Leikskólinn Hnoðraból

Leikskólinn Hnoðraból er á Kleppjárnsreykjum í Reykholti í Borgarbyggð. Hann er tveggja deilda leikskóli og að jafnaði eru rúmlega 20 börn á aldrinum frá 12 mánaða til 6 ára.
Nöfnin á deildunum vísa í gildi skólans sem er með sól í hjarta Yngri deildin heitir Rauða deild og er merki hennar rautt hjarta, eldri deildin heitir Gula deild og er merki hennar sólin.
Markmið Hnoðrabóls er að hafa velferð og hag barna að leiðarljósi samkvæmt lögum. Nám á að fara fram í leik og skapandi starfi og starfshættir byggja á umburðarlyndi, jafnrétti, kærleika, ábyrgð, lýðræðislegu samstarfi, virðingu og umhyggju.
Á Hnoðrabóli er unnið eftir þessum kenningum fræðimanna, hugmyndir John Dewey um nám og reynslu, kenningar Rudolf Steiners sem Waldorfuppeldisfræðin byggir á, hugmyndum Steven Covey um Venjurnar sjö/Leiðtoginn í mér og síðast en ekki síst um stefnu og hugmyndafræði Grænfánans og Skóla á grænni grein.