íslenskrar náttúru. Jafnframt er staðfest að virkjunin myndi valda mikilli skerðingu á landslagi og sjást um stóran hluta Borgarfjarðarhéraðs.

Faghópur 2 um ferðaþjónustu, útivist og staðbundna hagsmuni metur áhrif á veiði mest við Alviðru af öllum kostunum og raðar kostinum í neðsta sæti allra kosta hvað varðar áhrif á aðra hagsmuni. Grjótháls liggur milli Norðurárdals og Þverárhlíðar og veiði í ám héraðsins er mikilvæg atvinnu- og tekjulind fyrir landeigendur og ferðaþjónustu í Borgarbyggð.

Í niðurstöðu faghóps 3 um samfélagsleg áhrif raðast Alviðra jafnframt í fyrsta sæti yfir mestu neikvæðu samfélagslegu áhrifin. Faghópur 3 óskaði sérstaklega eftir mati sveitarfélagsins á framlagi Alviðru til orkuöryggis og á efnahagslegum ávinningi fyrir nærsamfélagið við vinnslu málsins. Sveitarfélagið hefur engar forsendur til að leggja jákvætt mat á þessa þætti og bendir á að engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á slíkan ávinning. Vindorka er breytileg og kallar á jöfnunarafl eða geymslu, og ekkert liggur fyrir um hvernig eða hvort tekjur eða annar ávinningur af verkefninu myndi skila sér til íbúa með tryggum hætti. Fram kemur að Alviðra hefur mest neikvæð áhrif á samstöðu í samfélaginu allra kosta, mikil andstaða ríkir í héraðinu og virkjunin myndi valda langmestu skynrænu áreiti vegna hljóðs, sjónrænna áhrifa og skuggaflökts gagnvart íbúum og nærumhverfi.

Niðurstaða allra þriggja faghópa mælir því eindregið gegn orkunýtingu á svæðinu og staðfestir ríka verndarþörf þess.

Lagarök gegn biðflokki og fyrir verndarflokki

Í fyrra erindi lagðist sveitarfélagið gegn nýtingarflokki á þessu stigi. Nú liggur fyrir mat faghópa, sem staðfestir að náttúruverðmæti á svæðinu eru þau mestu af öllum kostunum og að áhrif á landslag og veiði yrðu mikil. Að mati sveitarfélagsins er því ekki þörf á frekari rannsóknum til að komast að niðurstöðu. Biðflokkur myndi halda málinu opnu um ókomin ár og skapa viðvarandi óvissu fyrir íbúa, landeigendur og skipulagsvinnu sveitarfélagsins. Skýr niðurstaða sem fyrst er öllum fyrir bestu.



Ólögmæt beiting á biðflokki

Í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 segir berum orðum að í biðflokk falli virkjunarhugmyndir þegar talið er að frekari upplýsinga eða greininga sé þörf. Verkefnisstjórn rökstyður tillögu sína um biðflokk hins vegar með því að óljóst sé hvort unnt sé að haga framkvæmdinni þannig að um hana náist víðtækari sátt. Þetta er efnislegur og lagalegur misskilningur á hlutverki biðflokks. Fyrir liggja tæmandi og afgerandi greiningar faghópa um náttúruverðmæti, landslag, hagsmuni og samfélag. Engar frekari náttúrufræðilegar eða tæknilegar upplýsingar vantar sem gætu breytt þeirri staðreynd að svæðið er í hæsta gæðaflokki hvað varðar verndargildi. Biðflokkur er ekki lögboðin biðstofa fyrir virkjunaraðila til að reyna að knýja fram breytta afstöðu íbúa eða byggðarráðs þegar öll fagleg gögn mæla gegn virkjun.



Hætta á óafturkræfu raski í biðflokki

Byggðarráð áréttar að samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011 er heimilt að veita rannsóknarleyfi og framkvæma orkurannsóknir á svæðum í biðflokki. Fyrirhugað virkjunarsvæði á Grjóthálsi er viðkvæmt hálendi með hæsta náttúru- og landslagsgildi. Með því að setja kostinn í biðflokk er opnað á leyfisveitingar vegna rannsókna, svo sem slóðagerðar, borana og uppsetningar mælingamastra, sem valda óafturkræfri röskun á ómetanlegum náttúruverðmætum.



Lagaskilyrði verndarflokks eru að fullu uppfyllt

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 48/2011 skulu virkjunarhugmyndir falla í verndarflokk ef ástæða er talin til að friðlýsa svæði að teknu tilliti til heildstæðs mats samkvæmt 4. mgr. 3. gr. laganna. Þegar virt eru samandregin gögn faghópanna um hæsta náttúrugildi, mikla skerðingu á staðbundnum hagsmunum og veiðiám, auk mestu neikvæðu samfélagsáhrifanna, er það eina lögmæta og rökrétta niðurstaðan að virkjunarhugmyndin Alviðra falli í verndarflokk.



Niðurstaða

Með vísan til framangreinds leggur Borgarbyggð til að vindorkukosturinn Alviðra verði settur í verndarflokk á grundvelli 6. gr. laga nr. 48/2011 í endanlegum tillögum verkefnisstjórnar til ráðherra.



Sveitarstjóra er falið að leggja umsögninga fram í samráðsgátt.



Samþykkt samhljóða

Fylgiskjöl


12. Fundagerðir 2026 - Hafnasamband Íslands.
2601229

Framlögð fundargerð 487. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 21. október 2026.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


13. Faxaflóahafnir fundagerðir 2026.
2602034

Framlögð fundagerð 272 fundar stjórnar Faxaflóahafnar sem fram fór föstudaginn 16 okt sl.

Fundargerð framlögð

Fylgiskjöl


Fundi slitið - kl. 10:21