Fara í efni

Byggðarráð Borgarbyggðar

411. fundur 12. apríl 2017 kl. 08:15 - 10:55 í fundarsal í ráðhúsi að Borgarbraut 14 í Borgarnesi
Nefndarmenn
  • Geirlaug Jóhannsdóttir formaður
  • Björn Bjarki Þorsteinsson varaformaður
  • Ragnar Frank Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Finnbogi Leifsson varamaður
Starfsmenn
  • Eiríkur Ólafsson
Fundargerð ritaði: Kristján Gíslason
Dagskrá

1.Lions í Borgarnesi - afmælishátíð

1702093

Byggðarráð færir Lionsklúbbi Borgarness og Lionsklúbbnum Öglu hamingjuóskir í tilefni stórafmæla og þakkar rausnarlega gjöf til íbúa sveitarfélagsins. Umhverfis - og skipulagssviði falið að annast uppsetningu bekkjanna skv. hugmyndum klúbbanna.

2.Sambandsþing UMSB 2016 11.3.2017

1704029

Framlögð ársskýrsla UMSB fyrir árið 2016 ásamt samþykktum tillögum er snúa að Borgarbyggð.
Byggðarráð samþykkti að vísa tillögunum til fræðslunefndar.

3.Landsmót UMFÍ 50+ 2019

1704031

Framlögð ályktun frá UMSB um að sótt verði um, í samstarfi UMSB og Borgarbyggðar, að halda Landsmót UMFÍ fyrir 50+ í Borgarbyggð
Byggðarráð lýsir yfir stuðningi við það að UMSB sæki um að halda mótið árið 2019.

4.Lóðir við Brákarsund - umsókn

1704060

Framlögð umsókn Fylkis ehf dags. 5.4.2017, um lóðir nr. 1 - 4 við Brákarsund ásamt kaupum á byggingarrétti lóðarinnar nr. 5 við sömu götu.
Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðum 1, 3 til umsækjanda og felur sveitarstjóra að ræða við umsækjanda um lóð nr. 5. Ekki er vilji til að úthluta lóðum 2 og 4.

5.Bréf til byggðarráðs dags. 04.04.2017, ítrekun

1704061

Framlagt bréf dags. 4.4.2017, frá Ásgeiri Sæmundssyni Arkarholti 11, 270 Mosfellsbæ, þar sem hann fer fram á ítarlegri svör við erindum sínum, áðursendum.
Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs ásamt byggingarfulltrúa falið að svara bréfritara ásamt því að fylgja eftir þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið af sveitarstjórn í júní og júlí 2016 um grenndarkynningu og breytingu á aðalskipulagi.

6.Einifell lnr. 134859 - stækkun lóðar, Einifell lóð, lnr. 194332

1704069

Framlögð umsókn Sigrúnar Ásu Sturludóttur um stækkun lóðar úr landi Einifells lnr. 134859, Einifell lóð lnr. 194332.
Byggðarráð samþykkir að heimila stækkun lóðarinnar.

7.Brúarás ehf - erindi v. skipulags - og sorpmála.

1704091

Framlagt erindi frá Brúarási ehf dags. 5.4.2017 varðandi skipulagsmál og gámasvæði.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar á umhverfis - og skipulagssviði.

8.Útboð á sorphirðu 2016 - 2021, krafa um gögn

1704073

Framlögð tvö bréf Forum lögmanna ehf f.h. Íslenska gámafélagsins ehf, dags. 3.4.2017 og 10.4.2017 þar sem m.a. er farið fram á sundurliðaða kostnaðaráætlun vegna sorphirðuútboðs 2016.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við aðra aðila sem stóðu að útboðinu um viðbrögð við þessum erindum.

9.Áskorun v. skólaakstursútboðs 2017

1704072

Framlagt bréf fjögurra íbúa af Mýrum og fyrrum Kolbeinsstaðahreppi varðandi skólaakstur þaðan í Borgarnes.
Finnbogi leggur fram svohljóðandi tillögu: "Undirritaður leggur til varðandi skólaakstur, leið 2, að útúr þeirri leið verði tekinn akstur að Kálfalæk og leitað samninga við foreldra barna þar um akstur í veg fyrir skólabíl. Með því styttist leið nokkurra barna í skólabíl um 40 km. á dag".
Byggðarráð samþykkir að vísa tillögunni til úrvinnslu sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

10.Tómstundaakstur af Mýrum - áskorun

1704125

Framlögð tillaga Huldu Hrönn Sigurðardóttur og Finnboga Leifssonar um að tekinn verði upp akstur í tengslum við tómstundastarf vestan Borgarness.
Byggðarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að leggja fram tillögu um fyrirkomulag tómstundaaksturs í sveitarfélaginu í samráði við tómstundafulltrúa.

11.Skólaakstur, útboð 2017

1606064

Framlögð gögn frá Ríkiskaupum þar sem greint er frá niðurstöðum útboðs á skólaakstri sem Ríkiskaup sáu um fyrir hönd Borgarbyggðar.
Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu þætti skólaakstursútboðsins sem Ríkiskaup sá um. Tilboð bárust tilboð í allar leiðir og eru þau í heildina undir kostnaðaráætlun. Lagt er til að samið verði við þá aðila sem eru með lægstu tilboðin og skiluðu inn gildum tilboðum. Byggðarráð samþykkir tillögu Ríkiskaupa og felur sviðstjóra fjölskyldusviðs og fjármála - og stjórnsýslusviðs að fylgja málinu eftir. Jafnframt verði endurskoðað fyrirkomulag á lengstu leiðum með það að markmiði að stytta aksturstíma.

12.Greiðsludreifing gatnagerðargjalda

1704115

Umræður um samþykkt á reglum um greiðsludreifingu gatnagerðargjalda.
Eiríkur Ólafsson staðgengill sveitarstjóra fór yfir samþykkt Borgarbyggðar um greiðsludreifingu gatnagerðargjalda. Byggðarráð samþykkir að breyta samþykktinni þannig:
a.
Greiða skal a.m.k. 25% af gatnagerðargjaldi innan eins mánaðar frá lóðarveitingu
b.
Greiða skal a.m.k. 25% af gatnagerðargjaldi innan 12 mánaða frá lóðarveitingu.
c.
Greiða skal eftirstöðvar af gatnagerðargjaldi innan 18 mánaða frá lóðarveitingu.
Samþykkt samhljóða.

13.Búsvæðamat á vatnasvæði Gljúfurár

1704111

Framlögð gögn vegna búsvæðamats Gljúfurár í tengslum við endurskoðun arðskrár árinnar sem unnið er að.

14.Markaðssetning ferðaþjónustunnar - kynningarbréf

1703157

Framlagður tölvupóstur frá Icelandic Info þar sem þjónusta fyrirtækisins í ferðamálum er kynnt.

15.Breyting á starfsleyfi Sorpurðunar Vesturlands

1703219

Framlögð breyting á starfsleyfi Sorpurðunar Vesturlands.

16.Giljahlíð lnr. 134404 - Stofnun lóðar, Rennur

1704107

Framlögð umsókn Hildar Eddu Þórarinsdíttur og Guðmundar Péturssonar um stofnun lóðar í landi Giljahlíðar er beri heitið Rennur.
Byggðarráð samþykkir að lóðin verði stofnuð.

17.Hamrar lnr. 134722, stofnun lóðar, Hamrakot

1704108

Framlögð umsókn Vilhjálms Diðrikssonar og Péturs Diðrikssonar dags. 6.4.2017 um heimild til að stofna lóð út úr landi Hamra í Þverárhlíð lnr. 134722, Hamrakot.
Byggðarráð samþykkir að lóðin verði stofnuð.

18.Snjómokstur í uppsveitum Borgarfjarðar.

1701149

Framlagt bréf Innanríkisráðuneytis dags. 7.4.2017, varðandi aukna vetrarþjónustu á vegum í uppsveitum Borgarfjarðar þar sem fram kemur að erindi Borgarbyggðar er hafnað.
Byggðarráð lýsir yfir mikilli óánægju með þessa afstöðu ráðuneytisins.

19.Krókur - afréttarmál

1509059

Framlagt bréf frá Ragnari Aðalsteinssyni lögmanni eig. Króks í Norðurárdal, dags. 4.4.2017, þar sem kynnt er sú ákvörðun eigenda Króks að hefja girðingarframkvæmdir.
Byggðaráð samþykkir að fela lögmanni að sjá um samskipti við bréfritara.

20.Gosbrunnur og stytta

1404090

Framlögð gögn vegna tilboðs í viðgerð styttu e. Guðmund f. Miðdal er staðsett var í Skallagrímsgarði.
Hrafnhildur Tryggvadóttir verkefnastjóri á umhverfis - og skipulagssviði fór yfir gögn varðandi endurgerð/viðgerð styttunnar. Byggðarráð samþykkir að taka tilboði Gerhard Konig myndhöggvara í viðgerð styttunnar.

21.Sólbakki 17 - 19. Stækkun lóðar

1702126

Framlagðar tillögur, unnar af Verkís hf, um stækkun lóðar Borgarverks ehf að Sólbakka 17 - 19.
Byggðarráð tekur jákvætt í lóðastækkun skv. tillögu nr. 1 að því gefnu að vegtenging að Kárastöðum verði tryggð og hugað verði að legu reiðvegar. Umhverfis - og skipulagssviði falið að stofna lóð og annast nánari útfærslu í samráði við umsækjanda.

22.Aðalfundur Oks 10.4.20176 - fundargerð, ályktun

1704124

Framlögð fundargerð Sjálfseignarstofnunar Ok dags. 10.4.2017 ásamt ályktun um málskot á úrskurði Óbyggðarnefndar til dómstóla.
Byggðarráð samþykkir niðurstöðu stjórnar Sjst. Ok hvað varðar málskot til dómatóla.

23.Stofnun lögbýlis - Vindás lnr. 205887, beiðni um umsögn

1704123

Framlögð beiðni Þverholtabúsins ehf. dags. 10.4.2017 um umsögn vegna fyrirhugaðrar umsóknar um stofnun lögbýlis á eyðijörðinni Vindási.
Byggðarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn um erindið og felur sveitarstjóra að svara bréfritara.

24.Frá nefndasviði Alþingis - 114. mál til umsagnar

1704121

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnumörkun og aðgerðaáætlun um kolefnishlutlaust Ísland, 114. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is

25.Frá nefndasviði Alþingis - 270. mál til umsagnar

1704120

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 270. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is

26.184. mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

1704119

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á sveitarstjórnarlögum (íbúakosningar), 184. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is

27.Frá nefndasviði Alþingis - 222. mál til umsagnar

1704118

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 222. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is

28.Frá nefndasviði Alþingis - 156. mál til umsagnar

1704117

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar tillögu til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is

29.Fundargerð 848. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

1703221

Framlögð fundargerð 848. fundar stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga

30.Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur mánudaginnn 3. apríl 2017

1703148

Framlögð fundargerð aðalfundar Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn var 3.4.2017

Fundi slitið - kl. 10:55.