Dagforeldrar
Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en Fjölskyldusvið Borgarbyggðar hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra ásamt því að veita ráðgjöf og upplýsingar til dagforeldra og foreldra. Fræðslunefnd Borgarbyggðar veitir leyfi til gæslu barna í heimahúsum í Borgarbyggð og hefur eftirlit með starfseminni. Til að fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þarf að uppfylla ákveðin skilyrði sem er að finna í eftirfarandi gildandi reglum um starfsemi dagforeldra:
- Reglur um greiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum 2017- samþykkt 081216
- Reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum
- Þríhliða samningur um niðurgreiðslu dagvistargjalda
Nafn dagforeldris: | Heimilisfang: | Sími: | Vinnutími: |
Enginn starfandi eins og er. |
Upplýsingar um dagforeldra veitir sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 433-7100.