Símenntunarmiðstöð Vesturlands
Markmið með starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi. Hlutverk Símenntunarmiðstöðvarinnar er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Símenntunarmiðstöðina á heimasíðu þeirra.