Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum.
Áætlað er að vinna hefjist í júní eftir að skóla lýkur og unnið á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu. Gert er ráð fyrir að vinnu ljúki í október á þessu ári.
Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst að bílar munu ekki komast að öllum húsum allan tímann. Aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda verða tryggðar á framkvæmdatíma.
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og brýnt að láta vita ef öryggi við vinnusvæðið er ábótavant.
Við endurnýjum nauðsynlega innviði í sameiningu, íbúum og samfélagi í hag og þökkum sýnda þolinmæði.
Tengdar fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst
Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna
Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson. Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …