Fara í efni

Leikskólinn Ugluklettur

Leikskólinn Ugluklettur, sem stendur við Ugluklett í Borgarnesi, tók til starfa haustið 2007. Í leikskólanum eru um það bil 65 börn á þremur deildum og stendur skólinn í útjaðri bæjarins þar sem villtur gróður og náttúran eru við garðhliðið. Nöfnin á rýmum leikskólans eru sótt í örnefni héraðsins, til að mynda heita deildirnar eftir fjöllunum Skessuhorni, Baulu og Grábrók. Önnur rými skólans hafa einnig hlotið nöfn sem tengjast náttúrunni í kringum okkur. Einkunarorð leikskólans eru leikur, virðing og gleði.

Þegar barn byrjar hjá okkur í leikskólanum fara foreldrar og börn í gegnum aðlögunarferli sem heitir þáttökuaðlögun.

Smelltu hér til að skoða heimasíðu leikskólans.