Borgarbyggð, Veitur og Rarik auglýsa útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Bröttugötu í Borgarnesi.
Um er að ræða gatna- og gangstéttargerð og leggja dreifikerfi fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu.
Borgarbyggð
Endurnýja skal yfirborð götu, bílastæðið og gangstétta.
Helstu magntölur:
Uppgröftur 1.760 m3
Fylling 310 m3
Styrktarlag 1.100 m3
Burðarlag 210 m3
Malbik 1.100 m2
Steyptar gangstéttir 390 m2
Veitur ohf.
Verkið felst í að leggja dreifikerfi fráveitu, vatnsveitu og hitaeitu fyrir Veitur ohf. Verkið er unnið samhliða gatnagerð.
Helstu magntölur:
Fráveitulagnir 240 m
Vatnsveitulagnir 245 m
Hitaveitulagnir 320 m
Lagnaskurðir 1.360 m³
Rarik ohf.
Verkið felst í að grafa lagnaskurði, verja eldri lagnir, niðurtekt og uppsetning tengiskápa og ganga frá í kringum strengi í skurði. Rarik mun sjá um að leggja strengi og jarðvíra í skurði ásamt því að sjá um tengivinnu.
Helstu magntölur:
Tengiskápar 2 stk.
Raflagnir 210
Útboðið opnar þriðjudaginn 19.maí 2026 og má nálgast útboðsgögn í gegnum útboðsvef Borgarbyggðar hjá Ajour hér
Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 þann 5. júní 2026.
Vanti þig aðstoð með að búa til aðgang eða notkun á Ajour útboðskerfinu má setja sig í samband við Borgarbyggð í síma 433-7100 eða thjonustuver@borgarbyggd.is
Umsjónaraðilli útboðs er Hlynur Ólafsson verkefnistjóri framkvæmda.
Tengdar fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna
Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson. Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að í …

Forvarnarteymi Borgarbyggðar býður foreldrum á fræðslu um seiglu og sjálfstraust barna
Forvarnarteymi Borgarbyggðar býður foreldrum og öðrum áhugasömum á hagnýta fræðslu um hvernig efla má þrautseigju, seiglu og sjálfstraust barna. Fyrirlesturinn ber heitið Ólseigir krakkar: Að efla þolgæði og sjálfstraust barna og verður haldin í Hjálmakletti 16. nóvember kl. 17–19. Einnig verður hægt að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi. Hlekkur á streymið verður aðgengilegur á heimasíðu Borgarbyggðar. Í fræðslunni verður fjallað …