5. nóvember, 2026
Fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna

Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október.

 

Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson.

 

Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að í samstarfi við íslensk sveitarfélög.

Markmið verkefnisins er meðal annars að styðja sveitarfélög við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og efla þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.

 

Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar ungmennaráða, starfsfólk sveitarfélaga og sérfræðingar til að ræða og vinna að lausnum í málefnum sem börn og ungmenni hafa lagt áherslu á.

Meðal viðfangsefna voru hvernig styrkja megi samstarf ungmennaráða og sveitarstjórna, auka aðgengi barna að fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi og tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu.

 

Dagskráin stóð yfir í tvo daga og fól meðal annars í sér hópavinnu, kynningar og pallborðsumræður. Þar fengu þátttakendur tækifæri til að miðla reynslu, þróa hugmyndir og vinna saman að lausnum sem geta nýst sveitarfélögum um allt land.

Þátttaka fulltrúanna er mikilvægt tækifæri til að efla rödd ungs fólks og taka þátt í umræðu um hvernig sveitarfélög geta betur mætt þörfum barna og ungmenna.

Ungmennaráð Borgarbyggðar gegnir þar mikilvægu hlutverki í að koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri og stuðla að því að þau hafi raunveruleg áhrif á nærumhverfi sitt.

 

Tengdar fréttir

5. nóvember, 2026
Fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst

Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …