Myndamorgunn á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar.

Myndamorgunn á Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar.

Föstudaginn 16. október 2026, milli kl. 10:00-12:00  verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins.

Við höldum áfram að skoða myndir frá Varmalandi á árunum 1957-1959. Ef tími gefst til getum við skoðað fleira. Kaffi á könnunni og gæðakex í boði.

Verið velkomin!

Dagsetning:

Byrjar: 16.10.2026, 10:00
Endar: 16.10.2026, 12:00

Staðsetning:

Safnahús Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi

Verð:

Frítt