Dagskrá
1. Trúnaðarbók 2026
2601286
Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna félagsþjónustu og afgreiddar umsóknir um fjárhagsstyrk
Óheimilt er að birta afgreiðslu nefndarinnar og starfsmanna opinberlega og því eru afgreiðslur skráðar með formlegum hætti í trúnaðarbók. Það er skýr reglurammi sem nefndin og starfsmenn félagsþjónustu starfa eftir. Reglurnar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
Klara Kristinsdóttir, verkefnastjóri í félagsþjónustu sat undir þessum lið.
2. Erindisbréf Öldungaráðs
1811006
Unnið hefur verið að endurskoðun erindisbréfs Öldungaráðs Borgarbyggðar frá því í september 2026. Tillaga að ítarlegra erindisbréfi var unnin með hliðsjón af sambærilegum samþykktum annarra sveitarfélaga og drögin voru kynnt Öldungaráði á fyrsta fundi þess á nýju kjörtímabili. Í kjölfarið voru drögin send fulltrúum ráðsins til umsagnar. Óskað er eftir afstöðu velferðarnefndar til breytinga á erindisbréfi.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að uppfærðu erindisbréfi Öldungaráðs Borgarbyggðar, eins og það liggur fyrir eftir endurskoðun og umsögn ráðsins. Þó verði sett það ákvæði að fjöldi greiddra funda séu ekki fleiri en 6 á ári. Nefndin vísar erindisbréfinu áfram til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Klara Kristinsdóttir, verkefnastjóri í félagsþjónustu sat undir þessum lið.
3. Gott að eldast
2311278
Á fyrsta fundi velferðarnefndar var eftirfarandi bókun gerð: Velferðarnefnd veitir félagsmálastjóra umboð til að undirbúa ákveðnar breytingar er fela í sér aukna samvinnu við Brákarhlíð. Eru slíkar breytingar í takt við hugmyndafræðina sem er að baki Gott að eldast, auk þess sem slíkt mun auka hagræðingu innan málaflokksins.
Kynnt er fyrir velferðarnefnd hver staðan er á því verkefni.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að félagsmálastjóri leiði áframhaldandi vinnu við að efla félagsstarf aldraðra í samvinnu við Brákarhlíð. Þar sem næstu skref hafa með fjármagn sveitarfélagsins að gera er lagt til að málið verði kynnt fyrir Byggðarráð. Samþykkt samhljóða.
Klara Kristinsdóttir, verkefnastjóri í félagsþjónustu sat undir þessum lið.
4. Gjaldskrár á fjölskyldusviði 2027
2510090
Lögð er fram gjaldskrá á Fjölskyldusviði fyrir árið 2027. Við uppfærslu gjaldskrárinnar er miðað við 2,5% hækkun, í samræmi við þau viðmið sem lögð hafa verið til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar Borgarbyggðar fyrir árið 2027.
Samþykkt samhljóða.
5. Barnaverndarþjónusta Vesturlands
2608172
Á öðrum fundi velferðarnefndar var eftirfarandi bókað: Borgarbyggð fagnar því að Dalabyggð hafi sýnt því áhuga á að koma í Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Velferðarnefnd leggur áherslu á að samningurinn feli ekki í sér viðbótarkostnað fyrir Borgarbyggð og það sé skýrt að Dalabyggð komi inn í samstarfið á sama grunni og önnur sveitarfélög. Því er ekki veitt umboð til að semja á öðrum grunni. Lögð er áhersla á að lágmarkskostnaður sem Dalabyggð þarf að greiða er óumsemjanlegur enda þykir ljóst að aukið álag fylgi því að vera leiðandi sveitarfélag í barnaverndarþjónustu. Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagt tilboð.
Félagsmálastjóri fer yfir hvar verkefnið er statt.
Velferðarnefnd felur félagsmálastjóra frekara samráð við Dalabyggð, með því markmiði að fylgja eftir þeirri bókun sem fylgir hér að ofan. Samþykkt samhljóða.
6. Notendaráð og samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks
2003205
Á síðasta ári var notendaráð fatlaðra skipað í fyrsta sinn í Borgarbyggð. Erindisbréf fyrir ráðið liggur fyrir en samkvæmt 2. gr. kemur fram að notendaráð um málefni fatlaðs fólks er skipað sex fulltrúum.
- Þrír fulltrúar og þrír til vara skulu tilnefndir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum.
- Þrír fulltrúar og þrír til vara skulu tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks á þjónustusvæðinu
Óskað er eftir afstöðu velferðarnefndar til skipan í ráðið. Þess ber að geta að á síðasta ári voru eftirfarandi aðilar skipaðir af hálfu hagsmunaðila: Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, Þórður Káraason og Guðmundur Stefán Guðmundsson, sem jafnframt var varaformann ráðsins. Varamenn þeirra voru Unnar Eyjólfur Jensson, Ölver Bjarnason og Guðmundur Ingi Einarsson. Lagt er til að þessi hópur verði skipaður aftur.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að þeir aðilar sem hafa verið skipaðir af hálfu hagsmunaaðila haldi áfram setu í ráðinu. Varðandi frekari skipan í ráðið er erindinu vísað til sveitastjórnar. Samþykkt samhljóða.