Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

266. fundur

9. nóvember 2026 kl. 09:30 - 10:30

á skrifstofu byggingarfulltrúa


Nefndarmenn

Sæmundur Óskarsson - byggingarfulltrúi
Kara Lau Eyjólfsdóttir - verkefnisstjóri

Starfsmenn

Fundargerð ritaði: Sæmundur Óskarsson - Byggingarfulltrúi


Dagskrá

1. Fossabrekka - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2611023

Umsækjandi: S78 ehf.

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu hesthúss ásamt vélageymslu. Mhl-05, stærð: 428m2. um er að ræða stálgrindarhús á steyptum undirstöðuveggjum. Sökklar og gólfplata úr steinsteypu. Útveggir aðalhúss steyptir upp í 1,7m hæð.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Ómar Pétursson

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



2. Ísleifsstaðir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610274

Umsækjandi: Örn Falkner

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir frístundahúsi á einni hæð. Stærð 54,7 m2, mhl-01. Byggt er úr timbri á steyptar undirstöður. Útveggir klæddir timburklæðningu, gluggar og útihurðir með álklæðningu að utan. Risþak er á húsinu með báraðri málmklæðningu.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Halldór Stefánsson

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna



Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



3. Norðurhraun 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610244

Umsækjandi: Fjalar Þór Rúnarsson Scott

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir byggingu íbúðarhúss (mhl-01) Stærð 170m2 ásamt gestahúsi (mhl-02) stærð 20m2. Húsin eru byggð úr timbri á steyptar undirstöður.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Ómar Pétursson

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.



4. Byggðarholt 17 - Umsókn um stöðuleyfi
2611029

Umsækjandi: Óskar Þór Óskarsson

Erindi: Sótt er um stöðuleyfi fyrir sumarhúsi í smíðum ætlað til flutnings.

Húsið er staðsett á lóðinni Byggðaholt 17 L177496.

Samþykkt



5. Hvítárholt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610093

Umsækjandi: Matthías Örn Friðriksson

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir vélaskemmu, mhl-02. Stærð: 300m2.

Húsið er stálgrindahús ,klætt með yleiningum á steyptar undirstöður.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Pálmar Kristmundsson.

Lagfæra þarf lítillega innsend hönnunargögn

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynna



Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



6. Kárastaðaland - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610090

Umsækjandi: Kári,flugklúbbur

Erindi: Sótt er um leyfi fyrir flugskýli, mhl-01. Stærð: 300m2. Um er að ræða stálgrindarbyggingu á steyptum undirstöðum.

Fylgigögn: Aðaluppdrættir

Hönnuður: Pálmar Kristmundsson

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.

Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:

- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.

- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.

- Leyfisgjöld hafa verið greidd.



7. Hvítárbrekkur 5 - Umsókn um byggingarleyfi
2509066

Umsækjandi: Gunnlaugur Rafn Björnsson

Erindi: Sótt er um leyfi til að byggja baðhús(mhl-02). Stærð baðhúss, mhl-02, er 30 m2. Baðhús er byggt er úr timbri á steyptar undirstöður Fylgigögn: Aðaluppdrættir Hönnuður: Jón Logi Sigurbjörnsson.

Byggingin samræmist ekki skilmálum deiliskipulags varðandi hæð bygginga.



Fundi slitið - kl. 10:30