Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda hjá Borgarbyggð gegn framvísun gjafabréfsins.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 14. desember 2026 – 31. mars 2027.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé með starfsemi í Borgarbyggð.
Um er að ræða ríflega 350 gjafabréf sem þurfa að afhendast í byrjun desember 2026.
Skráningafrestur er til 13. nóvember n.k.
Skráning fer fram á netfanginu iris.gunnarsdottir@borgarbyggd.is og nánari upplýsingar gefur Íris Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri í síma 433-7100.
Tengdar fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst
Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna
Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson. Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …