Skipulags- og byggingarnefnd Borgarbyggðar

4. fundur

9. nóvember 2026 kl. 08:30 - 10:30

í fundarsal að Digranesgötu 2


Nefndarmenn

Hermann B. Valsson - formaður
Svana Hrönn Jóhannsdóttir - varaformaður
Bjarni Rúnar Bequette - aðalmaður
Hafsteinn Ingi Gunnarsson - aðalmaður
Valdimar Reynisson - varamaður

Starfsmenn

Ásgerður H Hafsteinsdóttir - skipulagsfulltrúi
Elfar Már Ólafsson - verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgerður H. Hafsteinsdóttir - Skipulagsfulltrúi


Dagskrá

1. Breyting á landnotkun - Hvítárvellir (133886) - Efnistökusvæði
2604243

Þann 23.07.2026 á fundi nr. 4 samþykkti Byggðaráð breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 til auglýsingar. Tilgangur breytingarinnar er að breyta landnotkun svæðisins úr landbúnaðarland í efnistökusvæði og er markmið breytingarinnar að heimila allt að 35.000 m3 efnistöku á um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár í landi Hvítárvalla. Kynningartíminn var frá 13.08.2026 til 27.09.2026. Ein athugasemd barst á kynningartíma.

Lagður er fram skipulagsuppdráttur dags. 09.06.2026 og uppfærð greinargerð frá hönnuði dags. 07.07.2026, breytt dags. 07.10.2026. Þar var tekið tillit til umsagna lögbundinna umsagnaraðila.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir sitt leyti. Breytingartillagan tekur til um 2 ha svæði í Selholti á Heggstaðanesi skammt vestan Grímsár í landi Hvítárvalla.

Samþykkt samhljóða



2. Efra-Nes - umsókn um deiliskipulag - L134858
2602060

Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Efra-Nes. Tillagan tekur til 85.998 m2 landspildu úr landi Efra-Ness í Borgarbyggð. Landeigandi hyggst þróa ferðaþjónustu á svæðinu með áformum um 50 hvelfd gistitjöld og tvö stærri þjónustutjöld. Tillagan samræmist aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037. Aðkoma að svæðinu er um Kaðalstaðaveg (tengivegur af þjóðvegi 50). Vinnslutillaga var kynnt frá 13.03.2026-26.04.2026 og óskað eftir umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Í tillögu hefur verið brugðist við þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Lagður er fram uppdráttur dags. 25.06.2026 ásamt uppfærðri greinargerð dags. 03.11.2026

Skipulags- og byggingarnefnd frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari upplýsingum í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.



3. Stráskógarbyggð 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2604127

Endurupptekið mál af fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 2 þann 4. september.

Bókun nefndar:

"Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er talsvert umfram gildandi deiliskipulag. Auk þess bendir nefndin á að samkvæmt Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 skuli eldri deiliskipulög endurskoðuð eftir atvikum svo þau samræmist lögum og reglugerðum. Deiliskipulagið sem í gildi er á svæðinu er að mati nefndar orðið úrelt og fer fram á að landeigandi uppfæri skipulag svæðisins. Samþykkt samhljóða."



Umsækjandi óskar heimildar til að gera breytingu á deiliskipulag Stóra-fjalls og Túns fyrir lóðina Stráskógarbyggð 1 þar sem byggingarmagn lóðarinnar verður aukið.

Skipulags- og byggingarnefnd heimilar að gerð verði breyting á deiliskipulagi Stóra-Fjalls og Túns en bendir á að frekari breytingar verði ekki heimilaðar heldur skuli deiliskipulagið endurskoðað í heild sinni.

Samþykkt samhljóða.



4. Brenna - umsókn um framkvæmdaleyfi - 134329 - skógrækt
2603171

Lögð er fram uppfærð umsókn dags. 02.10.2026 um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar í landi Brennu í Borgarbyggð (L134329). Fyrirhugað er að hefja fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Brennu í Lundarreykjadal. Svæðið er alls 48,4 ha að flatarmáli og nær frá 140 - 260 m.y.s. Á jörðinni er fyrir fullgróðursettur skógræktarreitur sem er 25 ha að flatarmáli sem hefur samning við Land og Skóg um skógrækt á lögbýlum.

Óskað var álits HMS um matskyldu framkvæmdarinnar sem telur framkvæmdina ekki falla undir ákvæði laga nr. 111/2021.

Svæðið er að mestu skilgreint sem landbúnaðarland í flokki IV í aðalskipulagi en hluti fyrirhugaðs skógræktarsvæðis er á skilgreindri frístundabyggð. Landeigandi hefur óskað eftir að landnotkunin frístundabyggð verði felld út í endurskoðun aðalskipulags og svæðið skilgreint sem skógræktarsvæði á þeim hlut sem umsóknin tekur til. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu.

Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna skógræktar í landi Brennu með vísan til framlagðra gagna. Nefndin bendir á að ekki skuli hefja gróðursetningu á því svæði sem í dag er frístundabyggð fyrr en nýtt aðalskipulag Borgarbyggðar hefur tekið gildi. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.

Samþykkt samhljóða.



5. Varmalækur L133917 - Fyrirpurn um skipulagsmál
2608119

Lögð er fram ósk Heartwood afforested Land ehf frá 19. ágúst 2026 um heimild Borgarbyggðar til stækkunar skógræktar- og landgræðslusvæði (SL70) í landi Varmalækjar. Óskað er eftir að stækka skógræktar svæðið yfir þann hluta L9 sem er innan jarðarinnar og þess hluta F63 sem ekki er vaxinn birkiskógi í dag.

Hluti jarðarinnar er á fjarsvæði vatnsverndar (VF4). Fjarsvæðið liggur innan L9.

Óskað er því að heimilt verði að rækta skóg á um 500 ha innan marka Varmalækjar (að meðtöldu SL70).

Skógræktarverkefnið er í matsáætlunarferli samkvæmt lögum í skipulagsgátt HMS mál nr. 1026/2025.

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í frekari skógrækt á svæðinu en kallar eftir skýrari framtíðarsýn um nýtingu svæðisins til skógræktar með tilliti til þeirra takmarkana sem á jörðinni eru.

Skipulagsfulltrúi óskaði eftir áliti HEV um skógrækt á fjarsvæði vatnsverndar og metur HEV það svo að rétt sé að halda núverandi afmörkun vatnsverndarsvæðisins óbreyttri, nema fyrir liggi sérstakar vatnafræðilegar forsendur fyrir breytingu hennar. Heimild til skógræktar innan fjarsvæðis ætti að byggjast á mati á áhættu fyrir vatnsbólið og vera bundin skýrum skilyrðum um tegundaval, framkvæmdir og langtímavernd vatnsauðlindarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu leggur HEV til að ákvörðun um skógrækt á fjarsvæðinu verði frestað þar til fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir til að meta hvaða hlutar þess, ef einhverjir, henta til skógræktar.

Samþykkt samhljóða.



6. Erindi til sveitarstjórnar vegna Rammaáætlunar
2609031

Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína í Samráðsgátt.

Lögð er fram tillaga verkefnisstjórnar 6. áfanga til samráðs úr samráðsgátt.

Skipulags- og byggingarnefnd lýsir yfir afdráttarlausri andstöðu við þá tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarkostinn Alviðru á Grjóthálsi í biðflokk og tekur undir bókun Byggðarráðs um málið á fundi nr. 13 þann 5. nóvember sl.

Samþykkt samhljóða.



7. Galtarholt 1 land - umsókn um breytingu á landheiti - 191461
2609323

Lögð er inn umsókn um breytingu á heiti landeignar Galtarholt 1 land (L191461). Óskað er eftir að landeignin beri hér eftir heitið Galtarholt.



Ósk landeiganda byggist á að Galtarholt er hið sögulega heiti staðarins og býlisins og telur hún eðlilegt að það heiti verði varðveitt og skráð fyrir þessa eign. Eins eru fleiri landnúmer skráð sem Galtarholt 1 land og landeigandi segir það valda ruglingi.

Landeigandi bendir einnig á að íbúðarhúsið á eigninni er byggt árið 1975.

Skipulags- og byggingarnefnd hafnar breytingunni. Nefndin telur ekki forsendu til að samþykkja landheitið Galtarholt þar sem fyrir eru skráð landheitin Galtarholt 1, Galtarholt 2 og Galtarholt 3. Nefndin telur að fyrirhugað heiti geti valdið ruglingi við skráningu fasteigna og staðsetningu eigna. Nefndin leggur því til að valið verði annað heiti sem aðgreinir fasteignina með skýrari hætti frá fyrirliggjandi landheitum.

Samþykkt samhljóða.







8. Litla-Fjallsland - Umsókn um stofnun lóða
2608250

Lögð er fram ósk um afmörkun lóðarinna Litla-Fjallsland (L135067). Eitt mannvirki er á lóðinni, sumarbústaður. Ekki er deiliskipulag á svæðinu. Lóðin er 15.000 fm að stærð. Aðkoma er af Snæfellsnesvegi (54) og um Stangarholtsveg (536). Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037.

Í sömu umsókn er óskað eftir að landeignin beri hér eftir heitið Litla-Fjallsland 2.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja merkjalýsingu lóðarinnar Litla-Fjallsland 2 (L135067) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Litla-Fjallsland 2 (L135067).

Samþykkt samhljóða.



9. Egilsholt 2a og 2b - Umsókn um stofnun lóða
2602065

Lögð er fram ósk lóðarhafa Egilsholts 2a (L198242) og Bjargsland lóð (L194035) í Borgarbyggð um að breyta stærð og afmörkun lóða. Egilsholt 2a mun fara úr 1698 fm í 2284,2 fm og Bjargsland lóð mun fara úr 3538 fm í 3941,4 fm. Borgarnesland (L191985) mun minnka sem því nemur eða 1589,6 fm en stærð þess er óskráð. Þessi breytta afmörkun samræmist gildandi deiliskipulagsbreytingu fyrir Bjargsland II í Borgarnesi dags. B deild augl. 12.02.2019.

Einnig er gerð tillaga að því að breyta landheitinu Bjargsland lóð (L194035) í Egilsholt 2b til að forðast misskilning.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun sem samræmist núgildandi deiliskipulagi á svæðinu þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Egilsholt 2b (L194035).

Samþykkt samhljóða.







10. Egilsholt 1 - Umsókn um stofnun lóða
2603141

Lögð er fram ósk um breytingu á afmörkun lóðarinnar Egilsholt 1 (L203011).

Grjótmön var sett upp vegna hæðarmunar á landinu sem skerðir nýtingu Egilsholts 1 og afmörkun því breytt. Skráð stærð Egilsholts 1 er 8.211,5 fm en mun hún minnka um 512,8 fm og verður 7.698,7 fm. Gjörningur þessi er partur af uppgjöri á milli Borgarbyggðar og Kaupfélags Borgfirðinga sem tekið var fyrir á 727. fundi byggðarráðs dags. 20.11.2025.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun á lóðinni Egilsholt 1 (L203011) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.



11. Ferjubakki 2 - umsókn um breytingu á landheiti - L135030
2610004

Lögð er inn umsókn um breytingu á heiti landeignar Ferjubakki 2 (L135030). Óskað er eftir að landeignin beri hér eftir heitið Solveigarblettur.

Landeigandi segir oft vera ruglingur á Ferjubakka 2 Miðbær og Ferjubakka 2. Fyrsti eigandi landeignarinnar hét Solveig Búadóttir og hefur bletturinn aldrei verið kallaður annað en Solveigarblettur af eigendum landeignarinnar.





Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að nýtt heiti á landareign verði Solveigarblettur (L135030).

Samþykkt samhljóða.





12. Brákarbraut 27 - Umsókn um breytta afmörkun lóðar
2611014

Lögð er fram ósk um breytta afmörkun á lóðinni Brákarbraut 27 (L191759). Lóðin fer úr því að vera 2549 fm í 2706 fm. Um er ræða 157 fm stækkun sem kemur úr lóðinni Brákarbraut 25 (L135558).

Breytt afmörkun er uppgjör úr samkomulagi sem var samþykkt af byggðarráði Borgarbyggðar 15. mars 2018 við lóðarhafa þinglýstan nr. 442-M-003024/2018.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.



13. Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82
2610008F

13.1
2606070
Laugarmelur - Umsókn um stofnun lóða
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin verði afmörkuð og breytt stærð lóðar Laugarmelur (L134665) úr 0 ha í 1,9 ha þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.

13.2
2610078
Staðarhraun Fjarskipti - Umsókn um stofnun lóða
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að stofnuð verði 100 fm lóð, Staðarhraun fjarskipti,úr upprunalandinu Staðarhraun (L136029) þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðina í landeignaskrá HMS, skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins ásamt samþykki landeiganda. Lóðin fer í notkunarflokkinn lóð.

13.3
2610079
Kveldúlfsgata - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir umbætur á umferðaröryggi og aðgengi við Kveldúlfsgötu
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda er miða að auknu umferðaröryggi, skýrari afmörkun bílastæða og bættu aðgengi við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi. Skipulagsfulltrúi metur framkvæmdina svo að með tilliti til umferðargreiningar og ábendinga íbúa sé framkvæmdin aðkallandi til að bæta umferðaröryggi á svæðinu.Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010

13.4
2610081
Melabraut - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gatnaframkvæmdir
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna gatnaframkvæmda og uppsetningu götulýsingar. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010

13.5
2504004
Sjóvarnagarðar - umsókn um framkvæmdaleyfi
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 82

Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir endurnýjun framkvæmdaleyfis vegna gerðar sjóvarna við íþróttasvæðið í Borgarnesi. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010



14. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265
2610011F

14.1
2610070
Gufuá - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum

14.2
2610040
Gunnlaugsstaðir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð 112/2012.Byggingarleyfið verður gefið út að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum.

14.3
2610059
Refsholt 37 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

14.4
2610024
Krumshólar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Byggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

14.5
2609297
Fjárhúsás 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Erindið þarf að grenndarkynnaByggingin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr. 1.3.2 í byggingarreglugerð.Byggingaráform eru samþykkt að undangenginni grenndarkynningu og uppfylla þau ákvæði mannvirkjalaga nr.160/2010 og gr. 2.4.2. í byggingarreglugerð.Byggingarheimild verður veitt þegar eftirfarandi skilyrði skv. byggingarreglugerð gr.2.3.8 eru uppfyllt:- Undirritaðir aðaluppdrættir hafa verið staðfestir og skilað inn árituðum til leyfisveitanda.- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og afhent staðfestingu á starfsábyrgðartryggingu fyrir framkvæmdinni.- Leyfisgjöld hafa verið greidd.

14.6
2609275
Vatnshorn - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 265

Erindið er samþykkt með fyrirvara um að fyrir liggi staðfesting/samþykki landeiganda . Byggingarfulltrúi hefur móttekið umsókn um tilkynningarskylda framkvæmd sbr. gr. 2.3.5. í byggingarreglugerð 112/2012.



Fundi slitið - kl. 10:30