Frístundastyrkur Borgarbyggðar
Borgarbyggð styrkir frístundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára með framlagi að upphæð kr. 40.000 á ári.
Markmið framlagsins er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi.
Hægt er að nýta frístundastyrk í:
- Skipulagt frístundastarf sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í a.m.k. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf
- Þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni á aldrinum 13 – 16 ára undir eftirliti íþróttafræðings samfellt í a.m.k. 10 vikur
- Þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára
- Nám í tónlistarskóla sem er samfellt í a.m.k. 10 vikur
Hægt er að nýta frístundastyrkinn hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum.
Allar umsóknir eru afgreiddar rafrænt, í þjónustugátt Borgarbyggðar á heimasíðunni borgarbyggd.is, í skráningar- og greiðslukerfinu Nóra/Sportabler eða á heimasíðum annarra sveitarfélaga eða íþróttafélaga. Einnig bjóða sum íþróttafélög upp á Sportabler app, þar er hægt að kaupa námskeið og ráðstafa Frístundastyrk.
Forráðamenn skrá sig inn á Þjónustugátt Borgarbyggðar (eða á aðrar síður sem við á), annað hvort með rafrænum skilríkum eða Íslykli.
Undir "Frístundastarf“ í Þjónustugátt Borgarbyggðar koma fram upplýsingar um námskeið. Hakað er við „Nota Frístundastyrk Borgarbyggðar“ og þá lækkar upphæð gjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks.
Frístundastyrkur er kr. 40.000 á ári. Inneign fellur niður um áramót.