Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar

Kæru foreldrar/forráðafólk nýfæddra barna
Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með ykkur á þessum tímamótum. Barnapakkanum fylgja hamingjuóskir og vonir um bjarta framtíð.
Eftirtaldir aðilar hafa tekið höndum saman um Barnapakka Borgarbyggðar en hann gildir sem 10.000 kr. inneign hjá eftirtöldum þjónustuaðilum:
- Kaupfélag Borgfirðinga
- Hár center
- Fok
- Hársnyrting Dagnýjar
- Bara Bistro
- Gunnhildur Lind ljósmyndari
- Metabolic Borgarnes
- Nuddstofa Margrétar
- Apótek Vesturlands
- Brúartorg
Aldan, verndaður vinnustaður í Borgarbyggð, annast utanumhald á þessu verkefni í samstarfi við starfsfólk ungbarnaeftirlits Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Borgarnesi. Þeir aðilar sem standa að Barnapakka Borgarbyggðar bjóða nýja einstaklinga velkomna og óskum börnum og foreldrum alls hins besta.
Hægt er að nálgast barnapakkana hjá Öldunni fyrir börn fædd 2026 – 2027.
Með kærri kveðju Aldan og Borgarbyggð