Fara í efni
9. nóv 2022
Borgarbraut 55 í Borgarnesi
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga breyting á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. október 2022 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Borgarbraut 55-59 frá árinu 2007 m.s.br.

Deiliskipulagsbreyting Borgarbraut 55-59

Breytingartillagan tekur til lóðar nr. 55 þar sem gerð er breyting á byggingarreit og bílastæðum, hámarks hæð, fjölda íbúða og þakhalla. Aukning er gerð á nýtingarhlutfalli í kjölfar aðalskipulagsbreytingar þar sem nýtingarhlutfall er hækkað úr 0,63 í 0,73.

Ofangreind skipulagsáætlun er aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 9. nóvember til og með 22. desember 2022. Ef óskað er nánari kynningu á áætluninni þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til 22. desember 2022. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is.

Borgarbyggð, 22. nóvember 2022.

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar