15. júlí, 2026
Fréttir

Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi

Kæru íbúar,

Nú á næstu vikum hefjast framkvæmdir við endurnýjun Bröttugötu í Borgarnesi. Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik standa fyrir framkvæmdinni þar sem endurnýja á lagnir í götunni — fráveitu-, kaldavatns- og hitaveitulagnir ásamt raflögnum — og Borgarbyggð endurnýjar yfirborð götunnar og gangstéttir. Verktaki verksins er Borgarverk ehf.

Heimlagnir að einstaka húsum verða endurnýjaðar þar sem þess þarf, og fá íbúar þeirra húsa upplýsingar um það sérstaklega.

Framkvæmdir munu standa yfir næstu mánuði og er áætlað að verkinu ljúki í lok október 2026.

 

Áhrif á umferð og aðgengi

Á meðan á framkvæmdum stendur verður akandi umferð um Bröttugötu lokað. Hjáleiðir verða merktar með skiltum á staðnum og biðjum við ökumenn að fylgja merkingum og sýna aðgæslu í nágrenni vinnusvæðis.

Gönguleiðum um götuna verður haldið opnum og leitast verður við að tryggja aðgengi gangandi að húsum, skóla og nærliggjandi þjónustu á meðan á framkvæmdum stendur. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks.

                 Nánari upplýsingar má einnig finna á vef Veitna.

 

Við biðjum íbúa og rekstraraðila velvirðingar á því ónæði sem framkvæmdunum kann að fylgja og þökkum sýndan skilning. Umsjónaraðilar framkvæmdarinnar munu á næstu dögum ganga í hús við framkvæmdarsvæði og eiga samtöl við íbúa.

 

Tengiliður framkvæmdar: Orri Jónsson, EFLA,  orri.jons@efla.is

 

Með kveðju, starfsfólk Veitna, Rarik og Borgarbyggðar

Tengdar fréttir

5. nóvember, 2026
Fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst / Громадська зустріч жителів у Біфрості

Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

5. nóvember, 2026
Fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október.   Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson.   Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …