14. ágúst, 2026
Fréttir

Kvöldin 16. ágúst, 17. ágúst og 18. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð.
Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en  merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 umrædd kvöld. 

Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng, gera má ráð fyrir að starfsfólk og tæki verða við vinnu mjög nálægt akstursbrautum

 

Tengdar fréttir

5. nóvember, 2026
Fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst

Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

5. nóvember, 2026
Fréttir

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október.   Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson.   Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …