Vertu með og hafðu áhrif
Almennur íbúafundur á Bifröst
Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins.
Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar.
Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins.
Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30
NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á móti hótelinu á Bifröst
Úkraínskur túlkur verður á staðnum.
Fundurinn er öllum opinn og við hvetjum íbúa til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Þátttaka og raddir íbúa skipta sköpum við stefnumótunina.
Долучайтеся та впливайте на майбутнє
Громадська зустріч жителів у Біфрості
Муніципалітет Боргарбігд запрошує всіх жителів на відкриту зустріч щодо формування нової стратегії надання послуг громади.
Метою зустрічі є надати жителям можливість висловити свої думки, потреби та ідеї щодо послуг муніципалітету Боргарбігд. ажливо,
щоб голос мешканців був почутий під час формування бачення майбутнього та розвитку послуг громади.
Понеділок, 9 листопада 17:30
NEMÓ (колишнє Kaffi Bifröst),навпроти готелю в Біфрості
На місці буде присутній український перекладач.
Зустріч відкрита для всіх. Ми щиро запрошуємо мешканців взяти участь в обговоренні та поділитися своїми думками.
Участь і голос кожного мешканця мають велике значення для формування майбутньої стратегії громади.
Tengdar fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna
Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson. Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …