Almennur íbúafundur á Bifröst

Vertu með og hafðu áhrif
Almennur íbúafundur á Bifröst
Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins.
Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins.
Mánudaginn 9. nóvember
Kl. 17:30
NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á móti hótelinu á Bifröst
Úkraínskur túlkur verður á staðnum.
Fundurinn er öllum opinn og við hvetjum íbúa til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Þátttaka og raddir íbúa skipta sköpum við stefnumótunina.
Dagsetning:
Byrjar: 09.11.2026, 17:30
Endar: 09.11.2026, 18:30
Staðsetning:
Nemó (gamla kaffi Bifröst)