Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK, hófu í dag framkvæmdir í Bröttugötu. Þar sem lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu verða endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði götu og gangstétta.
Unnið verður á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 30. október nk.
Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst er að bílar munu ekki komast að öllum húsum allan tímann. Aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda verður tryggt eins og kostur er á framkvæmdatíma.
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og er mikilvægt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Með framkvæmdunum er ráðist í endurnýjun mikilvægra innviða til hagsbóta fyrir íbúa og samfélagið í heild. Við þökkum íbúum og öðrum vegfarendum fyrir sýnda þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.

Brattagata í Borgarnesi
Tengdar fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027
Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027 Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað er þjónustustefna? Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Jólagjöf til starfsfólks Borgarbyggðar
Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi …