Dagskrá
1. Fyrirspurn um skipulagsmál
2611119
Lögð er fram fyrirspurn frá Veitum varðandi framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á frárennslis-, neysluvatns- og hitaveitulögnum við Ásveg og Túngötu á Hvanneyri.
Framkvæmdin kemur til vegna uppbyggingar á athafnasvæðinu á Hvanneyri, tilefni framkvæmdarinnar er að styrkja dreifikerfi vatns- og hitaveitu og tengja hús við fráveitukerfið. Flutningsgeta vatns- og hitaveitu er komin að þolmörkum. Við hönnun er jafnframt tekið mið af framtíðaruppbyggingu á iðnaðarsvæðinu við Melabraut til að tryggja áframhaldandi rekstraröryggi.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, metur að umrædd framkvæmd falli ekki undir reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem um endurnýjun lagna er um að ræða. Heimild til framkvæmdar verður send málsaðilum þar sem m.a koma fram leiðbeiningar skipulagsfulltrúa.
2. Hvítárholt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610093
Sótt er um leyfi fyrir vélaskemmu mhl-02. Stærð 300m2. Húsið er stálgrindahús, klætt með yleiningum á steyptar undirstöður. Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Landnotkun svæðisins er skilgreint sem landbúnaðarland í aðalskipulagi.
3. Ísleifsstaðir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
2610274
Sótt er um leyfi fyrir frístundahúsi á einni hæð. Stærð 54,7 m2 byggt úr timbri. Útveggir klæddir timburklæðningu, gluggar og útihurðir með álklæðningu að utan. Risþak er á húsinu með báraðri málmklæðningu. Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu. Landnotkun svæðisins er skilgreint sem landbúnaðarland í aðalskipulagi.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið fyrir hagsmunaaðilum í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynnt verði í gegnum skipulagsgátt fyrir eigendum Akra 2, Akrar Suðurbærinn og Akrakirkju.
4. Sjóvarnagarður - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsrannsóknum
2611121
Lögð er fram umsókn Borgarbyggðar dags. 16.11.2026 um framkvæmdaleyfi vegna jarðtæknirannsókna vegna undirbúningsvinnu og hönnunar á sjóvarnargarð við íþróttasvæðið í Borgarnesi. Sótt er um leyfi fyrir þriðja og síðasta áfangann þar sem leggja þarf tvo vegslóða 27 og 23 metra út í verðandi sjóvarnargarð þar sem áætlað er að bora 5 rannsóknarholur. Áætlaður framkvæmdatími er að hámarki fimm dagar og mun vinnan vera í gangi um mánaðarmótin nóvember/desember 2026.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna jarðtæknirannsókna vegna undirbúningsvinnu og hönnunar á sjóvarnargarð við íþróttasvæðið í Borgarnesi með vísan til framlagðra gagna. Sýnt er að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Málsmeðferð verður skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010
5. Fitjahlíð 1, 3, 5, 7a, 7, 9, 9a, 11, 11a - Umsókn um stofnun lóða
2611103
Lögð er fram ósk um hnitsetta afmörkun og breytta stærð sjö lóða og afskráningu tveggja lóða.
Afmörkun og breytt stærð eftirfarandi lóða
- Fitjahlíð 1 L134001 fer úr því að vera 1300 fm í 2975,0 fm.
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 3 L134009 fer úr því að vera 2000 fm í 2975,0 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 5 L134006 fer úr því að vera 1300 fm í 3060,0 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 7 L134023 fer úr því að vera 2000 fm í 2450,0 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 7A L134155 verður áfram 2000 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 9 L134024 fer úr því að vera 2500 fm í 2450,0 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
- Fitjahlíð 11 L134025 fer úr því að vera 2000 fm í 3120,0 fm
Einn matshluti er á lóðinni: 01 Sumarhús.
Stækkun/minnkun lóðanna kemur úr landi Fitja L33958.
Eftirfarandi lóðir verða afskráðar og renna saman við upprunalandið Fitjar L133958
- Fitjahlíð 9A L180068
- Fitjahlíð 11A L180070
Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F-2 í aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkir fyrir sitt leyti að lóðirnar verði afmarkaðar með hnitum og stærð breytt ásamt afskráningu tveggja lóða.
Afmörkun og breytt stærð eftirfarandi lóða
- Fitjahlíð 1 L134001 fer úr því að vera 1300 fm í 2975,0 fm.
- Fitjahlíð 3 L134009 fer úr því að vera 2000 fm í 2975,0 fm.
- Fitjahlíð 5 L134006 fer úr því að vera 1300 fm í 3060,0 fm
- Fitjahlíð 7 L134023 fer úr því að vera 2000 fm í 2450,0 fm
- Fitjahlíð 7A L134155 verður áfram 2000 fm
- Fitjahlíð 9 L134024 fer úr því að vera 2500 fm í 2450,0 fm
- Fitjahlíð 11 L134025 fer úr því að vera 2000 fm í 3120,0 fm
Eftirfarandi lóðir verða afskráðar og renna saman við upprunalandið Fitjar L133958
- Fitjahlíð 9A L180068
- Fitjahlíð 11A L180070
þegar merkjalýsandi hefur afmarkað lóðirnar í landeignaskrá HMS og skilað inn undirrituðum gögnum til sveitarfélagsins.
Skipulagsfulltrúi bendir á að deiliskipuleggja þurfi svæðið.
6. Arkarholt 11 - umsókn um stofnun lóða - 177473
2611093
Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Arkarholt 11B úr lóðinni Arkarholt 11 (L177473) í Borgarbyggð. Engin mannvirki eru á lóðinni. Deiliskipulag er á svæðinu og samræmist merkjalýsingin ekki við deiliskipulagið. Svæðið er skilgreint sem Frístundabyggð F29 í aðalskipulagi. Lóðin er 2807,1 fm að stærð. Aðkoma yrði frá veginum um sumarhúsahverfið.
Skipulagsfulltrúi sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, hafnar stofnun lóðarinnar Arkarholt 11B úr lóðinni Arkarholt 11 þar sem lóðin samræmist ekki deiliskipulagi svæðisins.
Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 segir auk þess að lóðir í frístundabyggð skuli að jafnaði vera 0,3-1 ha og samræmist stærð lóðarinnar því ekki aðalskipulagi.
7. Sturlureykir 4a - Umsókn um stofnun lóða
2611090
Lögð er fram ósk um stofnun nýrrar lóðar Sturlureykir 4a úr landi Sturlureykja 4 (L201093) í Borgarbyggð. Eitt mannvirki færist á lóðina 0101 íbúð. Ekkert deiliskipulag er á svæðinu. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F59 í aðalskipulagi. Lóðin er 440 fm að stærð. Aðkoma er af Hálsasveitarvegi (618) og um lóð Sturlureykja 4.
Skipulagsfulltrúi frestar máli þar til endurskoðun aðalskipulags er gengin í gegn. Skv. Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2025-2037 er ekki heimilt að stofna íbúðarhúsalóð í frístundabyggð.