Breytingin tekur til lóðar við Egilsholt 4 og felst í því að byggingarreitur er stækkaður og færður til innan lóðarinnar, bílastæði sett meðfram Hrafnakletti, vegtengingu bætt við frá austurhlið lóðarinnar og bílastæðum fjölgað úr 31 í 52 stæði. Heildargrunnflötur atvinnuhúss stækkaður úr 600 fm í 1.024 fm og nýtingarhlutfall hækkað úr 0,18 í 0,31. Aðrir skilmálar haldast óbreyttir.
Tillaga að deiliskipulagi var auglýst frá 20.12.2021-01.02.2022.
Engar athugasemdir bárust frá umsagnaraðilum.
Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.