Jólaföndur og söngur á Safnahúsi

Safnahús Borgarfjarðar býður upp á ýmsar gæðastundir í aðdraganda jólanna – vonandi eitthvað fyrir alla.
Fyrsta gæðastund verður fyrsta sunnudag í Aðventu milli kl. 13:00 – 16:00.
Þá verður jólaföndur og Æskukórinn kemur að syngja nokkur jólalög undir stjórn Theodóru Þorsteinsdóttur.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Dagsetning:
Byrjar: 29.11.2026, 13:00
Endar: 29.11.2026, 16:00
Staðsetning:
Safnahús Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
Verð:
Frítt