Líkt á síðastliðin ár stendur Borgarbyggð fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu. Í júní, nánar tiltekið vikurnar 5.-11. júní og 16.-22. júní verða gámar fyrir timbur aðgengilegir á eftirfarandi stöðum:
5. – 11. júní
Bæjarsveit
Brautartunga
Bjarnastaðir – á eyrinni
Síðumúli
Lundar
16. – 22. júní
Lyngbrekka
Lindartunga
Eyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur)
Högnastaðir
Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur vinsamlegast hafði samband við Gunnar hjá ÍGF í síma 840-5847
Vakin er athygli á að söfnunarátak fyrir brotajárn verður með svipuðum sniði í haust og undanfarin ár þar sem brotajárn verður sótt heim að bæ.
Tengdar fréttir

Almennur íbúafundur á Bifröst
Vertu með og hafðu áhrif Almennur íbúafundur á Bifröst Borgarbyggð boðar til opins íbúafundar um mótun nýrrar þjónustustefnu sveitarfélagsins. Markmið fundarins er að gefa íbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þjónustu Borgarbyggðar. Mikilvægt er að rödd íbúa heyrist við mótun framtíðarsýnar og þróun þjónustu sveitarfélagsins. Mánudaginn 9. nóvember Kl. 17:30 NEMÓ (gamla Kaffi Bifröst),á …

Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna
Fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna Þrír fulltrúar Ungmennaráðs Borgarbyggðar tóku þátt í Áhrifadögum ungmenna sem haldnir voru í Hofi á Akureyri dagana 28.–29. október. Fulltrúarnir voru Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, Hrafnhildur Ósk Orradóttir og Ísak Daði Eðvarsson. Áhrifadagar ungmenna voru haldnir í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög, sem UNICEF á Íslandi hefur unnið …