Fara í efni

Byggðarráð Borgarbyggðar

465. fundur 07. október 2018 kl. 21:00 - 21:35 á símafundi
Nefndarmenn
  • Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir formaður
  • Lilja Björg Ágústsdóttir aðalmaður
  • Guðveig Eyglóardóttir aðalmaður
  • Magnús Smári Snorrason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir form. byggðarráðs
Dagskrá

1.Tillaga að lúkningu máls vegna Borgarbrautar 55

1810061

Símafundur
Lokadrög að bréfi frá Pacta lögð fram. Innihald bréfsins rætt. Fundarmenn eru sammála um að endurskoða orðalag á tveimur stöðum í seinni hluta bréfsins og verða athugasemdir sendar á lögmann og óskað eftir að tillit verði tekið til breytinganna. Bréfið er í tveimur liðum og lýtur fyrri hluti þess að tilboði um lúkningu málsins en seinni hluti þess er efnislegt svar við bréfi frá Advocatus dagsett 20. ágúst 2018. Samþykkt að kalla lóðarhafa á fund og ræða við þá um efni bréfsins sem verður sent til hlutaðeigandi. Vonast er til að sátt náist í málinu.
Guðveig Anna Eyglóardóttir lagði fram eftirfarandi bókun
"Undirrituð mun ekki taka afstöðu til einstakra liða í framlögðu bréfi en tekur jákvætt í tillögur að lúkningu máls. Varðandi seinnihluta bréfsins þá situr undirrituð hjá og hvetur fulltrúa í meirihluta til að vinna áfram að því að ná farssælu samkomulagi í málinu".

Fundi slitið - kl. 21:35.