Ólseigir krakkar : Að efla þolimæði og sjálfstraust barna

Forvarnarteymi Borgarbyggðar býður foreldrum og öðrum áhugasömum á hagnýta fræðslu um hvernig efla má þrautseigju, seiglu og sjálfstraust barna.
Fyrirlesturinn ber heitið Ólseigir krakkar: Að efla þolgæði og sjálfstraust barna og verður haldin í Hjálmakletti 16. nóvember kl. 17–19. Einnig verður hægt að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi. Hlekkur á streymið verður aðgengilegur á heimasíðu Borgarbyggðar.
Í fræðslunni verður fjallað um mikilvægi seiglu og sjálfstrausts fyrir andlega líðan, námsárangur og lífsánægju barna. Þátttakendur fá hagnýtar leiðir til að styðja börn í að takast á við áskoranir, mistök og mótlæti og efla sjálfstæði þeirra og innri hvata. Meðal þess sem fjallað verður um er hvernig seigla og sjálfstraust þróast, hvernig foreldrar geta hvatt börn til að sýna þrautseigju og forvitni og hvernig hrós getur bæði styrkt og dregið úr sjálfstrausti barna. Einnig verður fjallað um leiðir til að rækta heilbrigðan sjálfsaga í daglegu lífi.
Fræðslan er ætluð foreldrum barna á leik- og grunnskólaaldri sem vilja styrkja börn sín til framtíðar.
Fyrirlesari er Ársæll Már Arnarsson, prófessor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ.